Læknablaðið - 01.06.1977, Page 35
LÆKNABLAÐIÐ
101
Mynd 1. — Fjöldi brota eftir aldursflokk-
um og kyni.
TAFLA I
Meðalaldur sjúklinganna
Kyn Sjúklingafjöldi Meðalaldur
Kor.ur 110 72,3 ár
Karlar 30 63,3 ár
Alls 140 70,8 ár
Hér á eftir verður fyrst og fremst fjall-
að um þá 104 sjúklinga, sem tóku þátt í
könnuninni.
Áverki
Algengast var, að sjúklingarnir brytu
sig við að detta á gólfi, úeima ihjá sér eða á
götu. Nokkrir duttu í stiga, af hjóli eða í
straetisvagni. Einstaka höfðu orðið fyrir bíl
eða hjólhesti.
Flokkun brota
Hingað til hefur fractura colli femoris
verið notað sem samheiti yfir öll brotin,
en röntgenologiskt var brotunum skipt nið-
ur í 2 aðalflokka og sú flokkun er notuð
hér á eftir (frekari flokkun innan sviga).
1. Fractura colli femoris (medialis, sub-
capitalis, transcervicalis, lateralis og in-
carcerata).
2. Fractura pertrochanterica femoris (in-
tertrochanterica, transtrochanterica,
subtrochanterica, comminuta, incom-
pleta).
TAFLA II
Flokkun brota
Konur Karlar Alls
Fractura colli femoris 45 8 53
Fractura perthroohan- terica femoris 40 11 51
Alls höfðu 53 sjúklingar, 45 konur og 8
karlar brotið sjálfan lærbeinshálsinn, og
voru 11 þessara brota innkýld. Fractura
pertrochanterica höfðu alls 51 sjúklingur
hlotið, þ.e.a.s. 40 konur og 11 karlar. Sjá
töflu II. Ein konan í síðast nefnda hópnum
hafði 37 árum áður fengið fractura colli
femoris medialis sömu megin og upp úr
því mikla slitgigt í mjöðmina. 10 sjúkling-
ar, 8 konur og 2 karlar höfðu hlotið mjaðm-
arbrot á hinum ganglimnum, þar af 5 áð-
ur, 3 á tímabilinu 1971—1972 og 2 eftir
1972.
Skurðaðferðir
Af 104 gefckst alls 91 sjúklingur undir
skurðaðgerð í svæfingu. Algengustu að-
gerðir voru osteosysthesis ad modum Mc
Laughlin og operatio alloplastica ad
modum Moore. Aðrar aðgerðir voru sömu-
leiðis framkvæmdar, sjá nánar í töflu III.
í stórum dráttum var Moore endoprotesa
notuð við collum brot, sérstaklega subcapti-
tal og medial brot, en osteosynthesis a.m.
Mc Laughlin við pertrochanter brot.
TAFLA III
Skurðaðgerðir og meðferð
Meðferð
Konur Karlar Alls
Osteosynthesis a.m.
Mc Laughin 41-þl 10 52
Operatio alloplastica
a.m. Moore 27-f-l 6 34
Disa nagli 6 3 9
Smith Petersen nagli 3 0 3
Hubbard skinna 4 15
Sven Johanson nagli 1 0 1
„Sliding nail“ 0 11
,,Konservativ“ meðferð 14-2 1 13
Skýring: Fjöldi skurðaðgerða 105 fjöldi
sjúklinga 91. 10 sjúklingar gengust undir
2 aðgerðir, 1 undir 3 og 2 sjúklingar, sem
fengu „konservativa" meðferð í upphafi
gengust síðar undir aðgerð.