Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Blaðsíða 12
neytendur
þriðjudagur 17. apríl 200712 Neytendur DV
Ef varan reynist gölluð
þegar þú kaupir gallaða vöru getur þú krafist
úrbóta galla, nýrrar afhendingar, afsláttar,
riftunar og skaðabóta ásamt því að halda
eftir greiðslu. Seljandi hefur ekki rétt á að
reyna að bæta úr galla eða afhenda nýja vöru
vegna sama galla oftar en tvisvar sinnum.
Veitingahúsin
lækka ekki
Hagstofa Íslands áætlaði að
breytingar á virðisaukaskatti
frá 1. mars síðastliðinum hefðu
tæplega 9 prósenta áhrif til
verðlækkunar á veitingahúsum.
Við síðustu mælinu á vísitölu
neysluverð í mars hafði verð á
veitingahúsum þó aðeins lækk-
að um 3,2 prósent frá því áður
en breytingarnar tóku gildi.
Því er ljóst að veitingamenn
eiga flestir enn eftir að skila
neytendum lækkuninni vegna
breytinga á virðisaukaskatti,
vefsíða ASÍ segir frá þessu.
húseigendur
upplýstir
Opinber eftirlitsnefnd með
fasteignasölum hefur fallist á að
upplýsa nokkra einstaklinga um
að sá sem seldi fasteignina fyrir
þá hafði óeðlilegra hagsmuna
að gæta. Skiptir þá engu hvort
fasteignasalinn eða starfmenn
hans sem sáu um söluna hafi
verið áminntir eða málið kært til
lögreglu.
Málið er tilkomið vegna þess
að starfsmenn einnar fasteigna-
sölu brutu gegn lögum sem
kveða á um að fasteignasölum
er óheimilt að kaupa eign sem
þeir hafa sjálfir til sölu eða selja
eign sem þeir hafa yfir sérstökum
upplýsingum að ráða eða hags-
muna að gæta.
ASÍ hefur birt niðurstöður úr viðamiklum verðlagskönnunum í fimm matvöruversl-
unum. Breytingar á virðisaukaskatti og vörugjöldum skiluðu sér ekki til viðskipta-
vina 10-11, samkvæmt niðrustöðum ASÍ. Hækkun á tímabilinu frá desember til febrú-
ar nam 4,3 prósentum, en lækkunin eftir breytingarnar nam 4,4 prósentum. Guðjón
Karl Reynisson, framkvæmdarstjóri 10-11, segir að um alvarlega villu sé að ræða.
Verðlagseftirlit Alþýðusambands
Íslands birti í vikunni nýjustu nið-
urstöður á því hvernig lækkanir á
virðisaukaskatti og vörugjöldum
sem tóku gildi þann 1. mars síð-
astliðinn, hafa skilað sér út til neyt-
enda. Viðamiklar verðmælingar
fóru fram í fimm í stórum verslun-
arkeðjunum, Nótatúni, Hagkaup-
um, Kjarvali, 10-11 og 11-11.
Verðmælingar í verslununum
hófust í desember á síðasta ári. Mæl-
ingarnar leiddu í ljós að mest verð-
lagshækkun var í verslunum 10-11,
eða 4,3 prósent. Í Kjarval hækkaði
verð um 2,7 prósent á sama tíma-
bili og í verslunum 11-11 var um 2,1
prósent. Verslanir Hagkaupa hækk-
uðu minna eða um 1,6 prósent á
tímabilinu. Nóatúns-verslanirnar
hækkuðu verðið minnst af verslun-
unum sem mældur voru eða um 1,3
prósent á tímabillinu.
Matvöruverð í verslunum 11-
11 lækkaði mest eftir 1. mars eða
um 8,5 prósent. Í verslunum Hag-
kaupa lækkaði verðið um 7,7 pró-
sent, í Nóatúni lækkaði verðið um
5,9 prósent, í Kjarvali lækkaði verð
um 6,3 prósent á tímabilinu. Í versl-
unum 10-11 hefur lækkunin skilað
sér áberandi minnst til neytenda,
því samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar hefur verðið lækkað um
4,4 prósent frá 1. mars.
8,7 prósenta lækkun áætluð
Samkvæmt áætlun Hagstofu Ís-
lands var gert ráð fyrir því að breyt-
ingar á lögum um virðisauksaskatt
og vörugjöld myndu lækka verð á
mat- og drykkjarvörum um 8,7 pró-
sent í heildina. 7,4 prósenta lækkun
var áætluð vegna breytinga á virð-
isaukaskatti og 1,3 prósenta lækkun
vegna niðurfellinga á vörugjöldum.
Samkvæmt áæltun Hagstofunar
áttu breytingar á virðisaukaskatti
að skila sér til neytenda um leið og
breytingin tók gildi, hins vegar var
áætlað að niðurfelling á vörugjöld-
um myndi skila sér til fulls á einum
til tveimur mánuðum.
