Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.02.1973, Qupperneq 47

Læknablaðið - 01.02.1973, Qupperneq 47
LÆKNABLAÐIÐ 25 Elías Davíðsson kerfisfræðingur TÖLVUTÆKNI OG HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA I LÆKNISFRÆÐIN í LJÓSI UPPLÝSINGAFRÆÐI 0.0. INNGANGUR Sú forna hugsjón „að veita hina beztu læknisþjónustu sem þekkt er til allra sem hennar þurfa“ er í dag orðin félagslegt markmið sem einstaklingar, stéttir og yfir- völd styðja með fjárveitingum og löggjöf. Við verðum vör við útbreidda og, að okk- ur finnst, eðlilega kröfu almennings og læknasamtaka um að sú læknisfræðilega þekking sem til er, sé hagnýtt í daglegri starfsemi heilbrigðismála. Jafnframt er lögð mikil áherzla á ýmiss konar klínískar rannsóknir til þess að auka enn fræðilega og hagnýta þekkingu læknavísindanna og hækka þar með staðal heilbrigðisþjónust- unnar. Til þess að unnt sé að hrinda ofan- greindri hugsjón í framkvæmd, verður að uppfylla tvö meginskilyrði: 1) að til séu nógu margir læknar til að veita þessa þjónustu, 2) að fullnægjandi leiðir og aðferðir séu tiltækar til að upplýsa þessa sömu lækna um þá sjúklinga sem þeir eru að meðhöndla og um hina vaxandi fjölbreytni aðferða við sjúkdóms- greiningu og meðhöndlun sjúklinga. Við komumst fljótt að raun um að nú- verandi skipan heilbrigðiskerfis (í víðum skilningi) getur ekki fullnægt þessum tveim skilyrðum. Menntun lækna er alltaf að verða lengri og dýrari, skortur al- mennra lækna verður æ brýnni, og meira að segja í stórborgum iðnaðarlanda fær verulegur hluti íbúanna lélega heilbrigðis- þjónustu. Loks er magn nýrrar þekkingar alltaf að aukast og engin varanleg leið hefur fundizt enn til að halda jafnt og þétt við þekkingu starfandi lækna. Grein þessi styðst við ritgerðina „Develop- ment of a Clinical Decision Support System" eftir Dr. F. J. Moore, birt í júní 1968 á vegum IBM Advanced Systems Development Division, Bandaríkjunum. Greinin er stílfærð með að- stoð eiginkonu höfundar, Kristínar E. Jóns- dóttur, læknis. Hér á eftir mun fyrst verða leitazt við að lýsa læknisstarfinu sem gagnavinnslu og sýna fram á „exponentiel“ eðli þekk- ingarvaxtar. Þá verða raktar þær ástæð- ur sem krefjast nýrrar upplýsingatækni til aðstoðar við klíníska starfsemi. Loks verður stuttlega getið um fjórar tegundir upplýsingakerfa sem gætu vegið á móti óhagstæðri þróun heilbrigðisþjónustunnar. 1.0. HEILBRIGÐISÞJÓNUSTAN SEM UPPLÝSIN GAKERFI 1.1. Starf læknis sem gagnavinnsla Ef við virðum fyrir okkur kjarna heil- brigðisþjónustunnar í dag, þ. e. læknis- starfið, komumst við að raun um að starf- ið er að miklu leyti fólgið í meðhöndlun upplýsinga. Töflur 1 til 5 sýna hugsan- lega niðurröðun á þeim þáttum sem koma fyrir við venjulega klíníska starfsemi, þ. e.: söfnun upplýsinga, taka ákvarðana, skráning, geymsla og miðlun upplýsinga (data collection, decision process, record- ing, storage and data communication). Húsnæði, tækjabúnaður og góð stjórnun tilheyra einnig góðri heilbrigðisþjónustu. í grundvallaratriðum er heilbrigðisþjón- ustan þó upplýsingakerfi. Fáfróðum lækni mundi lítið gagna í starfi sínu að auka húsnæði um helming eða fullkomna tækja- búnað. Hins vegar getur læknir sem hef- ur yfir að ráða góðum upplýsingum um sjúklinginn og um möguleika læknisfræð- innar á viðkomandi sviði unnið sitt verk furðu vel við óhagstæð skilyrði. 1.2. Geymd þekking — undirstaða skyn- samlegra ákvarðana Ákvarðanir um söfnun frekari upplýs- inga eða um beitingu ákveðinnar meðferð- ar eru byggðar á upplýsingum frá fortíð og um núverandi ástand viðkomandi sjúkl- ings, svo og á þeirri reynslu sem til er
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.