Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 6
Kósý-
kvöld
Fyrir vísnavini
Fyrir pennavini
Fyrir prinsessuvini
Gott
verð!
Verð gilda til og með 14.12.10
2.690,-
2.690,-
2.990,-
G ömlu bankarnir þrír ætla að fara ólíkir leiðir þegar kemur að því að gera upp
bú þeirra. Landsbankinn og
Glitnir munu greiða kröfuhöfum
sínum út hlutagreiðslur eftir að
allri réttaróvissu um eðli krafna
hefur verið eytt, líklega seinni
hluta næsta árs. Allt bendir til
þess að Kaupþing verði sá fyrsti af
gömlu bönkunum sem kröfuhafar
taka yfir.
Ólafur Garðarsson, formaður
slitastjórnar bankans, segir í sam-
tali við Fréttatímann að eftir að
lokið var við að taka afstöðu til
allra þeirra 28 þúsund krafna sem
bárust í búið sé ekkert því til fyrir-
stöðu að taka næsta skref sem sé
annað hvort gjaldþrot eða nauða-
samningar.
„Boltinn er nú hjá kröfuhöfum.
Eftir að tekin var afstaða til allra
krafna í búið er það þeirra að
ákveða næsta skref. Hvort heldur
sem það er að fara í gjaldþrot eða
ganga til nauðasamninga. Ég á nú
síður von á að það fyrra verði uppi
á teningnum,“ segir Ólafur.
Eins og fram kom á kröfuhafa-
fundi Kaupþings í síðustu viku
eru forgangskröfur í búið komnar
undir 500 milljarða og þar af eru
samþykktar kröfur rétt um tíu
prósent. Þar með er virði bankans
orðið töluvert hærra en forgangs-
kröfurnar en áætlað er að bankinn
sé um 800 milljarða króna virði.
Ólafur vildi ekki tjá sig um
hvaða leið væri best að fara. „Það
er ekki okkar að segja til um það.
Slitastjórnin á þó ekki að vera
nein eilífðarvél og vonandi komast
þessi mál á hreint sem fyrst,“ segir
Ólafur.
Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnar Glitnis, segir í
samtali við Fréttatímann að stefnt
sé að því að hefja hlutagreiðslur
til kröfuhafa seint á næsta ári.
„Það er mjög flókið fyrir stóran
hóp kröfuhafa að eignast banka og
því teljum við að sú leið að greiða
kröfuhöfum hlutagreiðslu með
reglulegu millibili sé besta leiðin,“
segir Steinunn. Fram hefur komið
að slitastjórnin hyggist selja 95%
hlut sinn í Íslandsbanka fyrir árs-
lok 2015. Miðað við áætlanir slit-
astjórnarinnar er gert ráð fyrir því
að lokagreiðslur til kröfuhafa fari
fram árið 2019.
Páll Benediktsson, upplýsinga-
fulltrúi slitastjórnar Landsbank-
ans, segir að gert sé ráð fyrir að
það taki fjögur til fimm ár að klára
allar þær greiðslur til kröfuhafa
sem hægt er að greiða. Ein af eign-
um gamla bankans er 20% hlutur
í Landsbankanum og hefur þegar
verið gengið frá sölu á honum til
ríkisins. Páll segir að stefnt sé
að því að greiða út úr búinu um
mitt ár 2011 þegar öll dómsmál
varðandi kröfurnar hafa verið til
lykta leidd.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Nú þurfa krakkarnir að
komast í jólaklippinguna. Ég
kynnti mér verð hjá fimmtán
hársnyrtistofum fyrir þrjú
systkin, 3 ára stelpu og 7 og 12
ára stráka. Stofurnar aldurs-
skipta kúnnahópnum mjög
misjafnt; sumar gera engan
greinarmun á aldri barnanna
á meðan aðrar skipta í marga
aldursflokka. Eins og sést er
verðið mjög mismunandi –
það munar 67,6% á lægsta
og hæsta verðinu – og því
greinilega ekkert samráð
í bransanum. Auðvitað
borgar sig því að athuga
verðið áður en maður kaupir
þjónustuna. Athugið að gæði
og þjónustustig var ekki at-
hugað í þessari könnun, bara
verð. Athugið einnig að þessi
könnun er ekki tæmandi, það
er auðvitað fjöldi annarra
stofa til en þessar fimmtán.
Hér koma niðurstöðurnar,
ódýrasta stofan fyrst og svo
koll af kolli.
Í hár saman
Grettisgötu 9
6.800 kr.
(1 x 1.800 kr. / 2 x 2.500 kr.)
Salon Nes
Austurströnd 1
7.000 kr.
(2 x 1.900 kr. / 1 x 3.200 kr.)
Díva
Hverfisgötu 125
7.800 kr.
(2 x 2.500 kr. / 1 x 2.800 kr.)
Solid hár
Laugavegi 176
8.000 kr.
(1 x 2.000 kr. / 2 x 3.000 kr.)
Englahár
Langarima 21
8.265 kr.
(2 x 2.800 kr. / 1 x 3.100 kr. –
5% systkinaafsláttur)
Hárný
Nýbýlavegi 28
8.550 kr.
(1 x 2.250 kr./ 2 x 3.150 kr.)
Brúskur
Höfðabakka 1
8.800 kr. (1 x 2.200 kr. /
1 x 2.900 kr. / 1 x 3.700 kr.)
Manda
Hofsvallagötu 16
9.100 kr.
(1 x 2.700 kr. / 2 x 3.200 kr.)
Hárgreiðslustofa Helenu,
Stubbalubbar
Barðastöðum 3
10.005 kr.
(2 x 3.790 kr. / 1 x 4.190 kr. –
15% systkinaafsláttur)
Möggurnar í Mjódd
Álfabakka 12
10.450 kr.
(1 x 3.150 kr. / 2 x 3.650 kr.)
Hárgreiðslustofan Gríma
Álfheimar 4
10.500 kr.
(1 x 2.500 kr. / 2 x 4.000 kr.)
Rakarastofa Ágústar og
Garðars
Suðurlandsbraut 10
10.630 kr.
(2 x 3.270 kr. / 1 x 4.090 kr.)
Korner
Bæjarlind 14-16, Kóp.
10.700 kr.
(1 x 3.100 kr. / 2 x 3.800 kr.)
Rakarastofan Klapparstíg
Klapparstíg 29
10.920 kr.
(2 x 3.360 kr. / 1 x 4.200 kr.)
Ónix
Þverholti 5
11.400 kr.
(3 x 3.800 kr.)
Dr Gunni er UmboðsmaðUr neytenda ÁbendinGar oG kvartanir: drgunni@centrum.is
Hvað kostar jólaklipping barnanna?
Boltinn er nú hjá kröfu höfum. Eftir að tekin var
afstaða til allra krafna í búið er það þeirra að
ákveða næsta skref.
FjÁrmÁlaFyrirtæki naUðasamninGar
Kaupþing klárt
í nauðasamninga
Slitastjórn bankans hefur tekið afstöðu til allra þeirra 28 þúsund krafna sem bárust í búið og bíður
eftir að kröfuhafar ákveði næsta skref í framtíð bankans.
Ólafur Garðarsson, formaður slitastjórnar Kaupþings. Ljósmynd/Hari
Gunnar
Hjálmarsson
drgunni@centrum.is
6 fréttir Helgin 10.-12. desember 2010