Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2007, Side 20
neytendur
fimmtudagur 15. mars 200720 Neytendur DV
Forstjóri
Coke á Íslandi
Laurie McAllister, forstjóri
Coca-Cola í Skandínavíu, kemur
hingað til lands ásamt stórum
hópi starfsmanna The Coca-
Cola Company til aðstoða starfs-
menn Vífilfells við kynninguna
á Coke Zero, nýjum sykurlaus-
um kóla-drykk. Árni Stefánsson,
forstjóri Vífilfells segir að aug-
lýsingaherferð fyrirtækisins fyrir
Cock Zero sé líklega sú stærsta
sem farið hefur verið í vegna
kynningar á nýrri vöru á íslensk-
um matvælamarkaði.
Skilafrestur
Í verklagsreglum iðnaðar- og Viðskiptaráðuneytis-
ins um vöruskil er kveðið á um að neytendum sé
heimilt að skila vöru innan a.m.k. 14 daga frá því að
hún er afhent, enda sé kassakvittun eða sambæri-
legri sönnun framvísað. Ákvæði þetta takmarkar þó
aldrei betri rétt sem neytendur kunna að eiga
samkvæmt lögum eða samningi við seljanda.
endurgreiða
gleraugu
Gleraugnaverslunin Sjónar-
hóll endurgreiðir tvenn gleraugu
sem keypt eru í mars-mánuði að
fullu, ef viðskiptavinir skrá sig á
póstlista verslunarinnar. Engu
skiptir hvað gleraugun kostuðu.
Þá mun verslunin endurgreiða
tíu þúsund krónur til þriggja
viðskiptavina í mars. Þar að auki
mun verslunin gefa fólki á póst-
lista tvö gjafabréf að andvirði tíu
þúsund krónur. Dregið verður
úr skráningum á póstlista vegna
gjafabréfanna og keyptum gler-
augum vegna endurgreiðslna.
Rúmlega 90 prósent skattgreiðenda telja fram á netinu í ár, en frestur til að telja fram
rennur út 21. mars. Skúli Eggert Þórðarsson, ríkisskattstjóri hvetur fólk til þess að
skila skattframtali sínu tímanlega og bendir á að fólk geti leitað aðstoðar í símalínu
skattsins, sem opin er til tíu alla virka daga.
undrast alþingi
Samtök verslunar og þjón-
ustu hafa lýst yfir óánægju með
afgreiðslu Alþingis á tillögum
þeirra og Samtaka atvinnulífsins
um að úthluta tollkvótum vegna
innflutnings án kvótasölu þegar
umsóknir um kvóta eru meiri
en framboðið. Samtökin telja
það ekki ábyrgðarfullt af hálfu
þingsins, í ljósi lækkana á mat-
vöruverði að ákvarðanir Alþingis
vinni gegn slíku átaki.
Rúmlega 90 prósent skattgreiðenda
munu telja fram á netinu samkvæmt
upplýsingum frá Ríkisskattstjóra.
Skúli Eggert Þórðarson, Ríkisskatt-
stjóri hvetur fólk til þess að skila
skattaframtali sínu tímanlega
í ár. „Það er auðvitað miklu
þægilegri framtalsmáti að
skila í gegnum heimasíð-
una okkar. Þarna getur fólk
afgreitt framtalið sitt strax,
fengið bráðabirgðarútreikn-
ing, þar er villuprófun
ásamt mjög skýrum
og ítarlegum
leiðbeining-
um fyrir hvern
lið sem þarf að
fylla inn í. Ein nýjungin enn er að
þeir sem týna veflyklum sínum geta
fengið nýjan sendan í heimabank-
ann sinn.“ Ríkisskattstjóri reikn-
ar hins vegar með því að rúmlega
tuttugu þúsund manns skili áfram
skattframtali á pappír.
Bjóða upp á aðstoð
Margir skattgreiðendur lenda í
einhverjum vandræðum með
skattframtalið sitt og til þess
að mæta því hefur Ríkis-
skattstjóri opnað símalínu
í síma 511-2250, þar sem
skattgreiðendur geta feng-
ið almennar upplýsingar um
framtalið, ásamt leiðbeining-
um um tæknilegar hlið-
ar málsins. Síma-
línan er opin til
tíu á kvöldin á
virkum dögum
og til fimm um helgar. Á vefsíðunni
skattur.is/sos getur fólk einnig lagt
inn fyrirspurnir.
