Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2007, Page 14
„Fólk er farið að átta sig á að það stendur ekki til að
gera neitt,“ sagði Einar Hreinsson, sjávarútvegsfræðing-
ur á Ísafirði, í samtali við undirritaðan í vikunni. Hann
var meðal frummælenda á borgarafundi um alvarlega
þróun atvinnumála vestra síðastliðinn sunnudag.
„Ég satt að segja fékk kökk í hálsinn hvað eftir ann-
að þegar ég hlustaði á fólkið. Það er alveg hörmulegt að
vita hvernig komið er,“ sagði Anna Kristín Gunnarsdótt-
ir, þingmaður Samfylkingarinnar, en hún sat borgara-
fundinn.
Einar Oddur: „Byggðamál í skötulíki”
Í þessu ljósi er forvitnilegt að heyra einn reyndasta
þingmann Sjálfstæðisflokksins, Einar Odd Kristjáns-
son, viðurkenna að byggðastefna stjórnarflokkanna sé
í skötulíki. Í samtali við Morgunhanann síðastliðinn
mánudag sagði Einar Oddur orðrétt:
„Við skulum ekkert vera að þræta fyrir það að bein-
ar pólitískar aðgerðir í
byggðamálum hafa verið í
ákaflega miklu skötulíki í
þó nokkuð mörg ár. Og því miður hefur mjög margt af
því misheppnast og miklu minni áhersla er lögð á þá
hluti heldur en fyrr var gert. Ég hef gagnrýnt það mjög
harkalega og mjög lengi og tel það hin mestu mistök
okkar þegar Byggðastofnun var færð frá forsætisráðu-
neytinu yfir í iðnaðarráðuneytið. Hins vegar er það rétt
að það er hægt að nota miklu sértækari aðgerðir til þess
að treysta einstaka byggðir heldur en hefur verið gert.“
Ég sé fyrir mér Einar Odd frá Flateyri fara yfir þetta
með Valgerði Sverrisdóttur, sem fór með byggðamál-
efnin í ríkisstjórninni til skamms tíma. En ber ekki ríkis-
stjórnin öll ábyrgð?
Þótt meginskýring vandans blasi við öllu skynsömu
fólki er eins og stjórnarliðum og sérhagsmunagæslunni
í landinu takist bærilega vel að þagga niður tilraunir til
að fjalla um hana. Kannski er það sektarkenndin yfir
ákvörðunum og tómlæti fyrri ára sem plagar.
Lýsingarnar eru sláandi. Vestfirðingur hringir í Magn-
ús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum, og segir að
út úr byggðarlagi sínu blæði 400 milljónum króna á ári
vegna kvótaleigu. Það eru miklir peningar.
Kristinn H. Gunnarsson, Frjálslynda flokknum,
skrifar að hvert byggðarlagið á fætur öðru hafi mátt þola
áföll sem hafa riðið yfir eins og brotsjóir í hálfan ann-
an áratug. „Fyrst á Patreksfirði, síðan Bíldudal, Þingeyri,
Suðureyri, Flateyri, Bolungavík, Súðavík, Hólmavík og
Ísafirði. Öll áföllin tengdust sölu kvóta eða gjaldþroti
lykilfyrirtækja og höfðu sömu afleiðingar, atvinna dróst
saman, fólki fækkaði, tekjur lækkuðu, eignir féllu í
verði.“
Einar Guðfinnsson hf.
Tökum heimabæ Kristins sem dæmi. Snemma árs
1993 var fyrirtækið Einar Guðfinnsson hf., burðarás at-
vinnulífs í Bolungarvík, úrskurðað gjaldþrota. Gjald-
þrotið var óumflýjanlegt eftir að Landsbankinn, þá
ríkisbanki, hafnaði bón bæjarstjórnarinnar og forsvars-
manna fyrirtækisins um að fá að leysa til sín skip félag-
ins. Með þeim hætti vildu heimamenn freista þess að
halda 3.419 tonna kvóta í þorskígildum áfram í heima-
byggð. Gangverð þessa kvóta í dag er 6 til 7 milljarðar
króna.
Hvað varð um þennan kvóta? Hver keypti kvótann
af ríkisbankanum og á hvaða verði? Spurt er um verð
vegna þess að, hafi kvótinn verið seldur undir gangverði
má efast um að EG hf hafi í raun verið gjaldþrota.
Þegar þessu vatt fram og örlög Bolungarvíkur voru
í raun í höndum ríkisstjórnarinnar, sem fór með vald-
ið yfir Landsbankanum, hafði Tvíhöfðanefndin svokall-
aða skilað tillögum sínum um framtíð kvótakerfisins.
