Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 4
S tefán H. Hilmarsson, fyrrver-andi fjármálastjóri Baugs og núverandi fjármálastjóri 365,
hefur flutt lögheimili sitt til Lúxem-
borgar. Hann fetar í fótspor margra
viðskiptamanna sem flust hafa bú-
ferlum til Lúxemborgar frá hruni. Í
þeirra hópi eru Kaupþingsmennirnir
Hreiðar Már Sigurðsson, Ingólfur
Helgason og Steingrímur Kárason og
athafnamaðurinn Pálmi Haraldsson
einatt kenndur við Fons. Munurinn á
Stefáni og hinum er hins vegar sá að
hann er í föstu starfi sem fjármála-
stjóri fjölmiðlarisans 365. Stefán vildi
ekki tjá sig um ástæður flutnings lög-
heimilis síns til Lúxemborgar þegar
Fréttatíminn leitaði svara.
Stefán var úrskurðaður gjaldþrota
í sumar vegna skuldamáls við Arion
banka, máls sem hann tapaði síðan
í síðustu viku í héraðsdómi. Þar var
hann dæmdur til að greiða rúmlega
hundrað milljóna króna skuld við
bankann. Stefán flutti glæsivillu í
sinni eigu á Laufásvegi yfir í félag
móður sinnar skömmu eftir hrun og
skoðar skiptastjóri þrotabús hans
hvort sá gjörningur sé riftanlegur.
Miðað við þær upplýsingar sem
Fréttatíminn hefur undir höndum er
þó óvíst hvort markaðsvirði hússins
hafi verið meira en áhvílandi skuldir
á þeim degi sem eignin var flutt yfir.
Grímur Sigurðsson, skiptstjóri bús
Stefáns, vildi ekkert segja um málið
annað en það að verið væri að skoða
allt sem við kæmi þrotabúinu.
Mörg spjót standa á Stefáni þessa
Hegningarhúsið í sölu
þegar nýtt fangelsi rís
Stefnt er að því að selja Hegningar-
húsið í Reykjavík þegar nýtt fangelsi
rís. Þetta kemur fram í svari dóms-
og mannréttindamálaráðuneytis við
spurningu Fréttatímans um væntan-
lega sölu á húsinu sem tilkynnt var í
fjárlögum 2010. Í svarinu segir að undirbúningur á útboði í nýtt fang-
elsi sé í gangi og ef byggt verði nýtt fangelsi frá grunni geti liðið allt að
tvö ár áður en Hegningarhúsið verður selt. -óhþ
ÍSland Búferlaflutningar
Gjaldþrota fjármálastjóri með
lögheimilið til Lúxemborgar
Stefán H. Hilmarsson hefur flutt lögheimili sitt til Lúxemborgar. Hann var úrskurðaður gjaldþrota í
sumar vegna skuldar við Arion banka.
Stefán vildi
ekki tjá sig
um ástæður
flutnings
lögheim-
ilis síns til
Lúxemborg-
ar þegar
Fréttatíminn
leitaði svara.
dagana. Landsbankinn hefur stefnt
honum vegna skuldamáls og ekki
fæst uppgefið hvernig það mál er vax-
ið. Stefán átti tæplega 20% hlut í BGE
eignarhaldsfélagi, sem var stofnað
í kringum kaup starfsmanna Baugs
á hlutabréfum í félaginu. Félagið er
komið í þrot og hefur skiptastjóri
búsins tilkynnt að hann muni senda
eigendum BGE reikning vegna lána
félagsins til eigenda sem hlaupa á
hundruðum milljóna.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Kveikt í
Range Rover
Stefán og barnsmóðir hans, sjón-
varpskokkurinn Friðrika Hjördís
Geirsdóttir, komust í fréttirnar
snemma árs 2009 þegar kveikt
var í Range Rover-bifreið þeirra
fyrir utan heimili þeirra
við Laufásveg.
Bíllinn var
gjöró-
nýtur en
málið er
óleyst.
Jólalegt á Laufásveginum.
Stefán H. Hilmarsson stendur í ströngu þessa dagana. Ljósmynd/MBL
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Rigning um allt land fRaman af
degi, en síðan að mestu ÞuRRt.
fReKaR Hvasst og mjög Hlýtt
miðað við áRstíma.
HöfuðboRgaRsvæðið: SLAGveðuRS-
RiGninG um moRGuninn, en SíðAn
dáLítiL þokuSúLd. mJöG miLt í veðRi.
vestan stoRmuR víða um land um
nÓttina og fyRst um moRguninn,
síðan lygniR og víðast ÞuRRt. Hiti
ofan fRostmaRKs víðast HvaR.
