Læknablaðið - 01.02.1973, Side 24
12
LÆKNABLAÐIÐ
TABLE 1
Carcinoma of the Lung in Iceland
Average annual incidence per 100.000 1955-1968
1955-1959 1960-1964 1965-1968 1955-1968
Male 10.3 13.6 14.1 12.5
Female 5.1 7.8 10.6 7.6
einnig fram á, að brennisteinstvísýrlingur
(S02) í andrúmslofti, sem myndast við
ýmsan iðnað, lækki tíðni lungnakrabba.
Ástæðan gæti verið sama eðlis og við
kolarykið eða, að aminósýrur tengdust
brennisteini í berkjuslímhúð og hefðu bein
áhrif á krabbavaldandi efni í lofti því,
sem andað er að sér.
Eins og vitað er, þá vex krabbamein í
lungum mjög mishratt og sáir sér mis-
fljótt út um líkamann. Flöguþekjukrabbi
(cancer squamocellulare) vex hægast, og
eru batahorfur því beztar hjá þeim sjúkl-
ingum, sem hann fá. Þetta er sú tegundin,
sem er langalgengust víðast hvar eða
50-70% af öllu lungnakrabbameini, og enn
hærri meðal karlmanna. Hinar tegundirn-
ar eru mun illkynjaðri, einkum „oat-cell
og large cell undifferentiated," og horfur
þeirra sjúklinga, sem þær fá, því marg-
falt verri.
Við íslendingar höfum algjöra sérstöðu
með það, að hér á landi eru síðasttöldu
tegundirnar í miklum meirihluta, sbr. 3.
töflu, sem einnig sýnir dreifinguna á ald-
ursflokkana. Flöguþekjukrabbi var lengi
vel talinn eina tegundin, sem stafaði af
reykingum. Við hljótum hins vegar að
álíta, að hinar tegundirnar stafi ekki síð-
ur af reykingum (4. tafla). Gæti þessi
háa tíðni þeirra hér e. t. v. stafað af því,
að hér hefðu reykingar aukizt hraðar en
annars staðar eða erfðaþættir komi þar til
sem mismunandi viðbrögð eða mótstaða í
berkjuslímhúð gegn krabbavaldandi efn-
um í reyknum.
Þá er ekki síður sérstætt hlutfallið milli
kynjanna hérlendis, að því er viðkemur
lungnakrabba.
Enda þótt hlutfallið sé breytilegt eftir
löndum, þá eru karlmenn yfirleitt í meiri-
hluta. Sums staðar er sjúkdómurinn mjög
sjaldgæfur meðal kvenna. í Hollandi er
t. d. hlutfallið: 13.5 karlar á móti 1 konu.
í Bretlandi er hlutfallið 6:1, í Svíþjóð
(Berg) 3,9:1,4 í Chile (Zanolli) 4:1,20 í
Nígeríu (Belcher) 1:1.8 ísland er eina
landið í Evrópu, þar sem lítill munur er
orðinn á tíðni sjúkdómsins meðal karla og
kvenna — eða 1.3:1, á tímabilinu 1965-
1968; 1931-1954 er hlutfallið 2.8:1,21 og
1.9:1 1965-1964.
Tíðni sjúkdómsins meðal karla er víð-
ast talin vera mishá, og veldur það mis-
munandi hlutfalli milli kynja, þar sem
lungnakrabbi í konum hefur aftur á móti
TABLE 2
Sex and Geographic Distribution
Total Urban Rural
Male Female Sex Ratio Male Female Male Female
1931-1954 25 9=34 1:2.7 2 0 1 4
1955-1959 43 21=64 1:2.0 23 15 20 6
1960-1964 64 35=99 1:1.8 31 24 33 11
1965-1968 56 42=98 1:1.3 33 35 23 7
188
107=295