Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Blaðsíða 27
Harry Potter
þemagarður
Harry Potter aðdáendur geta glaðst við
þeim fréttum að fyrirhugað er að byggja
þemagarð í Flórída byggðan á bókunum
um töfrastrákinn. Aðdáendum verður
með því gert kleift að stíga inn í töfrandi
heim þar sem þeim gefst kostur á að fara
í magnaðar rússíbanaferðir byggðar á
atburðum úr bókunum. Harry Potter
æðið hefur nú þegar halað inn 2
milljónum punda og er höfundur bókana
JK Rowling komin á lista Forbes
tímaritsins yfir ríkustu konur heims.
Orlando Studios standa fyrir byggingu
þemagarðsins.
Með krabba-
mein í hálsi
Stórleikarinn Sean Connery hefur glímt
við krabbamein í hálsi síðustu tuttugu
árin en hefur þó alltaf náð að halda því
leyndu fyrir fjölmiðlum. Nú hafa læknar
hins vegar staðfest að þeir hafi náð að
fjarlæga meinið og hefur Neil bróðir
Connerys komið fram opinberlega og
sagt frá því að þeir bræður hafi báðir
glímt við krabbamein í hálsi. Fréttir um
slæmt heilsufar leikarans fóru að kvisast
út fyrir um tveimur vikum þegar Connery
þurfti skyndilega að hætta við að koma
fram opinberlega á góðgerðarsamkomu
sökum þess að hann þurfti að mæta til
læknis. Sem betur fer er allt gott að frétta
af Bond-leikaranum í dag.
Fagtímaritið Variety fjallar sérstaklega um kvikmyndaupptökur á landinu
50 milljónum dollara eytt í upptökur á Íslandi
Fjöldinn allur af stórmyndum
hefur verið tekinn upp hér á Íslandi
undanfarin misseri, en það er ein-
mitt umfjöllunarefni nýrrar greinar
sem finna má á vefsíðu kvikmynda-
fagritsins The Variety. Á meðal þeirra
mynda sem teknar hafa verið upp
hér eru Batman Begins, Die Another
Day, Hostel, Lara Croft: Tomb Raid-
er og Flags of Our Fathers. í greininni
er vitnað í aðstanendur Flags of Our
Fathers þar sem þeir segja íslenska
náttúru vera eina sinnar tegundar
og því helsta ástæðan til þess að taka
upp hér. Þá kemur einnig fram í grein-
inni hversu hagkvæmt það sé að taka
upp á Íslandi, en yfirvöld borga 14%
af öllum þeim framleiðslukostnaði
sem eytt er hér í landi tilbaka. Á und-
anförnum fimm árum hafa erlend-
ir framleiðendur eytt um 50 millj-
ónum dollara í kvikmyndaupptökur
hér á landi eða um 3,2 milljörðum ís-
lenskra króna. Á þessum fimm árum
hefur ríkið greitt tilbaka um 9,8 millj-
ónir dollara, eða um 640 milljónir.
Áður var hlutfall endurgreiðslunnar
aðeins 12 % en hlutfallið var hækkað
í 14% fram til ársins 2011. Þá er einnig
talað um ókosti þess að taka upp á Ís-
landi, en þeir helstu eru vetrarbirtan
og skortur á nýtískulegri aðstöðu til
eftirvinnslu. Á döfinni er þó að koma
á stofn hér fyrsta flokks upptökuveri,
sem ætti þá vonandi að auka straum
kvikmyndagerðamanna til landsins.
Dansað
Eigendaskipti hafa átt sér stað á
versluninni Liborius á Nýlendugötu.
