Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1973, Side 42

Læknablaðið - 01.02.1973, Side 42
24 LÆKNABLAÐIÐ sem reynslan hefur sýnt, að þeim er mest að skapi. Þá vil ég að lokum geta þess hér, að ég tel, að mjög kæmi til greina, að við þrjár fyrstnefndu tegundir sjúkrahúsa, svæðis- sjúkrahús, deildarsjúkrahús og almenn sjúkrahús, svo sem þau eru nefnd í frum- varpinu, yrði komið upp sérstökum deild- um, eða ákveðinn rúmafjöldi til þess ætl- aður að rækja þá þjónustu, sem sjúkra- skýli gera annars staðar, og yrði þessum deildum einvörðungu sinnt af almennum heilsugæzlulæknum. Ég vil að endingu draga saman í örfá atriði helztu niðurstöður þessarar greinar, en þær eru: 1) Sjúkrahúsum í Reykjavík verði steypt saman í eina sjúkrahúsaheild undir einni yfirstjórn, þannig að grundvöll- ur myndist fyrir eðlilegri deildar- skiptingu í þrengri sérgreinum lækn- isfræðinnar. 2) í náinni framtíð er ekki grundvöllur til að reka nema eitt sjúkrahús í land- inu, er falli undir skilgreiningu frum- varps til heilbrigðislaga um deildar- sjúkrahús, og verði það á Akureyri. 3) Vegna sérstæðra aðstæðna hér á landi verði staðall almennra sjúkrahúsa að vera tiltölulega hár, og óhjákvæmi- legt, að þar fari fram að staðaldri veruleg lækningastarfsemi í höfuð- greinum lyflæknis-, handlæknis- og fæðingarfræða, svo að þessi sjúkra- hús verði þeim vanda vaxin að sinna bráðum sjúkdómstilfellum, er þangað berast. 4) Til þess að gera sjúkraskýli að rekstr- arhæfum stofnunum verði við þau tengd hjúkrunar- og endurhæfingar- heimili, enda verði á þann hátt lang- legusjúklingum tryggð vist á þess konar stofnunum, er reynslan hefur sýnt, að þeim er mest að skapi. 5) Á öllum stærri sjúkrahúsum verði ákveðinn rúmafjöldi ætlaður heilsu- gæzlulæknum til að rækja þá þjón- ustu, er sjúkraskýli sinna annars stað- ar. NeskaupstaS 30. okt. 1972.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.