Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Blaðsíða 20
Menning
þriðjudagur 17. apríl 200720 Menning DV
Sumardag-
stónleikar í
Borgarnes-
kirkju
Í tilefni 40 ára starfsafmæl-
is Tónlistarfélags Borgarfjarð-
ar verður frumflutt tónverk-
ið „Auðir bíða vegirnir“ eftir
Önnu Sigríði Þorvaldsdóttur úr
Borgarnesi. Verkið samdi Anna
Sigríður við ljóð Snorra Hjart-
arsonar. Einnig flytja listamenn
sem eiga ættir að rekja í Borg-
arfjörðinn fjölbreytta efnisskrá.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.00 að kvöldi sumardagsins
fyrsta í Borgarneskirkju.
Skáldasetur
Jóhannesar
úr Kötlum
Unnendur ljóðskáldsins
Jóhannesar úr Kötlum geta nú
nálgast margs konar fróðleik
um ævi og skáldskap
Jóhannesar. Afkomendur hans
hafa sett á stofn skáldasetur á
léninu johannes.is, þar sem
finna má fróðleik af ýmsu tagi
og margar myndir af skáldinu.
Guð og menn
Í hvert sinn sem ég lýk við málverk tek ég mér í hönd einhvern hlut sem Guð
hefur skapað; svo sem stein, blóm eða trjágrein.
Ef málverkið stenst samanburð við eitthvað sem ekki verður skapað af
manninum dæmist það nógu gott. Ef ekki, flokkast málverið óhjáklæmilega
undir lélega list. Marc Chagall
list
Drengirnir
frá Syðri-Á í
sumarskapi
Hljómsveitin South River
Band heldur tvenna tónleika
á sumardaginn fyrsta. Fyrri
tónleikarnir verða í Bíósalnum
í Keflavík og hefjast klukkan
þrjú. Þeir síðari verða á Café
Rosenberg í Lækjargötu. Sveit-
in, sem verður sjö ára í haust,
hefur gefið út þrjá hljóm-
diska sem seldir hafa verið til
styrktar góðum málefnum. Um
þessar mundir eru drengirnir
að vinna að fjórða disk sínum
sem væntanlegur er á markað í
sumar. Tónlist þeirra er blanda
af þjóðlagatónlist frá ýmsum
löndum.
Spennandi tækifæri fyrir krakka á aldrinum 7-14 ára
Þær stöllur hafa unnið saman í
mörg ár en þrátt fyrir það er þetta
fyrsta samsýningin þeirra. Inga
Elín segir hugmyndina að sýning-
unni hafa kviknað eftir heimsókn
frægs manns sem heimsótti landið
og keypti af henni tvö verk.
„Það var hringt í mig og í síman-
um var maður sem tjáði mér að á
Íslandi væri staddur heimsfrægur
maður sem hefði mikinn áhuga á
glerlist. Hann vildi hitta íslenskan
glerlistamann, skoða verkin hans
og jafnvel að kaupa af honum eitt
verk eða svo. Maðurinn væri svo
frægur að hann gæti ekki sýnt sig á
götu af öryggisástæðum og því yrði
ég að koma með eitthvað af verkun-
um mínum niður í Sundahöfn þar
sem þeir yrðu staddir seinna um
daginn. Það var ekki fyrr en þang-
að var komið að ég fékk að vita að
þetta væri sjálfur Elton John. Hann
er ósköp notalegur maður, við
spjölluðum saman í hálftíma og
hann skoðaði heimasíðuna mína
og verkin sem ég hafði valið til að
taka með mér. Hann var hrifinn af
verkunum og það endaði með því
að hann keypti tvö þeirra, glerskál
og glerskúlptúr.“
Inga Elín sagðist hafa fyllst
eldmóði eftir fundinn við þenn-
an fræga mann og aðdáun hans á
verkum hennar. Í framhaldi af því
ákváðu þær stöllur að slá í klárinn
og halda samsýningu á verkum
sem þær hafa unnið, bæði saman
og sitt í hvoru lagi. Á sýningunni
sýnir Hansína skartgripi og litla
skúlptúta unna í eðalmálma utan
um gler Ingu Elínar. Inga Elín sýnir
hins vegar skúlptúra unna í gler og
steinsteypu.
Þær Hansína og Inga Elín eru
báðar vel menntaðar á sínu sviði.
Hansína lærði gullsmíði hjá föður
sínum, Jens Guðjónssyni, og eft-
ir útskrift úr Myndíða- og hand-
menntaskólanum fór hún til Kan-
ada þar sem hún dvaldi í tvö ár og
lærði skúlptúr.
