Læknablaðið - 01.02.1973, Síða 8
Pondocillirí
Pivampicillin NFN LEO
Penicillínsamband með breitt verkunarsvið
Pondocillín er stöðugt í magasýru og frásogast
fljótt og næstum að fullu eftir inntöku. Pondo-
cillín klofnar fljótt og að fullu í líkamanum
í ampicillín. Af þessum sökum verður magn
ampicillíns langtum meira í blóði og vefjum
en eftir töku tilsvarandi magns af Ampicillíni
sjálfu, sjá mynd. Hið aukna frásog kemur ekki
einungis fram í auknu magni í blóði og vefjum,
heldur og í auknum útskilnaði í þvagi. Þannig
var sama magn af ampicillíni í blóði, þegar
Pondocillín var gefið við inntöku og þegar til-
svarandi magn af ampicillíni sjálfu var gefið við
innstungu í vöðva. Máltíðir trufla ekki frásog
ampicillíns.
Pondocillín hefur breitt verkunarsvið og verkar
á - eftir að það hefur klofnað í ampicillín -
gramjákvæðar bakteríur (að undanskildum peni-
cillínasa myndandi stafýlókokkum) og fjölda
gramneikvæðra baktería. Pondocillín hefur bak-
teríudrepandi verkun eins og önnur penicillín-
sambönd.
cillíns sé verulegur kostur við meðferð á bólgum
og ígerðum, er gramaneikvæðar bakteríur valda.
Ekki á þetta sízt við um meðferð á langvinnri
berkjubólgu og þvagfæraígerðum.
Aukaverkanir
Klígja og erting í maga getur komið fyrir, en
niðurgangur er mjög fátíður. Stafar þetta af
því hve fljótt og fullkomlega Pondocillín sogast
frá maga og mjógirni ofanverðu. Yfirleitt má þó
komast hjá þessum aukaverkunum með því
að gefa lyfið í formi hylkja, með mat eða með
mjólk. Ofnæmisviðbrigði, einkum útbrot og
kláði, geta komið fyrir eins og eftir gjöf ampi-
cillíns sjálfs. Við mononucleosis infectiosa ber
að varast að nota ampicillín, og lyf, sem inni-
halda ampicillín, þar eð hætta á útbrotum er
mjög mikil við þennan sjúkdóm.
Ábendingar
fgerðir og bólgur, er ampicillínnæmar bakteríur
valda. ígerðir og bólgur í öndunarvegi: Berkju-
bólga, brá og langvinn, lungnabólga, kýli í lung-
um, kíghósti, barkabólga, munnsvelgisbólga,
andlitsholubólga, hálseitlabólga, miðeyrnabólga.
I'gerðir og bólgur í þvagvegi: Nýrnaskálabólga,
blöðrubólga. Aðrar ígerðir: ígerðir í gall-
göngum, lekandi.
Gennemsnitlige serumkoncentrationer af ampicillin jios
raske forsogspersoner efter peroral indgift af Pondocillin
(350 mg) (x-x-x), eller den kemisk ækvivalente dosis
ampicillin (250 mg) (•-•-•) (1).
Frábendingar
Ofnæmi við penicillínsamböndum.
Gjöf
Við minni háttar bólgur og ígerðir af völdum
gramjákvæðra baktería er venjulega nægjanlegt
að gefa 1 hylki (350 mg) 3 sinnum á dag eða
2 hylki (175 mg) 3 sinnum á dag. ígerðir og
bólgur í öndunarvegi, 1-2 hylki (350 mg) 4
sinnum á dag eða 2-4 hylki (175 mg) 4 sinnum
á dag. Bólgur og ígerðir í þvagvegi: 1-2 hylki
(350 mg) 3^f sinnum á dag eða 2-4 hylki (175
mg) 3-4 sinnum á dag. Börnum yngri en 6 ára
er ætlaður hálfur skammtur á við fullorðna.
Hylkjunum á að kyngja heilum.
Pakkningar
Glös með 12-24 eða 36 hylkjum.
Eftir gjöf Pondocillíns er magn ampicillíns i
blóði og vefjum ca. 3 sinnum hærra en eftir
gjöf tilsvarandi skammta af ampicillíni. Magn
ampicillíns í blóði er enn fremur ekki eins
breytilegt eftir gjöf Pondocillíns og eftir gjöf
ampicillíns sjálfs. Af þessum sökum verður Pon-
docillín að teljast vænlegra til árangurs en ampi-
cillín sjálft. Lyfið hefur verið reynt, m.a. á skan-
dinavískum spítölum, á nokkur hundruð sjúk-
lingum með bráða og langvinna berkjubólgu,
lungnabólgu, miðeyrnabólgu og þvagfæraígerðir.
Reynsla af lyfinu hefur verið góð og eru
menn á einu máli um, að hið mikla magn
ampicillíns í blóði og vefjum eftir töku Pondo-
L0VENS KEMISKE FABRIK