Læknablaðið - 01.02.1973, Side 14
6
LÆKNABLAÐIÐ
sem höfðu dáið úr kransæðastíflu. Reynd-
ust 49,6% hafa dáið á fyrstu 16 mín., eftir
að einkenni komu í ljós. McNeilly og Pem-
berton athuguðu í Belfast á írlandi 998
tilfelli. Reyndust 60% sjúklinga hafa lát-
izt utan sjúkrahúss, en a. m. k. 23% lifðu
lengur en 30 mínútur. Væri mjög æskilegt
að gera svipaða rannsókn hér á landi, og
það ætti að vera tiltölulega auðvelt. Lík-
legt má telja, að slík rannsókn geti gefið
alliiákvæma vitneskju um verkefni sér-
stakrar hjartagæzlubifreiðar, sem útbúin
er tækjum til endurlífgunar. Enn fremur
er líklegt, að töluvert gagn geti orðið af
sérstakri símaþjónustu fyrir þennan hóp
sjúklinga. Vanir læknar eiga yfirleitt auð-
velt með að taka ákvörðun um innlögn
eftir munnlegum upplýsingum. Flýtir það
áreiðanlega fyrir því, að sjúklingar kom-
ist í sjúkrahús.
Mikilvægast er þó að sjúklingurinn
sjálfur geri sér glögga grein fyrir mikil-
vægi þess að leita til læknis sem allra
fyrst eftir að einkenni koma í ljós.
Sýnt var fram á, að hjartsláttaróreglu
hefði orðið vart í einhverri mynd hjá
55,2% sjúklinganna, er þetta nokkuð
hærra en áður var (46,5%), en ekki er
munurinn mikill. Vantar enn allmikið á,
að skrásetning hjartsláttaróreglu sé nógu
góð.4 911 Hefur nú nýlega verið tekin upp
sú regla að færa svokallaðar hjartaraf-
sjárskýrslur, og ætti það að bæta skrásetn-
inguna til muna.
Eins og áður hefur komið fram,17 deyja
flestir eða helmingur sjúklinganna á fyrsta
sólarhring, og er það í samræmi við
reynslu allra þeirra, sem ritað hafa um
þessi mál.7 91113 16 17 Aðeins tæplega
fimmtruigur kemst í hjartadá. Stafar
það sjálfsagt af bæði meiri notkun lyfja
gegn hjartsláttaróreglu og svo hinu, að
alltaf var beitt endurlífgun; tókst hún oft
í upphafi, enda þótt sjúklingur dæi síðar.
Aðeins einn sjúklingur af þeim, sem end-
urlífgun var reynd á, útskrifaðist af deild-
inni. Var það 69 ára karlmaður, sem fékk
„total A-V block“ og síðan „asystolu“.