Þær áttu að koma í veg fyrir 20 ára stríðið sem geisað
hefur æ síðan um kerfið. Tvíhöfðanefndin hafði meðal
annars lagt til við ríkisstjórn Davíðs Oddssonar að veiði-
heimildir yrðu að hluta bundnar vinnslu en ekki aðeins
skipum. Annar tvíhöfðinn, Þröstur Ólafsson, sagði í
samtali við Morgunblaðið 30. apríl 1993: „Niðurstað-
an hjá Einari Guðfinnssyni hf. í Bolungarvík hefði getað
orðið önnur ef komið hefði verið á kerfi veiðiheimilda
handa vinnslustöðvum í landi eins og nefndin leggur til
í skýrslu sinni.“
Það er rétt sem Einar Hreinsson segir, að það hef-
ur ekki staðið til að gera neitt og það hefur í raun Einar
Oddur viðurkennt einnig. Það mátti nefnilega ekki ráð-
ast að rótum vandans, sérhagsmunum innvígðra.
Var það þess vegna sem stjórnarliðar fundu ekki tíma
til að mæta á örlagaríkan borgarafund á Ísafirði síðast-
liðinn sunnudag?
Og því var þögn Fréttablaðsins um borgarafundinn
og raunir Vestfirðinga ærandi fram eftir vikunni? Ekki
stafkrókur! Var Þorsteinn Pálsson ritstjóri með sektar-
kennd frá sjávarútvegsráðherratíð sinni 1991 til 1999?
Svona í leiðinni: Hvar er skýrsla stjórnvalda um jöfn-
un flutningskostnaðar í þágu rekstrar á landsbyggðinni?
Því hefur málið verið ofan í skúffu allt kjörtímabilið?
fimmtudagur 15. mars 200714 Umræða DV
Sæunn Stefánsdóttir, einn af þingmönnum Framsóknarflokks, sagði
í útsendingu Alþingis í gærkvöldi, að hér á landi væri eitt besta velferð-
arkerfi í heimi. Það er ekki lítil fullyrðing falin í þessum orðum þing-
mannsins. Við sem lesum DV vitum að það er margt að sem segir okkur
að þetta getur ekki verið rétt hjá þingmanninum. Nema það gerist þegar
fólk tekur sæti á Alþingi að það dragi fyrir alla glugga og heyri hvorki né
sjái það sem fyrir utan er. Viti bara ekkert af því sem er að gerast, neiti
staðreyndum og krýni sjálft sig til allskyns verðlauna, sem að mati ann-
arra eru versta háð og eru því verðlaus með öllu. Kannski var þingmað-
urinn Sæunn í bestu trú.
DV hefur flutt fréttir af því að fjölskyldur blindra barna hafa neyðst
til að flýja land þar sem aðeins eitt blint barn á Íslandi fær lögbundna
kennslu. Það er þess vegna, ágæti þingmaður, sem fjölskyldur verða
að flytja. Það er vegna þess að Alþingi hirðir ekki um að sjá til þess að
blindir Íslendingar fái þá kennslu sem þeim ber. Þetta dæmi eitt er nóg
til þess að segja þingmanninum Sæunni að hún hafi farið með rangindi
í gærkvöldi. Kannski vissi hún ekki betur, kannski hefur hún ekki dreg-
ið gardínurnar frá, frá því hún fékk sæti á þingi. Sæunn og hinir þing-
mennirnir hafa það eflaust ágætt, en allt það fólk sem skipar Alþingi tók
að sér annað hlutverk en að bulla
um eigið ágæti, þegar allir aðrir sjá
hversu fáránlegur og rangur mál-
flutningur þessa fólks er.
Hvað svíður þá sárast sem voru
vistaðir í helvistinni í Breiðavík? Jú,
menntunarleysið. Það versta var
að ríkið tók af þeim möguleika til
menntunar. Þeir fengu ekki mennt-
un ámóta því sem jafnaldrar þeirra fengu. Þessi staðreynd er sú versta.
Nú ætla þingmenn að halda því fram að hér sé besta velferðarkerfið á
sama tíma og blind börn fá ekki kennslu. Breiðavíkurbörnin fengu ekki
kennslu og nú þurfa fjölskyldur blindra barna að flytja til annarra landa
svo þeirra börn fái kennslu. Verður hávær umræða um menntunar-
leysi blindra eftir nokkur ár? Á Alþingi heitir þetta besta velferðarkerfi
í heimi.
Kannski er ástæða fyrir þingheim að draga betur fyrir gluggana,
hleypa engu lofti inn og hefja alvöru umræðu um eigið ágæti. Eða verður
þingið sökum þess hversu stutt er til kosninga að hlusta aðeins, hlusta á
þá sem bíða þess að sjónstöðin geti tekið tæki úr kössum, tæki sem gef-
in voru til hjálpar blindum börnum. Það vantar tíu fermetra herbergi til
að það verði gerlegt, á að hlusta á þá sem bíða þess að komast í aðgerð-
ir, á að hlusta á þá sem eiga ekki málungi matar, þau börn sem eru svo
fátæk að þau geta ekki keypt sér mat í skólanum og blindu börnin og
foreldra þeirra sem eru að pakka saman og flytja af landinu. Nei, lokið
gluggunum og hamist á hversu vel þið hafið staðið ykkur, besta velferð-
arkerfi í heimi. Til hamingju Alþingi.
