Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2007, Side 18
þar að tala um Luol Deng, félaga sinn
hjá Chicago.
Deng var stigahæstur í liði Chi-
cago með tuttugu stig. Hjá Phila-
delphia var Andre Iguodala stiga-
hæstur með 19 stig. Andre Miller
skoraði eingöngu sex stig á tæpum
40 mínútum í leiknum en hann gaf
tólf stoðsendingar.
Sjöundi sigur Cleveland í röð
LeBron James var mættur að nýju
í lið Cleveland Cavaliers sem heim-
sótti Memphis Grizzlies í nótt. Cleve-
land sigraði, 96-118. Þetta var sjö-
undi sigurleikur Cleveland í röð.
James var stigahæstur í liði Cleve-
land með 29 stig. Næstur honum
kom Zydrunas Ilgauskas með 19 stig.
Hjá Memphis var Rudy Gay stiga-
hæstur með 24 stig og Pau Gazol
skoraði 23.
„Ég fann mig bara mjög vel. Mér
fannst eins og ekkert skot gæti geigað
og ég hitti mörgum skotum. Það gaf
okkur tækifæri til að taka því rólega í
fjórða leikhluta,“ sagði James.
„Við megum ekkert gefa eftir af
því að við verðum að horfa á heildar-
myndina. En eins og staðan er núna
erum við ánægðir með leik okkar að
undanförnu,“ sagði Ilgauskas eftir
leikinn.
New York Knicks sótti ekki gull í
greipar Toronto Raptors þegar liðin
Það var sannkallaður stórleikur
í Dallas í nótt þegar tvö efstu liðin í
Vesturdeild NBA mættust, Dallas og
Phoenix. Framlengja þurfti leikinn í
tvígang til að skera úr um sigurveg-
ara. Það voru að lokum gestirnir í
Phoenix Suns sem fóru með sigur af
hólmi, 127-129.
Amare Stoudemire og Steve Nash
áttu sannkallaðan stórleik fyrir Pho-
enix. Stoudemire var stigahæsti leik-
maður vallarins með 41 stig og hirti
auk þess tíu fráköst. Nash skoraði
32 stig, gaf sextán stoðsendingar og
hirti átta fráköst.
Hjá Dallas var Jerry Stackhouse
stigahæstur með 33 stig, Dirk Nowitz-
ki skoraði 30 og hirti auk þess sextán
fráköst og Jason Terry skoraði 27 stig.
Dallas hefur þar með tapað tveimur
leikjum í röð.
„Svo gæti farið að þeir tapi ekki
tveimur leikjum í röð það sem eftir
er tímabilsins,“ sagði Mike D‘Antoni,
þjálfari Phoenix, hæstánægður með
sigurinn.
„Stoudemire var óstöðvandi.
Hann var örlítið meiddur í baki, fékk
smá vöðvakrampa í fyrri hálfleik. En
hann var frábær í fjórða leikhluta,“
bætti D‘Antoni við.
Steve Nash hrósaði einnig Stou-
demire í hástert eftir leikinn. „Hann
er frábær í að klára færin. Þetta var
stórkostleg frammistaða honum,“
sagði Nash en hann jafnaði met-
in með þriggja stiga körfu þegar 2,7
sekúndur voru eftir af venjulegum
leiktíma.
„Það var úrslitakeppnisandrúms-
loft hér. Bæði lið léku mjög vel. Bæði
lið áttu möguleika á sigri allt til loka.
Við vildum klárlega vinna leikinn en
við viljum einnig bæta okkur,“ sagði
Stoudemire.
„Þetta var stórleikur. Við ætl-
um ekkert að draga úr því. Það eru
vonbrigði að hafa ekki unnið en
við jöfnum okkur á því,“ sagði Jerry
Stackhouse sem hefur ekki skorað
jafn mörg stig í einum leik frá því
hann gekk í raðir Dallas fyrir þrem-
ur árum.
Hinrich með sigurkörfuna
Kirk Hinrich tryggði Chicago Bulls
eins stigs sigur á Philadelphia 76ers á
útivelli, 87-88, með körfu þegar 26,7
sekúndur voru eftir af leiknum.
Philadelphi fékk gullið tækifæri
til að vinna leikinn eftir það. Andre
Miller fór í hraðaupphlaup og var við
það að leggja boltann í körfuna þeg-
ar flautuhljóð heyrðist. Miller hélt að
dómarinn væri að dæma skref en í
ljós kom að Philadelphia hafði beðið
um leikhlé.
„Einhver bað um leikhlé og það
voru fyrirmæli frá þjálfaranum.
Hvers sá sem bað um leikhléið gerði
það sem honum var sagt að gera,“
sagði Miller eftir leikinn.
Henrich viðurkenndi eftir leikinn
að örlítil heppni hafi fylgt sigurkörf-
unni. „Þetta var misheppnað kerfi.
Ég rann til, en Lu greiddi úr því og
kom boltanum til mín. Mér fannst
að þegar ég fékk opið skot, þá ætti ég
að hitta ofan í,“ sagði Henrich og var
fimmtudagur 15. marS 200718 Sport DV
Troðið með tilþrifum Leandro
Barbosa tregður hér af miklum krafti.
