Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2007, Page 8
fimmtudagur 15. mars 20078 Fréttir DV
Tugmilljarða arður
Það er gott að eiga hlutabréf í fjármálafyrirtækjum. Hluthafar sem eiga hlut í fyrirtækj-
um í Kauphöllinni fá greidda 64 milljarða króna í arð vegna hagnaðar á síðasta ári. Þar
af eru 62 milljarðar vegna fjármálafyrirtækja. SPRON er ekki í Kauphöllinni en greiðir
8,9 milljarða í arð. Styr stóð um fyrirtækið fyrir nokkrum árum og reyndu stjórnmála-
menn að setja skorður við völd stofnfjáreigenda. Reynslan sýnir að engin hlið eða veggir
halda aftur af gullkálfinum segir Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Fjármálafyrirtæki landsins skera sig
úr þegar kemur að arðgreiðslum til
hluthafa. Nær allur arður sem hlut-
hafar fyrirtækja í Kauphöllinni fá
vegna rekstrar síðasta árs er vegna
fjármálafyrirtækja. Eina fyrirtækið
sem greiðir meira en milljarð í arð og
er ekki fjármálafyrirtæki er Bakkavör.
Arðgreiðslur þess nema 1.100 millj-
ónum króna, 14 milljörðum minna
en FL Group, það fjármálafyrirtæki
sem greiðir hæstan arð.
Hluthafar FL Group hafa ástæðu
til að gleðjast þessa dagana. Þeir fá
greidda samanlagt fimmtán millj-
arða króna eftir þrjár vikur. Þá greið-
ir félagið út arð til hluthafa vegna
hagnaðar félagsins á síðasta ári sem
er sá mesti í sögu FL Group. Félagið
skilaði ekki mestum hagnaði á síð-
asta ári, það gerði Kaupþing, en arð-
greiðslur FL Group eru meiri en hjá
nokkru öðru félagi.
Fimmtán milljarða arðgreiðsla FL
Group er rúmum fjórum milljörð-
um krónum hærri en arðurinn sem
Exista greiðir til sinna hluthafa. Arð-
greiðslan er jafnframt tæpum fimm
milljörðum króna hærri en sú sem
Kaupþing, verðmætasta fyrirtæki
landsins, greiðir í arð til sinna hlut-
hafa.
Fjármálafyrirtæki í sérflokki
Fjármálafyrirtækin skiluðu mest-
um hagnaði á síðasta ári og þau
greiða mestan arð til hluthafa sinna.
Arðgreiðslur fyrirtækja í Kauphöll-
inni nema 64 milljörðum króna.
Þar af eru 62 milljarðar vegna fjár-
málafyrirtækja. Eina framleiðslufyr-
irtækið í Kauphöllinni sem kemst
inn á lista yfir þau tíu fyrirtæki sem
greiða hæstan arð er Bakkavör. Arð-
ur Bakkavarar á síðasta ári nemur
1,1 milljarði króna, 100 milljónum
króna meira en það fjármálafyrirtæki
í Kauphöllinni sem greiðir lægst-
an arð til hluthafa. Það fyrirtæki er
Tryggingamiðstöðin.
Sem fyrr segir greiðir FL Group
mestan arð og síðan koma Exista og
Kaupþing. Á fætur þeirra koma Glitn-
ir, Straumur Burðarás og Landsbank-
inn. SPRON kemst reyndar þarna
upp á milli, næst á eftir Glitni en er
ekki skráð í Kauphöll enda sjálfs-
eignarstofnun en ekki hlutafélag.
Meira um það síðar.
Allnokkur fyrirtæki greiða engan
arð. Þeirra á meðal eru nokkur fyr-
irtæki þar sem ákveðið var að greiða
ekki út arð heldur nota hagnað til að
auka eigið fé fyrirtækisins, þeirra á
meðal má nefna Össur og Icelandair.
Önnur fyrirtæki voru rekin með tapi
og því ekki greiddur neinn arður. Þar
má nefna Teymi og 365 sem áður
voru eitt félag og Icelandic.
Gróði stofnfjáreigenda
Meðal þeirra fyrirtækja sem
greiða út mestan arð er SPRON. Þetta
byggir á þeirri breytingu sem orðið
hefur á starfsemi sjóðsins á fáeinum
árum. Miklar deilur risu um tilraunir
stofnfjárhafa til að ná auknum völd-
um í sjóðinum fyrir nokkrum árum.
Þá var málið rætt á þingi og lög sam-
þykkt til að koma í veg fyrir að þetta.
Ekki dugði það þó til að koma í veg
fyrir breytingar á rekstrinum og að
stofnfjárhafar næðu eigin fé sjóð-
anna undir sig.
Nú greiðir SPRON út 8,9 millj-
BrynjóLFur Þór Guðmundsson
blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is
ARÐGREIÐSLUR 21 FYRIRTÆKIS
Allar tölur gefnar upp í milljörðum króna
Enn er óljóst með arðgreiðslur Alfesca, Atlantic Petroleum og Mosaic
15,0
10,8
10,4
9,4
8,9
7,8
4,4
3,4
1,1 1,0
0,5
0,1 0,1 0,03 0,00 0,00 0,00 0,00 0,00 0,00 0,00
FL Group
Exista
Kaupþing
Glitnir
Spron
Straumur Burðarás
Landsbanki
Atorka
Bakkavör
Tryggingamiðstöðin
Vinnslustöðin
Marel
Nýherji
Sláturfélag Suðurlands
Actavis
Eimskip
Icelandair
Icelandic
Teymi
Össur
365
Bakkavararbræður
Lýður og Ægir guðmundssynir fá
sjö og hálfan milljarða króna í
arðgreiðslur vegna eignar sinnar í
Exista, Kaupþingi og Bakkavör.