Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2007, Blaðsíða 11
Forseti Palestínu, Mahmoud
Abbas og forsætisráðherrann Ismail
Haniyeh samþykktu í gær að bera til-
lögu sína að samsteypustjórn Hamas
og Fatah undir atkvæði þingmanna á
laugardaginn. Uppröðun ráðherra-
embætta verður birt síðar í dag. Ef
allt gengur að óskum bindur þetta
enda á viðskiptaþvinganir sem Pal-
estínumenn hafa sætt frá því að ríkis-
stjórn Hamas tók við völdum. Einn-
ig vonast menn til að ofbeldi linni
milli Fatah og Hamas, þó svo að hinir
svartsýnu trúi því að hvorugt mark-
miðið muni nást.
Ísrael setur skilyrði
Ísraelsk stjórnvöld ætla að hunsa
þjóðstjórnina ef hún uppfyllir ekki
þau ákveðin skilyrði: ofbeldi verð-
ur að linna, Hamas verður að viður-
kenna Ísraelsríki og stjórnin verður
að samþykkja bráðabirgðafriðarsam-
komulag. Jafnvel þó að helmingur
ráðherranna sé úr röðum Fatah ætl-
ar Ísrael að sniðganga alla stjórnina
nema skilyrðunum sé fullnægt og
Bandaríkjamenn segja að viðskipta-
þvingununum verði ekki aflétt fyrr
en kröfum sé mætt.
Mesti ásteytingarsteinninn í við-
ræðum Hamas og Fatah hefur verið
að komast að niðurstöðu um hver
myndi fá ráðuneyti innanríkismála.
Sá póstur er ákaflega áhrifamikill þar
sem undir hann heyra leyniþjónusta
Palestínumanna og öryggissveitir.
Samkvæmt stjórnarsáttmálanum,
sem undirritaður var í Mekka í síð-
asta mánuði ræður Hamas því hver
gegnir embætti innanríkisráðherra
en Abbas, leiðtogi Fatah, hefur neit-
unarvald.
Slá ofbeldinu á frest
Stjórnarsáttmálinn inniheld-
ur vítt og loðið ákvæði um að fyrri
samningar milli Ísraels og Palestínu
skuli „virtir.“ Þar er hins vegar ekki
kveðið fast á um að stjórnin skuld-
bindi sig til að hlíta samningunum,
né að hún muni viðurkenna Ísrael
eða hafna ofbeldi, eins og kveðið var
á um í samningum milli landanna
tveggja og þeirra aðila sem þátt tóku
í friðarferlinu: Bandaríkjanna, ESB,
SÞ og Rússlands.
Sérstakur ráðgjafi Haniyehs, Ah-
med Youssef, sagði að fylkingin
gæti hugsanlega verið reiðubúin að
hverfa frá „vopnaðri andspyrnu“ til
að fylgja pólitískum leiðum að mark-
miðum sínum gagnvart Ísrael. Í sam-
tali við blaðið Asharq Al-Awsat sagði
hann að Hamas gæti hugsanlega
breytt um hugmyndafræði á næst-
unni: „Við skulum reyna að ná okk-
ar eftir diplómatískum leiðum og ef
við náum ekki okkar markmiðum
þannig, þá getum við alltaf tekið upp
vopnin á ný.“ herdis@dv.is
DV Fréttir fimmtudagur 15. mars 2007 11
kerfinu sem myndi koma niður á
löndunum þar sem velferðarkerf-
ið er öflugast. Hún segir sjö til átta
aðildarlönd vonast eftir reglugerð
sem verndi heilbrigðiskerfi land-
anna fyrir frjálsum flutningi sjúk-
linga þótt það stríði í raun gegn
grunngildum sambandsins.
Mismunandi kerfi í ná-
grannaríkjunum
Flutningur sjúklinga á milli
landa er ekki nýr af nálinni. Til
að mynda hafa belgískir læknar
undanfarin ár gert aðgerðir á Hol-
lendingum á spítala við landa-
mærin. Biðtíminn eftir þessum
ákveðnu aðgerðum er mjög lang-
ur í Hollandi en þar sem læknar
starfa sjálfstætt í Belgíu geta þeir
leigt skurðstofur á sjúkrahúsinu
til að sinna þessum útlensku sjúk-
lingum. Yfirmaður sjúkrahússins
segir sjúklinga af fleiri þjóðern-
um hafa leitað eftir aðgerðum þar,
en í dag eru útlendingar um fimm
prósent af heildarfjölda sjúklinga.
Hann áréttar þó að heimamenn
njóti forgangs.
