Læknablaðið - 01.02.1973, Blaðsíða 16
8
LÆKNABLA3IÐ
Dr. med. Árni Árnason, fyrrum héraðslæknir
LÆKNASKÖLINN í REYKJAVÍK
Læknaskólinn í Reykjavík, sem var
stofnaður 1876, var lagður niður árið 1911,
er Háskóli íslands var stofnaður. Síðasta
starfsár hans var skólaárið 1910-11. Hér
er þess hvorki kostur né þörf að segja
sögu skólans. Sú fræðsla kemur á öðrum
stað. Aðeins skal reynt að bregða hér upp
mynd af skólanum og starfi hans, eins og
það var síðustu árin, sem hann starfaði,
en þau árin var greinarhöfundur þar nem-
andi.
Skólinn átti heima í húsinu á horni
Spítalastígs og Þingholtsstrætis, en þar er
nú Farsóttahúsið. Þar fór öll bókleg
kennsla fram, nema í efnafræði. Hún var
kennd í „Búnaðarfélagshúsinu", sem nú
er Gagnfræðaskóli Vesturbæjar.
NEMENDUR
Siðustu nemendur Læknaskólans voru
alls 19, en þeir voru: Árni Árnason, Árni
Gíslason, Árni B. P. Helgason, Bjarni Snæ-
björnsson, Björn Jósefsson, Guðmundur
Ásmundsson, Halldór Hansen, Halldór
Kristinsson, Helgi Skúlason, Ingvar Sig-
urðsson, Jónas Jónasson (Rafnar), Konráð
Konráðsson, Magnús Björnsson (fugla-
fræðingur), Ólafur Gunnarsson, Pétur
Thoroddsen, Sveinn Vald. Sveinsson, Þór-
hallur Jóhannesson.
Námstíminn og námið skiptist í tvennt,
fyrri cg síðari hluta. Námsgreinar fyrri
hlutans voru: efnafræði, líffærafræði, líf-
eðlisfræði, almenn sjúkdómafræði og
heilsufræði. Próf í efnafræði var tekið
Skömmu fyrir lát sitt afhenti höfundurinn
Sigurði Sigurðssyni, fyrrv. landlækni, grein
þessa með þeim ummælum, að hann ráðstaf-
aði henni á þann hátt, er hann teldi beztan.
Hefur landlæknir sent blaðinu greinina til
birtingar.
eftir eitt ár, en próf í hinum greinunum
eftir þrjú ár. í síðari hluta voru hinar
námsgreinarnar, og var þeim hluta ætluð
tvö ár til viðbótar. Var námstíminn því
fimm ár alls.
KENNARAR
Síðustu kennarar Læknaskólans voru
þessir:
Guðmundur Björnsson, landlæknir;
kenndi medicin og obstetrik.
Guðmundur Magnússon; kenndi chir-
urgi, physiologi og pathologi.
Guðmundur Hannesson; kenndi anatomi
og hygieni, byrjaði 1907-
Sæmundur Bjarnhéðinsson; kenndi
farmakologi og hafði námskeið um holds-
veiki.
Þórður Sveinsson; kenndi legal medicin,
og haíði námskeið um geðveiki.
Ásgeir Torfason; kenndi kemi.
Andrés Fjeldsted; kenndi opthalmologi;
kom eftir Björn Ólafsson.
Vilhelm Bernhöft hafði námskeið í
tannlækningum.
Þessir kennarar voru einnig fyrstu kenn-
ararnir við læknadeild Háskóla íslands, að
Guðmundi Björnssyni, landlækni, undan-
teknum. Hann hætti þá kennslu, en við
tók í hans stað Jón Hj. Sigurðsson. Kennsl-
an var bæði bókleg og verkleg.
BÓKLEGA KENNSLAN
Bóklega kennslan fór ekki fram í fyrir-
lestrum, heldur samtölum um efnið og þá
í sambandi við yfirheyrslur. Til þess að
gefa sem gleggsta mynd af náminu, skal
hér getið um námsefnið í hverri grein um
sig, bækur þær, sem lesnar voru.
Kemi: O. T. Christensen, Uorganisk
Kemi og Organisk Kemi, 258—)—264 bls.,
alls 522 bls.