Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Blaðsíða 10
þriðjudagur 17. apríl 200710 Fréttir DV
Um klukkan sjö í gærmorgun
réðst óður byssumaður á þrítugs-
aldri inn í heimavist Virginia Tech
háskólans í Virginiu og myrti fyrrver-
andi kærustu sína. Skelfing greip um
sig á meðal nemenda sem fréttu af
morðinu. Tveimur tímum síðar gekk
sami maður inn í verkfræðideild há-
skólans sem er í um fimm mínútna
göngufæri frá heimavistinni og hóf
enn frekari skothríð sem talin er
hafa endað með því að hann skaut
sig sjálfur. Eftir lágu í valnum þrjátíu
og tveir einstaklingar auk morðingj-
ans og um þrjátíu voru særðir. Þetta
eru verstu fjöldamorð í skóla í sögu
Bandaríkjanna, en vissulega ekki
þau fyrstu.
Áttuðu sig ekki á árásinni
Nemendur sem heyrðu í skothríð
mannsins inn á heimavistinni sögð-
ust sumir hverjir ekki hafa áttað sig á
að um árás væri að ræða. Einn nemi
taldi að um reglubundnar verktaka-
framkvæmdir á húsnæði skólans
væri að ræða. Þegar skothríðin hélt
áfram um sinn og einn stúdent hafði
talið allt að fimmtíu skot þá fóru
nemendurnir að átta sig á hvers kyns
hljóðin voru.
Eftir fyrri árásina barst neyðar-
tilkynning skólastjóra á heimasíðu
skólans þar sem nemendum var
ráðlagt að læsa sig inni í hýbílum
sínum og halda sig í góðri fjarlægð
frá gluggum. Síðan streymdi lið lög-
reglu og sjúkrabíla inn á svæðið og
nemendur héldu sig til hlés. Þegar
fyrstu fréttir af tölu látinna bárust
eins og eldur í sinu um skólasvæði
greip skelfing um sig meðal fjölda
nemenda
Einangra, stöðva og stjórna
Eftir fyrri skothríðina, sem hófst
um fimmtán mínútum eftir sjö þá
liðu um tveir klukkutímar þar til
lögregla var kölluð út á vegna skot-
hljóða sem bárust úr verkfræðideild
skólans. Því má ljóst vera að morð-
inginn hafi gert hlé á ódæðum sín-
um í nokkurn tíma en svo haldið
þeim áfram. Á þeim tíma var lög-
regla löngu komin á skólasvæðið og
tekin til við að leita að byssumannin-
um hús úr húsi. Ekki er það auðvelt
verk þar sem um 27 þúsund nemar
eru við skólann auk fjölda kennara á
gríðarstóru svæði sem jafnast á við
stærðarinnar þorp.
Sú leitaraðferð sem lögreglan not-
ar er meðal annars byggð á reynslu
sem fékkst í baráttunni við dreng-
ina tvo sem myrtu 12 manns í Col-
umbine skólanum í Colorado. Ein-
kunnarorð lögreglunnar við svona
aðgerðir eru að „einangra, stöðva
og stjórna,“ ódæðismanninum.
Fjöldi stúdenta hefur lýst aðgerð-
um lögreglu sem „æðisgengnum“ og
„taugaveikluðum,“ þar sem þeir hót-
uðu að skjóta nema sem ekki settu
hendur yfir höfuð og beygðu sig nið-
ur umsvifalaust.
Morð tilkynnt á heimasíðu
skólans
„Ég keyrði framhjá heimavist-
inni fyrr um morguninn á leið minni
í kennslustund og sá þá fjölda lög-
reglubíla þar fyrir utan en hvorki
mér né mínum samnemendum var
tilkynnt um hvað væri á seyði,“ sagði
Dagmar Kristín Hannesdóttir, dokt-
orsnemi í sálfræði við Virginia Tech.
„Svo fór ég í kennslustund án þess að
gruna nokkuð. Það var ekki fyrr en
einn nemandi, sem hafði stolist til
að vafra um netið í fartölvu, rakst á
tilkynningu á heimasíðu skólans um
að morð hefði verið framið á heima-
vistinni að við áttuðum okkur á því
sem gerst hafði,“ sagði Dagmar.
Eftir þessa uppgötvun fylgdust
skólasystkinin með gangi mála á
heimasíðunni þar til að nemendum
var bent á að halda sig inn í stofun-
um og í góðri fjarlægð frá gluggum.
„Lögreglan taldi sig hafa sannanir
fyrir því að morðinginn hefði yfirgef-
ið skólasvæðið og því vorum við ekki
vöruð við frekari árásum,“ segir Dag-
mar. Um einni og hálfri klukkustund
síðar er þeim hleypt úr kennslustof-
Vopnaður maður myrti rúmlega þrjátíu manns í bandarískum
háskóla tveimur klukkustundum eftir að hann myrti kærustu
sína annars staðar á skólasvæðinu. Lögreglan hélt að maður-
inn væri á bak og burt eftir fyrsta morðið. Nemendur voru því
ekki varaðir við og vissu fæstir hvað væri á seiði. Þetta eru
verstu fjöldamorð í skóla í sögu Bandaríkjanna.
Fengu enga viðvörun
© GRAPHIC NEWS
Skotárás í bandarískum háskóla
Í það minnsta 32 létu líð og á þriðja tug slösuðust þegar vopnaður maður gekk
um og skaut á nemendur á skólalóð Virginia Tech háskólans í Blacksburg í
Virginíuríki í Bandaríkjunum. Hann skaut á fólk á tveimur stöðum, í West Ambler
Johnston nemendagörðunum og Norris Hall sem er verkfræðibygging.
Virginia Tech:
26.000 nemar
stunda nám í
ríkisháskólanum.
Íþróttavöllur
275m
900ft
Heimild: Virginia Tech
7.15: Árásarmaðurinn hefur
skothríð í West Ambler
Johnston Hall. Einn látinn.
Washington
Blacksburg
VIRGINIA
New York
9.15: Margir féllu, þar
á meðal árásarmaður-
inn, í annarri skotárás í
Norris Hall.
Vel varinn lögreglu-
menn voru margir
hverjir búnir
skotheldum vestum.