Jón Sæmundur hyggst opna aftur
verslun sína Nonnabúð á Laugavegin-
um og nýir eigendur Liborius eru Jó-
hann Meunier tískugúrú með meiru
og félagarnir Svanur og Þorsteinn
Stephensen hjá Hr. Örlygi. „Þetta eru
bara mjög jákvæðar og spennandi
breytingar og allir mjög sáttir við eig-
endaskiptin. Dead-merkið átti betur
heima í Nonnabúðinni eins og hún
var á Klapparstígnum svo Jón Sæ-
mundur ætlar að opna rokkaða og
flotta Nonnabúð í sumar og við ætlum
að flytja okkur meira í átt frá götutísk-
unni yfir í framúrstefnulega hátísku-
hönnun,“ segir Jóhann sem stend-
ur vaktina allan daginn í Liborius en
hann hefur hingað til lifað og hrærst í
tískuheiminum í París. „Ég vann sem
aðstoðarmaður listræna stjórnandans
í Colette en það er oft talin vera Mekka
tískuvöruverslana í París, síðan starf-
aði ég líka sem blaðamannafull-
trúi fyrir unga tískuhönnuði og
hef einnig unnið með 3as four
sem er fatamerki sem er til
sölu hér í Liborius,“ segir Jó-
hann en eins og heyra má er
enginn nýgræðingur í tísku-
heiminum hér á ferð. „Nonni
kemur til með að starfa
áfram sem ráðgjafi í fyrirtæk-
inu okkar sem og Aftur-syst-
urnar Hrafnhildur og Bára
Hólmgeirsdætur en það
verður frábært að hafa þau
áfram sér innan handar.“
Það sem er annað
merkilegt að frétta úr Liborius er að
tekist hefur að fá Dior-karlalínuna í
sölu en hún hefur hingað
til ekki verið fáanleg
á Íslandi. „Já,
við erum búin
að ganga frá
samningn-
um við Dior
Homme og
nýjasta línan
þeirra kem-
ur í búðina
til okkar í
haust. Það
er náttúru-
lega ótrú-
lega flott að
Dior hafi
samþykkt
að selja vörurnar sínar hjá okkur þar
sem þær eru aðallega til sölu í sérstök-
um Dior-verslunum og einstaka há-
tískuvöruverslunum,“ segir Jóhann.
„Aðilar frá Dior eru búnir að skoða öll
smáatriði í versluninni hjá okkur og allt
í kringum fyrirtækið. Það hefur eflaust
hjálpað til að fyrir erum við að selja
mjög virt og þekkt nöfn í tískuheim-
inum,“ segir Jóhann að vonum glaður
með nýjustu viðbótina í verslunina.
„Mér hefur líka tekist, með hjálp frá-
bæra fjármálastjórans míns, að reikna
nákvæmlega út verðin og álagningu á
öllum flíkunum og þar af leiðandi að
lækka verðið í versluninni til muna,“
segir Jóhann að lokum og lofar fjöl-
breyttum og skemmtilegum fatnaði í
Liborius, bæði fyrir ungu kynslóðina
sem og þá eldri. krista@dv.is
Nýjasta línan frá Dior Homme verður til sölu í Liborius í Haust sem er mikill
heiður fyrir íslenska tískuverslun.
Die Another Day James Bond lenti í
rosalegum eltingarleik á íslenskri grundu.
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á
FRAKKLAND
Á EKKI
MÖGULEIKA SÓLIN ER AÐ DEYJA.
ER HÆGT AÐ BJARGA HENNI?
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR MEÐ
SÚPERSTJÖRNUNUM HALLE BERRY
OG BRUCE WILLIS
VINKONA HENNAR ER MYRT OG EKKI
ER ALLT SEM SÝNIST.
HVE LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA?
,,MAGNÞRUNGINN SPENNUTRYLLIR OG
SJÓNARSPIL SEM GEFUR EKKERT EFTIR''
VJV, TOPP5.IS
PERFECT STRANGER kl. 5.30, 8 og 10. 30 B.I. 16 ÁRA
SUNSHINE kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
THE SCIENCE OF SLEEP kl. 8 og 10 B.I. 7 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6
TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA
SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 5.45
THE ILLUSIONIST kl. 8 og 10.15
PERFECT STRANGER kl. 5.30, 8 og 10. 30 B.I. 16 ÁRA
PERFECT STRANGER SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10. 30
SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 5, 7, 9 og 11
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 4
TMNT kl. 4, 6, og 8 B.I. 7 ÁRA
SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 10
PERFECT STRANGER kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
HOT FUZZ kl. 10 B.I. 16 ÁRA
SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 8
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6
TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA
Bjartir og
breyttir tímar
framundan
Liborius Áherslan
verður á framúr-
stefnulega hönnun.
Jóhann Meunier Nýr
eigandi Liborius er
ánægður með að fá
Dior í búðina.