HöfuðboRgaRsvæðið: StRekkinGS-
vinduR FRAmAn AF deGi, en Að meStu
veRðuR þuRRt oG áFRAm FRoStLAuSt.
HæguR vinduR og bjaRtviðRi um
miKinn Hluta landsins fRystiR,
en ÞÓ eKKi vestanlands.
HöfuðboRgaRsvæðið: SkýJAð oG
LítiLSHáttAR RiGninG eðA SúLd.
vetrarhlýindi
og sviptingar
eftir kuldana að undanförnu bregður
nú mögum við þessi hlýindi nú á miðri
aðventu. í dag slagar hitinn víða upp
undir 10°C og í kvöld og nótt verður víða
v- stormur á landinu. Rólegra veður á
laugardag og enn eitt háþrýstisvæðið
sýnir sig og á sunnudag verður
orðið kyrrt og víða bjart. þá
frystir líka aftur um mikinn
hluta landsins. Fram í vikuna er
síðan að sjá miklar stillur
og þurrviðri.
8
7 7 10
8 4
4 2
1
4
2
2 2
6
2
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is Klæddu þig vel
laugavegur dúnkápa
www.66north.is
útgjöld meðalheimilis
456 þúsund á mánuði
neysluútgjöld á heimili árin 2007-2009
voru 456 þúsund krónur á mánuði og
hækkuðu um 7,0% frá tímabilinu 2006-
2008, að því er fram kemur í Hagtíðindum
Hagstofu íslands. á sama tíma hefur meðal-
stærð heimilis minnkað úr 2,39 ein-
staklingum í 2,37 og hafa útgjöld á
mann því hækkað um 7,9% og eru nú
192 þúsund krónur. vísitala neyslu-
verðs hækkaði um 12,0% á sama
tímabili og hafa heimilisútgjöldin því
dregist saman um 4,8% að teknu til-
liti til verðbreytinga eða um 4,0% á mann. í
úrtaki rannsóknarinnar voru 3.484 heimili,
1.850 þeirra tóku þátt í rannsókninni og var
svörun því rúm 53%. -jh
Ráðstöfunartekjur
rétt duga
Ráðstöfunartekjur meðalheimilis í
rannsókn á útgjöldum heimilanna árin
2007-2009 voru um 490 þúsund krónur á
mánuði, um 206 þúsund krónur á mann,
að því er fram kemur í Hagtíðindum Hag-
stofu íslands. Ráðstöfunartekjur flestra
hópa voru hærri en útgjöld þeirra en
neysluútgjöldin voru að meðaltali um 93%
af ráðstöfunartekjum. töluverður sam-
dráttur neysluútgjalda varð í kjölfar efna-
hagshrunsins haustið 2008. meðalútgjöld
árið 2008 voru 8% lægri en árið 2007 og
drógust aftur saman um 13,4% milli 2008
og 2009. þannig voru útgjöldin 20% lægri
árið 2009 en þau voru árið 2007. -jh
útgjöld til félags-
verndar lægst á íslandi
útgjöld til félagsverndar á íslandi árið
2008 námu 325,6 milljörðum króna eða
21,8% af landsframleiðslu samanborið
við 28,9% í danmörku,
28,8% í Svíþjóð,
24% í noregi og
25,6% í Færeyjum
og Finnlandi. um
40% útgjaldanna
á íslandi árið
2008 voru vegna
heilbrigðismála, en það
samsvarar 8,8% af landsframleiðslu. Frá
þessu greinir Hagstofa íslands og byggir
á ritinu Social tryghed í de nordiske lande
2008/09. í ritinu er að finna samanburð
á velferðarþjónustu eða félagsvernd milli
norðurlandanna. -jh
Raungengi krónunnar
hækkar
Raungengi íslensku krónunnar heldur
áfram að hækka. í nóvember hækkaði
það um 0,4% á mælikvarða hlutfalls-
legs verðlags. á sama tíma stóð vísitala
neysluverðs nánast í stað og var verðbólga
hér minni en í helstu nágrannalöndum.
þetta kemur fram í tölum Seðlabankans.
Frá áramótum hefur raungengið hækkað
um rúm 15%. Greiningardeild íslands-
banka telur að raungengið muni hækka
enda eigi það enn nokkuð í land með að ná
langtímameðaltali. -jh
4 fréttir Helgin 10.-12. desember 2010