Sigurjón M. Egilsson
Til hamingju Alþingi
Nei, lokið gluggunum og
hamist á hversu vel þið
hafið staðið ykkur, besta
velferðarkerfi í heimi.
Til hamingju Alþingi.
Jóhann haukssOn
útvarpsmaður skrifar
Var Þorsteinn Pálsson
ritstjóri með sektarkennd
frá sjávarútvegsráðherra-
tíð sinni 1991 til 1999?
Áramótaræða
forsætisráðherra
Bloggarar voru fljótir að bregðast
við eftir eld-
húsdagsum-
ræður á Alþingi
í gærkvöld og
túlkuðu þær
hver með sínum
hætti. Pétur
Gunnarsson,
fyrrum blaða-
maður og síðar
innanbúðarmaður í Framsóknar-
flokknum, lagði út af ræðu Stein-
gríms J. Sigfússonar, formanns
Vinstri-grænna, og sagði ræðuna
bera merki þess að Steingrímur
vildi láta fólk sjá ábyrga forsætis-
ráðherraefnið, því hafi lítið farið
fyrir púðri en ræðan líkst áramóta-
ræðu forsætisráðherra.
Þorgerður ræðuskörungur
Ræðumaður kvöldsins í eldhús-
dagsumræðunum var Þorgerð-
ur Katrín
Gunnarsdótt-
ir að mati
hægripenn-
ans Stefáns
Friðriks Stef-
ánssonar sem
mærir hana
fyrir öfluga og
skörug-
lega ræðu. Hann segir það sér-
staklega hafa hrifið sig að ræðu
sína byggði menntamálaráðherra
á staðreyndum um það hvernig
stjórnarandstaðan sat hjá í öllum
lykilframfaramálum undanfar-
inna ára. „Þar var mjög vel talið
upp.“
svart hvít tilvera
Þó eldhúsdagsumræður hafi
löngum verið með óvinsælla
sjónvarpsefni
hafði blogg-
arinn Hlyn-
ur Þór Magn-
ússon gaman
af að hlusta á
stóru upplestr-
arkeppnina á
Alþingi og segir
suma geta orðið
frambærilega í Morfís með tíman-
um, í það minnsta vanti ekki þann
eiginleika að sjá tilveruna í svörtu
og hvítu. Hann segir það helst
standa eftir að Jónas Hallgríms-
son hefði að líkindum verið vinstri
grænn og klikkir út með því að
Jón Sigurðsson sé jú framsókn-
armaður.
Sandkorn
Sektarkenndin
kjallari
Hættu að sitja svona og stara stanslaust á mig. Það er ekki
mér að kenna að enginn hringir. Það ert þú sem ert svona
óvinsæll! Ekki ég! Það er ekki ég sem er andfúll og verð alltaf
of fullur og leiðinlegur til að einhver nenni að hlusta.
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að
birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
ÚTgáfufélAg: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STjórnArformAður: Hreinn loftsson frAmkVæmDASTjóri: Hjálmar Blöndal
riTSTjóri og áByrgðArmAður: Sigurjón m. Egilsson
fullTrÚi riTSTjórA: janus Sigurjónsson
fréTTASTjóri: Þröstur Emilsson AuglýSingASTjóri: Auður Húnfjörð
Brautarholti 26 · 105 Reykjavík · 512 7000 · dv@dv.is
DV greiðir 2.500 krónur fyrir þau fréttaskot sem
leiða til frétta. Fyrir besta fréttaskot hverrar viku
eru greiddar 5.000 krónur og 10.000 fyrir besta
fréttaskot mánaðarins.
512 7070
frettaskot@dv.is
Fun ur í miðborgin i
Á 3ju og 4ðu hæð Iðu-hússins eru tveir fallegir
salir. Stærri salurinn tekur allt að 150 manns
og minni salurinn 120 manns. Allur aðbúnaður
og tæknibúnaður er fyrsta flokks; þráðlaus kerfi,
nettengingar og aðstaða fyrir starfsfólk svo
eitthvað sé nefnt.
Lídó er glæsilegur salur á horni Ingólfsstræti og
Hallveigarstíg. Salurinn tekur allt að 400 manns í
sæti og hentar frábærlega fyrir funda- og ráðstefnu-
hald.
Veisluþjónusta okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar
og spennandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fag-
mönnum. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, enda
eru kjörorð okkar: Ykkar ánægja er okkar markmið.
Kynntu þér þjónustu okkar á www.veislukompaniid.is
eða hringdu í síma 517 5020 og við lögum okkur
að þínum þörfum.
Með kveðju,
Hafsteinn Egilsson
Staðsetning ráðstefnunnar eða fundarins er
ekki sí ur mikilvæg en fyrsta flokk aðbúnaður
og þjónusta.Við bjóðum allt þetta; frábæra
staðsetningu í hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega
sali með öllum nauðsynlegum tæknibúnaði og
fyrirtaks veisluþjónustu.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A