Læknablaðið - 01.06.1977, Side 65
LÆKNABLAÐIÐ
117
nánd milli sjúkrahúsa og heilsugæzlustöðv-
ar er því nauðsynleg.
Bráðalækningar og reynsla á því sviði
er og nauðsynleg sem stöðugur þáttur
námsreynslunnar.
Langtímameðferð á fjölskyldum þarf að
hefjast sem fyrst. Nútímalæknar fái því
strax að bera ábyrgð á vissum fjölskyldum
og stofni til tengsla við heimilislækni
þeirra, sem verður þeirra umsjónarkenn-
ari (tutor, stjúplæknir).
VI. 4. Námsferill. Fög og mikilvægi þeirra
Ströng niðurröðun faga verður ekki gerð
hér. Taka ber mið af víðum markmiðum í
svipuðu formi og nefnt er að ofan og í út-
færslu skýrimyndar (V. 2. g).
1 ár 2 ár 3 ár 4 ár
A: 75 60 40 20 = 195/400
B: 20 35 55 75 = 185/400
C: 5 5 5 5 = 20/400
(IC: -Slysadeild, polyklinik, bæjarvaktir)
Gert er ráð fyrir valmöguleikum 10% =
40/400, sem s’kiptast
25 á A = 195-25/400 = 170/400
15 á B = 185-15/400 = 170/400
Námstíminn allur er 44 mán.
A hluti skiptist í höfuðgreinar (A = 100).
I. Lyflækningar og sérfög
t.d. öldrunarlækningar
Augnlækningar
Húð- og kynsjúkdómar
Taugas j úkdómar
II. Barnalækningar
HNE-lækningar
III. Kvensjúkdómar
Fæðingarhjálp
IV. Geðlæknisfræði }
V. Bæklunarlækningar
Orku- og endurhæfingar-
lækningar
VI. Skurðlækningar
Svæfingar
Hlutfall spítalaþjálfunar, A, og þjálfun-
ar á heilsugæzlustöðvum, B, má þannig
raða eftir árum (1 ár er 100%):
Sveigjanleiki innan hverrar blokkar er
nauðsynlegur, en þó ber að setja vissan
skyldutíma fyrir hverja megingrein (t.d.
lyflækningar, barnalækningar og bæklun-
arlækningar).
B hluti. Eiginleikar heimilislækninga, at-
ferlis- og félagsfræði o.s.frv. eigi sér stað
með kliniskri reynslu (umsjá sjúklinga
undir eftirliti stjúplæknis). A.rn.k. 3 mán.
þessa hluta sé varið á heilsugæzlustöð í
dreifbýli.
Hluti A/B getur verið breytilegur eftir
áhuga og þörfum námslæknis.
C hluti. Polyklinisk reynsla eigi sér stað
jafnt í gegnum allt námið með reglulegri
ástundun (vaktir).
D hluti. 5 mán. alls að frjálsu vali.
Skipulögð kennsla (fyrirlestrar, seminör)
eigi sér sífellt stað fyrir alla, hvar í náms-
ferli, sem þeir eru staddir. Miðist hún við
kröfur marklýsingar.
40 = (68/400) = 7,5 mán. (7.5)
15 = (25.5/400) = 3 mán. (2.8)
10 = (17/400) = 2 mán. (1.9)
10 = (17/400) = 2 mán. (1.9)
10 = (17/400) = 2 mán. (1.9)
15 = (25.5/400) = 3 mán. (2.8)
100 = (17/400) = 19,5 mán.(18.8)