Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Blaðsíða 7
DV Fréttir þriðjudagur 17. apríl 2007 7 Leigubílstjórar taka þátt í átaki Umferðarstofu og berjast gegn því að fólk keyri undir áhrifum áfengis. 50 þúsund Íslendingar telja í lagi að keyra eftir einn drykk samkvæmt nýlegri könnun Umferðarstofu. Herferðin hefur gengið mjög vel segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. LeigubíLstjórar gegn öLvunarakstri „Bílstjórararnir voru beðnir um að hjálpa til í átakinu og þetta er bara hið besta mál. Átakið er mjög þarft og sjálfsagt að taka þátt í þessu. Þessi auglýsingavettvangur er snið- ugur hvað þetta varðar,“ segir Sæ- mundur Kristján Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri Hreyfils-Bæjar- leiða. Umferðarstofa hefur leitað til leigubílstjóra um að aka um með auglýsingar þar sem barist er gegn ölvunarakstri í umferðinni. Undan- farið hefur Umferðarstofa, í sam- starfi við Vínbúðirnar, staðið að aug- lýsingaherferð gegn ölvunarakstri og lagt áherslu á að eftir einn drykk sé ekki í lagi að setjast undir stýri. Sam- kvæmt nýlegri könnun Umferðar- stofu eru fimmtíu þúsund Íslending- ar þeirrar skoðunar að í lagi sé að aka bíl eftir að hafa drukkið einn drykk. Gegn þessu viðhorfi vill Umferðar- stofa berjast því það sé deginum ljós- ara að snerpa ökukmanna í umferð- inni dvínar eftir neyslu áfengis. Gegna mikilvægu hlutverki Einar Magnús Magnússon, upp- lýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir átakið til þess að undirstrika að með hverjum áfengum drykk sljóvgist viðbragðstími líkamans. Hann bendir á að alltof mikill fjöldi slysa í umferðinni orsakist vegna ölvunar- aksturs. „Meðaltal síðustu fimm ára eru fimmtán alvarlega slasaðir eða látnir ár hvert vegna ölvunarakst- urs. Það þarf ekki nema einn drykk til og lögum samkvæmt er bann- að að keyra undir áhrifum áfeng- is, sama hversu lítið það er. Að aka undir áhrifum er ekki mannleg mis- tök heldur meðvituð ákvörðun og það er bara ekki í lagi,“ segir Einar Magnús. „Þessi herferð okkar hefur geng- ið mjög vel og við heyrum að fólk er ánægt með þessa nýjung,“ segir Einar Magnús. „Bílstjórarnir hafa brugðist mjög vel við þessu enda gegna þeir mikilvægu hlutverki fyr- ir þá sem eru að neyta áfengis við ýmis tækifæri. Þetta er allt spurn- ing um viðhorf hjá ökumönnum og það er hægt að bjarga svo mörg- um mannslífum með því að útrýma þessari hugsun í samfélaginu. Það er algjör synd að eyðileggja gott fyll- erí með því að setjast undir stýri.“ Tilvalin leið Björn Björnsson, leigubílstjóri hjá Hreyfli-Bæjarleið- um, hefur starfað sem leigubílstjóri í átta ár og brást strax vel við beiðni Umferðarstofu. Hann bendir á að her- ferðin sé unnin í sjálf- boðavinnu þannig að bílstjórar fá ekki greitt fyrir auglýsingarnar. „Þátttaka meðal bílstjóranna hef- ur verið mjög góð. Mér finnst þetta bara mjög gott átak og ég er virkilega ánægður með að taka þátt í þessu. Það er náttúrlega tilvalin leið að nýta sér þjónustu leigubíla eftir að búið er að fá sér drykk af einhverju tilefni,“ segir Björn. „Það er mjög brýnt að berjast gegn ölvunarakstri og þarna er verið að benda á aðr- ar leiðir en að setjast við stýri undir áhrifum. Mér fannst bara mjög sjálfsagt að svara þessu kalli og ánægjulegt að geta gefið af sér í sjálfboðavinnu.“ TrausTi hafsTEinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Að aka undir áhrifum er ekki mannleg mistök heldur meðvit- uð ákvörðun.“ Ánægður með átakið Björn Björnsson leigubílstjóri er einn þeirra sem svaraði kallinu og ekur um með auglýsingu gegn ölvunarakstri. Hann telur átakið brýnt og sjálfsagt að gefa vinnu sína fyrir gott málefni. InnlendArFréttIr ritstjorn@dv.is 21 tekinn fyrir ölvun við akstur Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu tók 21 ökumann um helgina eftir að hafa staðið þá að ölvunarakstri. Tíu voru stöðvað- ir á laugardag og jafn margir á sunnudag. Einn var svo tekinn fyrir ölvunarakstur aðfaranótt mánudags. Karlmenn á þrítugsaldri voru áberandi í hópi stúta um helgina. Tæplega helmingur allra sem var stöðvaður fyrir ölvun við akstur stóð undir þeirri lýsingu. Flestir voru teknir í Reykjavík, fimmtán af 21, þrír voru teknir í Hafnarfirði og einn hver í Kópa- vogi, Garðabæ og á Seltjarnar- nesi. Einn drukknu ökumanna var stöðvaður í annað skipti á ævinni ölvaður undir stýri Síminn kaupir Sensa Síminn hefur gengið frá kaupum á öllum hlutabréfum í þjónustufyrirtækinu Sensa ehf. Markmið með kaupunum er að styrkja enn frekar þjónustu og ráðgjöf Símans til fyrirtækja bæði innanlands og erlend- is, segir í fréttatilkynningu frá Símanum. Sensa ehf. er þjónustufyr- irtæki með sérfræðiþekkingu á sviði IP samskiptalausna og var stofnað árið 2002. Þar starfa 17 starfsmenn og á árinu 2006 var velltan 997 milljónir. Kaupverðið er trúnaðarmál. Staðsetning ráðstefnunnar eða fundarins er ekki síður mikilvæg en fyrsta flokks aðbúnaður og þjónusta.Við bjóðum allt þetta; frábæra staðsetningu í hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega sali með öllum nauðsynlegum tæknibúnaði og fyrirtaks veisluþjónustu. Kynntu þér þjónustu okkar og skoðaðu matseðla á www.veislukompaniid.is eða hringdu í síma 517 5020 og veislan er í höfn! Fundur í miðborginni Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is F í t o n / S Í A aldrei fleiri útskrifaðir 74 rafvirkjanemar og 17 raf- eindavirkjar fengu sveinsbréf sín við útskriftarathöfn á laugardag og hafa aldrei fleiri verið út- skrifaðir í einu. Síðustu ár- hafa venjulega um 30 rafvirkjar og tíu til fimmt- án rafeinda- virkjar verið útskrifaðir í hverju sveins- prófi sem hald- in eru tvisvar á ári. Rafvirkjahóp- urinn nú er því meira en tvöfalt fjölmennari en við flestar útskrift- ir. Fall á sveinsprófum var minna en nokkru sinni fyrr. Fimmti hver nemi sem þreytti prófið féll en venjulega fellur einn af hverjum þremur á prófinu. Einar Magnús Magnússon Fólk er ánægt með þessa nýjung segir upplýsingafulltruí umferðarstofu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.