Skúli Eggert segir að ef fólk geri
villur í framtalinu, sé tiltölulega auð-
velt að leiðrétta þær. „Þetta er ekki
svo mikil skriffinnska, það getur allt-
af komið fyrir að fólk geri villur og í
flestum tilvikum er hægt að leiðrétta
þær, að öðrum kosti getur fólk sent
rafræna leiðréttingu. Stærsta villu-
prófið sem hver einasti gjaldandi
getur tekið er að biðja um bráða-
birgðarútreikning, þá er framtalið
villuprófað og þá getur gjaldandi séð
hvort hann sé að gera einhver stór-
felld mistök, svo sem að gleyma ein-
hverjum lykilupplýsingum.“
Fæstir lenda í vandræðum
Skilafrestur á skattframtali fyr-
ir einstaklinga utan atvinnurekstr-
ar er 21. mars. Á vefnum er hægt
að sækja rafrænt um frest á skilum.
Skúli Eggert segir að fæstir þurfi að
hafa áhyggjur af því að geta ekki skil-
að framtalinu án sérstakrar hjálpar
og bendir á að færri endurskoðend-
ur geri skattframtöl fyrir einstaklinga
utan atvinnurekstar, en áður. „Flestir
geta gert þetta og eiga ekki að þurfa
sérstaka hjálp. Þeir sem eiga mjög
umfangsmikið hlutabréfasafn gætu
mögulega lent í smávægilegum
vandræðum.“
Hann hvetur fólk til þess að telja
fram sem allra fyrst: „Það er mik-
ilvægt að fólk skili framtalinu sínu
sem fyrst, núna er þessi vertíð hafin
og það er þægilegt að klára að skila
því sem fyrst. Ef allir skila á síðustu
stundu gætu mögulega komið upp
einhver tæknileg vandamál. Vef-
síðan okkar er bæði aðgengileg og
þægileg, þannig að fólk á ekki að
þurfa að hafa þungar áhyggjur.“
Vefsíðan Samferða.net, sem starf-
rækt hefur verið á vefnum síðan árið
2005, gefur fólki í ferðahug kost á
því að koma sér saman þegar ferð-
ast á bílleiðis yfir lengri eða skemmri
vegalengdir. Heiðurinn af vefsíðunni
á Birgir Þór Halldórsson, en hann
taldi slíkan miðil sárlega vanta hér
á landi. „Hugmyndin að vefsíðunni
kemur frá þýskri konu sem ég þekki,
Þjóðverjar eru alltaf svo hagkvæm-
ir í hugsunum og slíkar vefsíður eru
mjög algengar í Þýskalandi og eigin-
lega út um allan heim.“
Birgir bjó sjálfur á Ísafirði, en það-
an eru langar vegalengdir til flestra
byggðarkjarna á landinu. „Ég keyrði
alltaf til Reykjavíkur, einn í bíl og með
fjögur sæti laus í bílnum. Það er auð-
vitað rándýrt að þurfa að borga allt
bensínið einn. Stundum kom það
upp að ég var ekki á bíl og vantaði far
suður. Það var mikið vesen að þurfa
að hringja í alla í bænum til þess að
redda fari. Mér fannst vanta miðil til
þess að fólk gæti auglýst eftir ferða-
félögum,“ segir Birgir, en vefsíðan er
auk þess að vera á íslensku, bæði á
ensku og þýsku.
Birgir segist ekki vita nákvæmlega
hversu margir noti síðuna að stað-
aldri, enda reki síðan sig algjörlega
sjálf og hún sé ekki rekin í gróðahug-
sjón. „Hún tikkar ágætlega og ég hef
heyrt margar sögur frá fólki sem hef-
ur notað vefinn. Um daginn var ég í
sumarbústað með fólki sem ég bæði
þekki og þekki ekki. Þá fór ein stúlk-
an að segja mér frá þessari rosalega
sniðugu síðu sem hún notaði til þess
að ferðast hringinn í kringum land-
ið.“ valgeir@dv.is
Hvetur fólk til þess
að telja fram strax
Vefsíðan Samferða.net gefur fólki kost á því að auglýsa eftir ferðafélögum:
Rekur síðuna af hugsjón
sÍminn dýrastur
Stóru Internet fyrirtækin,
Síminn, Vodafone og Hive bjóða
öll upp á 12 megabita hraða á
sekúndu, sem hröðustu teng-
ingu. Hjá öllum fyrirtækjunum
er ótakmarkað niðurhal, inni-
falið í dýrustu tengingunni. 12
megabita tenging hjá Símanum
kostar 6490 krónur á mánuði.
Hjá Vodafone og Hive kosta
samskonar tengingar hins vegar
5990 krónur á mánuði.
ValgEir Örn ragnarSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Skúli Eggert Þórðarson
fólk getur leitað aðtoðar hjá
ríkisskattstjóra.
Birgir Þór
Haraldsson
fékk hugmyndina
að vefsíðunni frá
Þýskalandi.
Skúli Eggert Þórðarson fólk getur
leitað aðtoðar hjá ríkisskattstjóra.