Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 68

Læknablaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 68
120 LÆKNABLAÐIÐ atriði hinnar þrengri marklýsingar að ákveðnu marki. Feli það einnig í sér á- kveðna þátttöku í rannsóknarstarfi og samningu a.m.k. einnar vísindagreinar. Stefna ber þó að því, að náminu ljúki með prófi, ef samvinna tekst um fram- kvæmd þess við erlenda aðila, er reynslu 'hafa af gerð slíkra prófa. Umsögn námsstjóra samkvæmt ofan- greindu veiti heimild til að taka prófið. Prófið sé þá forsenda sérfræðiviðurkenn- ingar. Heimilislækninganefnd sjái um fram- kvæmd prófs. Heimild til próftöku geta einnig fengið læknar með annan undirbúning en náms- brautina, samkvæmt á'kvörðun heimilis- lækninganefndar. VII. FJÖLDI NÁMSMANNA OG FJÁRMÖGNUN Gert er ráð fyrir, að námsbrautin rúmi a.m.k. 5 námslækna á ári hverju. Með þeim fjölda er áætlað, að 15—20 ár taki að fullnægja þörf landsmanna fyrir heimilis- lækna. Það er álit okkar, að áformum náms- skrár megi ná með eftirfarandi fjármögn- unarmátum, einum í senn eða blönduðum. Er þá tekið tillit til tveggja meginþarfa: Að umbuna kennslulæknum fyrir starf sitt (bæði að bæta tekjumissinn, sem hlýzt af kennslukvöð og að meta kennsluskyldu, sem starfsframa). Að veita námslæknum viðunandi kjör. Augljóst er, að framhaldsmenntun í heimilislækningum innanlands hlýtur að leiða af sér kostnað, eins og menntun í öðrum greinum. Greiðist sá kostnaður af ríkissjóði í formi kennslulauna, stofnkostn- aður á sviði tækja og bókakosts, reksturs- kostnaðar og launagreiðslna til lækna í námsstöðum. 1. Valkostir á sjúkrahúsum a) Stöður á deildum séu heilar stöð- ur, en stundaðar af fleirum en einum námslækni (2 í 1 stöðu = Vi staða hvor eða 3 í 2 stöðum = % staða hver). b) Hlutastöður. Þarf þá að skilgreina skyldustörf sérstaklega. a) og b) ættu helzt að vera sérstakar stöður fyrir námslækna í heimilislæikning- um og á kennsla að taka mið af því. c) Venjuleg námsstaða, þ.e. án sér- áherzlu. Aðeins möguleikar í stuttan tíma í senn. 2. Valkostir á heilsugæzlustöðvum a) Námslæknar starfi í föstum aðstoðar- læknisstöðum á heilsugæzlustöð, gjarnan eftir eyktafyrirkomulagi, er taki mið af hlutastöðum á sjúkrahúsum hverju sinni, þannig að samanlagt verði út 1/1 staða. Er þá gert ráð fyrir, að hann sinni ákveðnum hluta sjúklingahóps stjúp- læknis síns, sem fái greiðslurnar fyrir verkin. Teldist sú greiðsla uppbót fyrir vinnutap, sem kennsluskyldan veldur. Er þá litið á hina föstu greiðslu til náms- læknisins sem hinn eiginlega kennslukostn- að (þ.e. engin sérgreiðsla til kennarans). Sjúklingahópur stjúplæknis helzt óbreytt- ur að stærð. b) Stjúplæknir fái aukaþóknun fyrir kennsluna, en námslæknir greiðslu fyrir hvert unnið læknisverk. Sjúklingahópur stjúplæknis héldist óbreyttur að stærð eða yrði aukinn, eftir því sem reynslan sýndi hagkvæmara. Það er mat okkar, að þessi aðferð sé óhentugri en a) vegna óstöðugra kjara beggja aðila og jafnvel launatogstreitu, sem hindrað gæti bæði kennslu- og náms- viðleitni beggja aðila. c) Heildarsjúklingamagn stöðva yrði aukið. Námslæknar fengju greitt fyrir hvert verk upp að vissu marki (,,þaki“), er færi eftir hlutatekjum annars staðar. Greiðsla fyrir umframverk rynni til stjúp- iæknis. Aðalkostur: Meiri sjúklingaefniviður og skipti á honum fyrir hendi (sjá VI. 8.). Allir ofangreindir kostir gera ráð fyrir greiðslum fyrir unnin verk, sem er sá greiðslumáti, er ríkja mun á heilsugæzlu- stöðvum. Mat á námsstöðum fari fram eftir sama kerfi og nú ríkir um starfsmat (5 stig). Heimilislækninganefnd hagi námsbraut eftir megni þannig, að starfstillag náms- læknis nýtist hverri stofnun sem bezt. VIII. VIÐHALDSMENNTUN Ýmis heimilislæknafélög hafa haft hug-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.