Læknablaðið - 01.06.1977, Page 43
LÆKNABLAÐIÐ
105
Ef sjúklingur var í góðu lí'kamlegu á-
standi, hafði jákvætt viðhorf til 'þjálfunar
og skurðaðgerð tókst vel, mátti að jafnaði
vænta góðs árangurs. Ef eitthvað af þessu
gekk úr skorðum, gat árangri af þjálfun og
endurhæfingu brugðið til beggja vona. Sé
allt tekið með í reikninginn, hefur maður
e.t.v. leyfi til að vera ánægður með árang-
urinn. Það er þó vitað mál, að margir
þeirra sjúklinga, sem hafa útskrifazt til
heimila sinna, eru á takmörkum þess að
vera sjálfbjarga og endurinnlagning vofir
yfir þeim. Auk þess er þessu fólki hætt við
síðbúnum fylgikvillum í brotnu mjöðm-
inni. Þegar umræddir sjúklingar útskrif-
ast af endurhæfingardeild, er ekki gert ráð
fyrir þeim meir og þeir hafa engan aðgang
að göngudeildum spítalans. Höfundur álít-
ur, að ef þessir sjúklingar hefðu möguleika
á að fá eftirlit og jafnvel í sumum tilfell-
um viðhaldsþjálfun og mættu eftir þörfum
snúa sér til þeirra, sem hafa meðhöndlað
þá áður við brotinu, væri að öllum likind-
um hægt að koma í veg fyrir ó'hóflega og
óæskilega neyzlu lyfja, einkum verkja-
lyfja, og marga endurinnlagningu, sömu-
leiðis mætti hindra, að sá árangur, sem
náðst hefur, fari forgörðum.
SAMANTEKT
Könnunin nær til 104 sjúklinga, 85
kvenna og 19 karla, sem á tímabilinu 1971
—1972 fengu mjaðmarbrot og voru þjálf-
aðir á Rudolph Berghs spítala á endur-
hæfingardeild, sem til'heyrir Kommune-
hospitalet í Kaupmanna'höfn. Athugunar-
tíminn var að meðaltali tæp 2 ár. Sjúkling-
arnir voru upprunalega 140 að tölu, en 20%
voru látin, er könnun fór fram. Meðalald-
ur þessara 140 sjúklinga var 70,8 ár. Úr-
vinnsla efnis nær yfir aldur, kyndreifingu,
áverka, flokkun brota, skurðaðgerðir, fylgi-
kvilla, samtíma sjúkdóma og endurhæf-
ingu. Niðurstöður greina frá færni með
tilliti til sjálfbjarga og göngu'hæfni auk
staðsetningar viðkomandi á heimili eða
stofnun.
HEIMILDIR
1. Boyd, J. & Burke, J. F. & Colton, T.: A
double-blind clinical trial of prophylactic
antibiotics in hip fractures. J BONE JOINT
SURG (AM) 55:1251-8, 1973.
2. Ewarts, C. M.: Clinical orthopaedics and
related researeh. J. B. Lippincott company,
U.S.A., 1973.
3. Fahlström, G & Öhman, U. & L. E. & Back-
man, L. E. & Björkegren, N. A.: Instramus-
cular heparin in femoral neck fracture: Re-
duced incidence of avascular necrosis. ACTA
CHIR SCAND. 137:227-231, 1971.
4. Hunter, G. A.: A further comparison of the
use of internal fixation and prosthetic re-
placement for fresh fractures of the neck of
the femur. BR J. SURG. 61:382-384, 1974.
5. Ibsen, B.: Necrosis capitis femoris. Ejnar
Munkgaards Forlag, Kobenhavn 1973.
6. Nyrvold, H. E. & Persson, J. E. & Svensson,
B. & Wallensten, S. & Vikterlöf, K. J.: Pre-
vention of thrombo-embolisme with dextran
70 and heparin in patients with femoral neck
fractures. ACTA CHIR SCAND. 139:609-616,
1973.
7. Nilsson, B. E.: Conditions contributing to
fracture of the femoral neck. ACTA CHIR
SCAND. 136:383-384, 1970.
8. Raine, G.E.T.: A comparison of internal
fixation and prosthetic replacement for re-
cent displaced subcapital fractures of the
neck of the femur. INJURY 5:25-29, 1973.
9. Riska, E. B.: Factors influencing the pri-
mary mortality in the treatment of hip
fractures. INJURY 2:107-115, 1970.