Það er ljóst að væntanleg-
ar tillögur framkvæmdastjórn-
ar Evrópusambandsins gætu haft
mikil áhrif á heilbrigðiskerfi aðild-
arlandanna og fallið í misgóðan
jarðveg hjá stjórnmálamönnum.
kristjan@dv.is
Ástæða lækkandi fæðingartíðni í Japan fundin:
Þriðjungur para sefur ekki hjá
Röð hamfara á Madagaskar
Hitabeltisstormurinn Indlala gengur
á land á Madagaskar í dag.
Yfirvöld og almenningur á eyjunni
eru enn í sárum eftir röð náttúru-
hamfara á undanförnum vikum. Stór
hluti af eyjunni hefur skaðast mikið
í flóðum eftir hamfararigningar á
meðan uppskeran í suðurhluta eyj-
unnar hefur nærri öll misfarist vegna
þurrka. Hjálparstofnanir eiga fullt í
fangi með að brauðfæða fólk í suður-
hlutanum um leið og fólk á norðvest-
ur- og vesturhlutanum þarf að flýja
heimili sín.
100 skólum lokað
Héraðsyfirvöld á austurhluta Sri
Lanka, þar sem hvað harðast er bar-
ist, segja að um hundrað skólar séu
nú lokaðir og skólahald liggi niðri.
Mörgum þeirra hafi verið breytt í
flóttamannabúðir.
Þar sem skólahald heldur áfram
segja kennarar að foreldrar séu tregir
að fara með börn sín í skólann, vegna
þess að þeir óttist eldflaugaárásir.
Flugher stjórnvalda hélt loftárás-
um á grunuð skotmörk Tamíltígra til
streitu þriðja daginn í röð í gær.
Sveiflur á verði hlutabréfa
Töluvert dró úr lækkunum á hluta-
bréfaverði í Bandaríkjunum í gær en
lækkunin í Evrópu og Asíu var öllu
meiri. Á þriðjudag tók verðið dýfu
niður á við í Bandaríkjunum og var
lækkunin sú næst mesta á einum
degi á þessu ári. Hafði það áhrif
á fjárfesta í Asíu og Evrópu í gær.
Þannig lækkaði verð í kauphöllinni í
Japan um tæp þrjú prósent en um 1,7
prósent í London. Sérfræðingar segja
líklegt að verð haldi áfram að sveifl-
ast eftir miklar hækkanir í byrjun árs.
Sjúklingur Nýjar reglur
Evrópusambandsins gætu
stóraukið flutning sjúklinga
milli landa sambandsins í
óþökk margra aðildarríkjanna.
Greiða atkvæði um tillögu að nýrri samsteypustjórn:
Kosið um nýja stjórn í Palestínu
Haniyeh og Abbas Þó að þjóðstjórnin sé komin á koppinn eru enn nokkur stór ljón
í veginum áður en friður næst fyrir botni miðjarðarhafs.
Japanir geta hætt að klóra sér í
hausnum yfir því hversu lág fæð-
ingatíðnin er í landinu. Ástæðan fyr-
ir því er einfaldlega sú að tæp þrjátíu
og fimm prósent japanskra para hef-
ur ekki gefið sér tíma til að njóta ásta
með maka sínum undanfarnar fjór-
ar vikur. Þetta eru niðurstöður nýrr-
ar könnunar japanskra stjórnvalda
á ástarlífi landsmanna sem sagt var
frá í The Times í gær. Fæðingartíðni í
landinu er nú 1,25 sem er langt und-
ir því sem hún þyrfti að vera til að
halda þjóðinni við.
Of mikið vinnuálag og löng
ferðalög í og úr vinnu eru sögð
helsta ástæðan fyrir áhugaleysi
Japana á kynlífi. Því þeir eru ein-
faldlega of þreyttir þegar heim er
komið á kvöldin og nýta svo helg-
arnar í að bæta sér upp lítinn svefn
í vikunni. Einnig verja margir frí-
tíma sínum í skemmtanir með vin-
um og vinnufélögum í staðinn fyrir
rómantískar stundir með makan-
um. Þunnir veggir japanskra íbúða
eru ekki til að bæta úr skák.
Niðurstöður könnunarinnar
koma reyndar ekki á óvart. Enda
hafa alþjóðlegar rannsóknir sýnt
fram á að Japanir standast öðrum
þjóðum heims ekki snúning þeg-
ar kemur að bólförum. Til dæm-
is sýndi bandarísk könnun fram á
að Japanir eru sú þjóð sem telur sig
minnst fullnægða kynferðislega og
samkvæmt rannsókn smokkafram-
leiðslufyrirtækis gera Japanir það
þjóða sjaldnast, eða fjörtíu og fimm
sinnum á ári. Meðaltalið á heims-
vísu er rétt yfir hundrað skiptum.
Fólksmergð í Tokyo Ys og þys japanskra stórborga dregur úr kyngetu íbúanna
SjúKlingaR geta flúið
biðliSta heiMalandSinS