Læknablaðið - 01.12.1976, Page 15
Á meðfylgjandi myndum má sjá kost þess að nota
Ljósmyndir af sniðum úr striatum látins fólks sýna
mismunandi dopaminmagn, sem mismikla fluor-
iseringu við dimman bakgrunn, Hinir lýsandi hvítu
flekkir koma vegna fluoriser'ngarfráfituútfellingum.
Myndirnar eru látnar í tó af Constantinidis og sam-
verkamönnum hans. Rannsóknaraðferðinni er lýst
í ritgerð þeirra1.
Heilbrigö manneskja til
samanburöar: Mikil dop-
aminfluorisering.
Parkinsons sjúklingur án
meðferðar: Lítil fluorisering
Parkinsons sjúklingur stilltur inn á
árangursríkasta skammt af
L-dopa: Greinileg fluorisering.
Parkinsons sjúklingur
stilltur inn á
árangursríkasta skammt
af <Madopar>: Sterk
fluorisering, næstum
eins og hjá heilbrigðri
manneskju.
Þessar myndir styðja það álit, sem læknar hafa fengið á <Madopar> við meðferð á parkinsonsveiki
<Madopar> er kjörlyf læknisins við meðferð á parkinsonsveiki
Heimild:
1. Constantinidis, J., Siegfried, J., Friggesi,T. L., Tissot, R.: Parkinson’s Disease and Striatal Dopamine
tvidence for the Presence of Dopamine in the Human Brain. J. Neur. Transmiss. 35.13-22 (1974).
Lyfið er skráð með eftirgreindum skilmálum.
Ábendingar:
Parkinsonsveiki og parkinsonslík sjúkdómseinkenni, önnur en
af völdum lyfja.
Frábendingar:
Varast ber að nota lyfið, ef um alvarlega hjarta-, nýrna-eða
lifrarsjúkdóma er að ræða. Lyfið ber einnig að nota með varúö,
ef um geðsjúkdóma er að ræða. Lyfið skyldi ekki gefa með
mónóamínoxídasablokkurum, og rétt er að hætta gjöf lyfsins
2—3 dögum fyrir skurðaðgerð. Við bráðar skurðaðgerðir er
ráðlegt að nota hvorki halótan né cýklóprópan.
Aukaverkanir:
Blóðþrýstingslækkun í uppréttri stöðu, klígja, lystarleysi og
uppsala. Aukaverkanir þessar eru venjulega mestar í byrjun.
Svefnleysi hyperkinesia og sjaldnar geðdeyfð, koma fyrir.
Alvarlegasta aukaverkun eftir lyfið er dyskinesia, þar á meðal
chorea-líkar og athetosis-líkar hreyfingar, er einkum koma
eftir langvarandi gjöf lyfsins Allar þessar aukaverkanir eru
háðar skammtastærð og hverfa eða minnka, ef dregið er úr
skömmtum. Adrenerg lyf (efedrín o. fl.) má gefa meó lyfinu til
þess aö hamla blóðþrýstingslækkun, en hafa verður hugfast,
að um samverkandi verkun gæti að öðru leyti verið'að ræða.
Skammtastærðir handa fullorðnum:
Venjulega er byrjaö á því aö gefa 125 mg hylki þrisvar sinnum
a dag. Dagsskammtur er síðan aukinn um 125 mg með viku
bili eða oftar. Fullur lækningalegur skammtur liggur oft á bilinu
'2g á dag, en getur í vissum tilvikum verið allmiklu meiri.
Skammtastærðir handa börnum:
Lyfió er ekki ætlað börnum.
Lyfið skal vera lyfseðilsskylt og vera merkt A í lyfjaskrám.
Lyfið verður greitt af sjúkrasamlögum miðaó við merkinquna
B í lyfjaskrám.
Lyfió skal vera í 20. flokki bókarinnar Lyf á (slandi.
Nánari upplýsingar eru á fylgiseðli.
<Madopar> er skráð vörumerki.
F.Hoffmann-La Roche &Co. A.G.,
Basel, Sviss
Einkaumboð á íslandi:
£tetfáh TkcrarehMh h.fi
Laugavegi 16, Reykjavík, S. 50402