Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1973, Side 8

Læknablaðið - 01.02.1973, Side 8
Pondocillirí Pivampicillin NFN LEO Penicillínsamband með breitt verkunarsvið Pondocillín er stöðugt í magasýru og frásogast fljótt og næstum að fullu eftir inntöku. Pondo- cillín klofnar fljótt og að fullu í líkamanum í ampicillín. Af þessum sökum verður magn ampicillíns langtum meira í blóði og vefjum en eftir töku tilsvarandi magns af Ampicillíni sjálfu, sjá mynd. Hið aukna frásog kemur ekki einungis fram í auknu magni í blóði og vefjum, heldur og í auknum útskilnaði í þvagi. Þannig var sama magn af ampicillíni í blóði, þegar Pondocillín var gefið við inntöku og þegar til- svarandi magn af ampicillíni sjálfu var gefið við innstungu í vöðva. Máltíðir trufla ekki frásog ampicillíns. Pondocillín hefur breitt verkunarsvið og verkar á - eftir að það hefur klofnað í ampicillín - gramjákvæðar bakteríur (að undanskildum peni- cillínasa myndandi stafýlókokkum) og fjölda gramneikvæðra baktería. Pondocillín hefur bak- teríudrepandi verkun eins og önnur penicillín- sambönd. cillíns sé verulegur kostur við meðferð á bólgum og ígerðum, er gramaneikvæðar bakteríur valda. Ekki á þetta sízt við um meðferð á langvinnri berkjubólgu og þvagfæraígerðum. Aukaverkanir Klígja og erting í maga getur komið fyrir, en niðurgangur er mjög fátíður. Stafar þetta af því hve fljótt og fullkomlega Pondocillín sogast frá maga og mjógirni ofanverðu. Yfirleitt má þó komast hjá þessum aukaverkunum með því að gefa lyfið í formi hylkja, með mat eða með mjólk. Ofnæmisviðbrigði, einkum útbrot og kláði, geta komið fyrir eins og eftir gjöf ampi- cillíns sjálfs. Við mononucleosis infectiosa ber að varast að nota ampicillín, og lyf, sem inni- halda ampicillín, þar eð hætta á útbrotum er mjög mikil við þennan sjúkdóm. Ábendingar fgerðir og bólgur, er ampicillínnæmar bakteríur valda. ígerðir og bólgur í öndunarvegi: Berkju- bólga, brá og langvinn, lungnabólga, kýli í lung- um, kíghósti, barkabólga, munnsvelgisbólga, andlitsholubólga, hálseitlabólga, miðeyrnabólga. I'gerðir og bólgur í þvagvegi: Nýrnaskálabólga, blöðrubólga. Aðrar ígerðir: ígerðir í gall- göngum, lekandi. Gennemsnitlige serumkoncentrationer af ampicillin jios raske forsogspersoner efter peroral indgift af Pondocillin (350 mg) (x-x-x), eller den kemisk ækvivalente dosis ampicillin (250 mg) (•-•-•) (1). Frábendingar Ofnæmi við penicillínsamböndum. Gjöf Við minni háttar bólgur og ígerðir af völdum gramjákvæðra baktería er venjulega nægjanlegt að gefa 1 hylki (350 mg) 3 sinnum á dag eða 2 hylki (175 mg) 3 sinnum á dag. ígerðir og bólgur í öndunarvegi, 1-2 hylki (350 mg) 4 sinnum á dag eða 2-4 hylki (175 mg) 4 sinnum á dag. Bólgur og ígerðir í þvagvegi: 1-2 hylki (350 mg) 3^f sinnum á dag eða 2-4 hylki (175 mg) 3-4 sinnum á dag. Börnum yngri en 6 ára er ætlaður hálfur skammtur á við fullorðna. Hylkjunum á að kyngja heilum. Pakkningar Glös með 12-24 eða 36 hylkjum. Eftir gjöf Pondocillíns er magn ampicillíns i blóði og vefjum ca. 3 sinnum hærra en eftir gjöf tilsvarandi skammta af ampicillíni. Magn ampicillíns í blóði er enn fremur ekki eins breytilegt eftir gjöf Pondocillíns og eftir gjöf ampicillíns sjálfs. Af þessum sökum verður Pon- docillín að teljast vænlegra til árangurs en ampi- cillín sjálft. Lyfið hefur verið reynt, m.a. á skan- dinavískum spítölum, á nokkur hundruð sjúk- lingum með bráða og langvinna berkjubólgu, lungnabólgu, miðeyrnabólgu og þvagfæraígerðir. Reynsla af lyfinu hefur verið góð og eru menn á einu máli um, að hið mikla magn ampicillíns í blóði og vefjum eftir töku Pondo- L0VENS KEMISKE FABRIK

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.