Verðlagsmælingarnar voru gerð-
ar í verslunum um land allt í viku-
tíma í senn á tímabilinu sem skoð-
að var. Samkvæmt niðurstöðum
verðlagsmælinganna hefur lækk-
un á gosdrykkjum, sykri, sælgæti,
kaffi, te og kakó skilað sér mest til
neytenda í verslunum sem mæld-
ar voru.
Tuttugu prósenta
lækkun á gosi
Í verslunum Hagkaupa hækkaði
verð á gosi og öðrum drykkjarvör-
um um 2,1 prósent á tímabilinu frá
desember til febrúar. Í mars lækk-
aði verðið um 19 prósent.
Athygli vekur að mjólkurvörur,
ostar og egg hækkuðu ekkert á tíma-
bilinu frá desember og fram í febrú-
ar, en í mars lækkaði verðið sex
prósent. Þessi vöruflokkur er sá eini
sem stóð í stað á tímabilinu fram að
breytingum á virðisaukaskatti og
vörugjöldum. Töluvert ósamræmi
er í verslunum 11-11, en frá desem-
ber og fram í febrúr hækkaði fisk-
verð á um 13,8 prósent á tímabilinu.
Eftir 1. mars lækkaði verðið hins
vegar um 3,4 prósent aftur. Í sömu
verslunum lækkaði verð á vörum
sem flokkaðar eru sem aðrar mat-
vörur um 0,4 prósent frá desember
og fram í febrúar og lækkaði um 3,3
prósent eftir breytingarnar. Versl-
anir Nóatúns eru einu verslanirnar,
þar sem tilteknir vöruflokkar hafa
eftir 1. mars, en ávextir hafa hækk-
að um 6,7 prósent, en höfðu fram
að því lækkað um 4,2 prósent á tím-
anum sem mældur var.
Segir ASÍ hafa gert alvarlega
villu
Guðjón Karl Reynisson, fram-
kvæmdarstjóri 10-11 segir að ASÍ
hafi gert alvarlega villu og því líti
út fyrir að verslunin hafi haldið eft-
ir hluta af virðisaukalækkun á mat-
vörum. „Þetta er rangt og ég fullyrði
að 10-11 skilaði að fullu lækkun
virðisauka á matvælum til neyt-
enda og mjög auðvelt er að sýna
fram á það,“ segir hann.
Henný Henz verkefnastjóri hjá
verðlagseftirliti ASÍ hafnar þessu.
„Við gerum okkar mælingar og þær
eru byggðar á mjög stóru vöruúr-
taki í fjölda verslana. Vegna stærðar
úrtaksins minnka verulega líkurnar
á því að hugsanlegar villur skekki
niðurstöðuna. Við erum búin að
fara vel yfir okkar reikninga og að
svo stöddu höfum við enga ástæðu
til þess að halda að um villu sé að
ræða.“
Verðlagseftirlit ASÍ mældi verð í verslunarkeðjum frá desember og fram í mars:
Verðbreytingar í verslunarkeðjum
Verðlagseftirlit ASÍ mældi nýlega
verðbreytingar á matvörum í versl-
unum Hagkaupa, Nóatúns, Kjarval,
10-11 og 11-11. Verðlagsmælingarn-
ar leiddu í ljós að vöruverð hækkaði
í flestum tilvikum fram að breyting-
um á virðisaukaskatti og vörugjöld-
um. Verslanir 11-11 lækkuðu verðið
hlutfallslega mest eftir að breyting-
arnar tóku gildi
Mjög lítil lækkun
VAlGeiR ÖRn RAGnARSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Í verslunum 10-11
hafa breytingar á virð-
isaukaskatti og vöru-
gjöldum skilað sér afar
lítið til neytenda,
samkvæmt niðurstöð-
um ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson Framkvæmdar-
stjóri alþýðusambands íslands.
Verðlagseftirlit aSí stóð fyrir verðlags-
könnun sem mat hvort breytingar á
virðisaukaskatti og vörugjöldum hafi
skilað sér til neytenda.
Verðhækkun frá desember 2006 til febrúar 2007
Hagkaup nóatún Kjarval 10-11 11-11
1,6% 1,3% 2,7% 4,3% 2,1%
Verðlækkun frá febrúar til mars 2007
Hagkaup nóatún Kjarval 10-11 11-11
-7,7% -5,9% -6,3% -4,4% -8,5%
gluggagláp
Nú er tekið að vora og sú
gula er farin að gera vart við sig.
Því getur verið skemmtilegt að
ganga Laugarveginn, þó það sé
ekki nema til þess að fá frískt loft
og kannski til að kíkja í búðar-
glugga í leiðinni. Þá er gott að
vita að allar vörur í verslunum
og sýningargluggum eiga að vera
skýrt verðmerktar, annaðhvort
á vörunni sjálfri eða við vöruna.
Þetta gildir um allar vörur sem
seldar eru neytendum og tekur
til allra verslana.