„Eftir að ég kom heim frá Kan-
anda vann ég eingöngu í stærri
verkum, t.d. stendur 4 metra hár
skúlptúr eftir mig í garði fyrir utan
fínt hús í Garðabæ. Ég hef lengi
verið að reyna að trappa mig nið-
ur hvað stærðina varðar og líklega
hef ég náð tökum á því með töpp-
unum sem eru á sýningunum. Ég
er farin að snúa mér meira að gull-
smíðinni og vinn meira í gull en
stein.“
Þær stöllurnar eru flinkir lista-
menn og margir eiga og þekkja
verkin þeirra, bæði hér heima og
erlendis. Einstök hönnun Hans-
ínu hefur gefið henni frama langt
út fyrir landsteinana og hún er
kunn fyrir að blanda saman ýms-
um málmtegundum, eins og stáli
og gulli. Hún hefur unnið mikið
með íslenska steina og skartgripir
hennar þykja mjög sérstakir. Inga
Elín notar gler og steypu í verk sín,
en hún er menntaður myndlista-
maður, útskrifuð úr Listaskólum
hér heima og í Danmörku. Hún
hefur haldið fjölda sýninga og auk
þess að vinna glerlistaverk vinnur
hún keramikverk. Hún hefur feng-
ið verðlaun fyrir verk sín bæði hér
heima og erlendis og sýnt og selt
víða um heim. Einnig hannaði Inga
Elín verðlaunagrip sem veittur er
árlega þeim sem hlýtur Íslensku
tónlistarverðlaunin.
„Samvinna okkar Hansínu er
mjög ánægjuleg þótt við séum að
vinna úr ólíkum efnum,“ segir Inga
Elín og Hansína tekur heilshugar
undir það. „Það má segja sem svo
að glerið mitt séu steinarnir henn-
ar Hansínu sem verða enn fallegri
þegar hún hefur myndað umgjörð-
ina í kringum þá,“ segir Inga Elín að
lokum. Þær Hansína og Inga Elín
bjóða alla velkomna á sýninguna
sem er opin á verslunartíma.
Leikfélag Akureyrar leitar nú
logandi ljósi að barnastjörnum á
aldrinum 7-14 ára til þess að leika
við hlið atvinnuleikara í fyrstu
frumsýningu haustsins 2007.Leik-
ararnir ungu
munu taka
þátt í fjöl-
skylduleikritinu Óvitar, eftir Guð-
rún Helgadóttur sem verður í leik-
stjórn Sigurðar Sigurjónssonar.
Mikið er um tónlist í verkinu og hef-
ur Jón Ólafsson samið nýja tónlist
fyrir sýninguna og hann mun jafn-
framt stýra hljómsveit. Skráning í
áheyrnarprufur verða í leikhúsinu
á Akureyri föstudaginn 20. apríl
milli klukkan 14 og 15 og áheyrn-
arprufurnar verða svo haldnar 5. og
6. maí.
Mikill leikhúsáhugi er á með-
al ungra Eyfirðinga og nærsveit-
armanna, gríðarleg þátttaka hefur
verið á leiklistarnámskeiðum und-
anfarin misseri og því er gert ráð
fyrir mikilli þátttöku í prufunum. LA
stóð fyrir samskonar prufum
fyrir rúmum tveimur árum
þegar átján börn og ungl-
ingar voru valin til þess að
taka þátt í uppsetningu á
söngleiknum Óliver! Að
sögn forráðamanna leik-
hússins er þátttaka barna
í atvinnuleiksýningu afar
krefjandi, lærdómsrík og
umfram allt skemmti-
leg lífsreynsla. Leikritið Óvitar var
frumsýnt hjá Þjóðleikhúsinu árið
1979 og naut það mik-
illa vinsælda og það
sama má segja þegar
verkið var sett upp í
Þjóðleikhúsinu í lok ní-
unda áratugarins. Meðal
barnanna sem tóku þátt
í uppsetningu Þjóðleik-
hússins eru nú starfandi
leikarar, t.d. Halldóra Geir-
harðsdóttir, Steinunn Ólina
Þorsteinsdóttir, Benedikt
Árnason og Helga Vala Helgadóttir.
leiklist
Leikfélag Akureyrar leitar að barnastjörnum
Gullsmiðja Hansínu Jens sem stendur við Laugaveg 42 fylltist af fólki á föstudag-
inn var þegar þær Hansína og glerlistakonan Inga Elín opnuðu samsýningu í versl-
un Hansínu. Gestir nutu góðra veitinga og dáðust að verkum listakvennanna við undir-
leik gítarleikaranna Þórarins Sigurbergssonar og Péturs Valgarðs Péturssonar.
GULL, GLER, DJÁSN og dýrmæti
Verk af sýningu Hansínu og Ingu
Elíar. Falleg verk eftir flinkar konur.