NBANBA NBA-úrslitnæturinnar
toronto - New York 104-94
Philadelphia - Chicago 87-88
Orlando - utah 101-90
Charlotte - Sacramento 111-108
indiana - Washington 96-112
Boston - atlanta 109-88
memphis - Cleveland 96-118
Houston - L.a. Clippers 109-105
dallas - Phoenix 127-129
Portland - detroit 75-87
sTAÐAN
Austurdeildin U T
1. detroit 41 22
2. Cleveland 40 25
3. Washington 35 28
4. toronto 36 29
5. Chicago 39 28
6. miami 34 29
7. New Jersey 30 35
8. Orlando 30 36
9. indiana 29 35
10. New York 29 35
11. atlanta 26 40
12. Philadelphia 25 40
13. Charlotte 24 41
14. milwaukee 23 41
15. Boston 19 45
Vesturdeildin U T
1. dallas 52 11
2. Phoenix 50 14
3. San antonio 46 18
4. utah 43 21
5. Houston 40 25
6. L.a. Lakers 33 31
7. denver 31 31
8. golden State 30 36
9. L.a. Clippers 29 35
10. New Orleans 28 36
11. Sacramento 28 36
12. minnesota 28 35
13. Portland 26 38
14. Seattle 25 39
15. memphis 16 50
NAsh með
stórleik
Dallas Mavericks tók á móti Phoenix Suns í stórleik næturinnar í NBA deildinni. Eftir
æsispennandi tvíframlengdan leik fór Phoenix með sigur af hólmi, 127-129.
Teitur Þórðarson, þjálfari KR, vill ólmur fá Rúnar Kristinsson í sínar raðir:
eNgiN spurNiNg Að ég vil fá rúNAr
Allt virðist stefna í að Rúnar
Kristinsson muni leika í búningi
KR á komandi sumri í Landsbanka-
deildinni. Rúnar er 37 ára gamall
en hann er einn besti miðjumað-
ur sem komið hefur frá Íslandi.
Hann sjálfur hefur lýst yfir mikl-
um áhuga á að leika með KR og
sögusagnir hafa verið í gangi um
að hann hafi náð samkomulagi við
KR-inga. Ekkert er frágengið enn-
þá þótt fátt virðist stefna í annað
en að Rúnar fari í KR.
„Við höfðum samband við hann
fyrr í vetur í gegnum Jónas bróð-
ur hans. Þá fengum við þær upp-
lýsingar að hann ætlaði að sjá til
hvað myndi gerast eftir tímabilið
en hann lét okkur vita að ef hann
myndi spila fótbolta hér á landi
þá væri það bara fyrir KR,“ sagði
Teitur Þórðarson, þjálfari KR, við
DV í gær. Jónas Kristinsson, bróð-
ir Rúnars, er formaður KR-Sport.
Rúnar sagði í viðtali við Morgun-
blaðið í gær að hann hefði ekkert
heyrt sjálfur í Teiti og sagðist ekki
vita hvort hann hefði áhuga á að fá
sig. Teitur segir sjálfur að það sé
engin spurning að hann vilji ólm-
ur fá Rúnar í sitt lið. „Ef hann er í
góðu standi og tilbúinn til að spila
hérna heima þá er engin spurn-
ing að við viljum nýta okkur það.
Það er alveg ljóst að hann myndi
styrkja liðið og væri gaman að fá
hann,“ sagði Teitur Þórðarson.
Það er allavega ljóst að Rún-
ar mun snúa heim eftir tímabilið
en hann leikur nú með Lokeren
í Belgíu. Hann hefur þó ekki gef-
ið það út hvort hann ætli að spila
en það verður að teljast líklegt
því þrátt fyrir aldurinn er Rún-
ar í feikilega góðu formi og hefur
verið einn besti leikmaður Loker-
en í vetur. Hann hóf ferilinn með
Leikni í Breiðholti áður en hann
hélt til KR. Þaðan fór hann í at-
vinnumennsku og er leikjahæsti
landsliðsmaður Íslands frá upp-
hafi.
Teitur býst við að mál Rúnars
muni ekki skýrast alveg strax. „Ég
reikna með að þetta ráðist ekki
endanlega fyrr en í enda móts.
Hann er náttúrulega á fullu að
spila fyrir Lokeren sem er í erf-
iðri stöðu í Belgíu,“ sagði Teitur.
Lokeren er sem stendur í þriðja
neðsta sæti í belgísku deildinni,
tveimur stigum á undan Bever-
en en það lið sem hafnar í næst-
neðsta sæti þarf að leika umspil-
sleiki um sæti sitt. Aðeins neðsta
lið deildarinnar fellur beint.
elvargeir@dv.is
Reynslubolti Enginn hefur spilað
fleiri landsleiki fyrir Íslands hönd en
rúnar Kristinsson.
Framlenging Steve Nash er hér við
það að jafna leikinn 111-111 og tryggja
Phoenix Suns framlengingu.
mættust á heimavelli Toronto í nótt.
Heimamenn unnu, 104-94.
Chris Bosh skoraði 22 stig fyrir
Toronto en T.J. Ford skoraði 18 stig
og hirti 18 fráköst. Hjá New York var
Stephon Marbury stigahæstur með
31 stig.
Eddy Curry, leikmaður New York,
var pirraður yfir því að fá ekki boltann
nægilega oft. „Ég er ekki ánægður af
því að frá mínum bæjardyrum séð
var ég mjög oft frír. Ég veit að þetta
er ekkert persónulegt. Ég var reiður
en eftir leikinn róaðist ég niður. Ég vil
bara vinna leiki,“ sagði Curry.
Isiah Thomas, þjálfari New York,
hrósaði T.J. Ford eftir leikinn. „Hann
lék vörn okkar grátt og þeir neyddu
okkur stanslaust í þriggja stiga skot
Troðið með tilþrifum Leandro
Barbosa tregður hér af miklum krafti.