Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 10
Miðasala Hverfisgötu I 551 1200 I leikhusid.is
GEFÐU GóÐar
stUndir
Gjafakort Þjóðleikhússins
á hátíðartilboði
GjaFakort
Gildir á sýningu að eigin vali og rennur aldrei út.
Fjöldi glæsilegra sýninga í boði!
Hátíðartilboð 3.500 kr.
BalliÐ á BEssastöÐUm
Nýtt og sprellfjörugt barnaleikrit
eftir Gerði Kristnýju.
Frábær jólagjöf fyrir alla krakka!
Hátíðartilboð 2.800 kr.
Gleðileg jól
Kjarakröfur kynntar
Starfsgreinasambandið hefur kynnt Sam-
tökum atvinnulífsins kröfur sínar en flestir
kjarasamningar eru lausir. Meginmarkmið
sambandsins er að endurheimta kaup-
mátt sem glatast hefur frá hruni, minnka
atvinnuleysi og tryggja hinum lægst
launuðu kjarabætur. Lágmarkstekjur fyrir
dagvinnu verði 200.000 krónur. Stefna
Samtaka atvinnulífsins miðar að því að
ná samstöðu um atvinnusköpun og bætt
lífskjör, að allir aðilar vinnumarkaðarins
fari í sameiginlegan leiðangur og semji
á svipuðum nótum til þriggja ára. Aðilar
vinnumarkaðarins hittust á Hótel Nordica
í gær, fimmtudag, þar sem meðal annars
var rætt hvernig leggja bæri grunn að
endurreisn atvinnulífsins. -jh
Jólamarkaður
á Elliðavatni
Börn og fullorðnir finna margt við sitt
hæfi á jólamarkaði Skógræktarfélags
Reykjavíkur á Elliðavatni í Heiðmörk.
Jólamarkaðurinn verður opinn um
helgina og helgarnar fram að jólum milli
kl. 11 og 17. Þar selur Skógræktarfélagið
jólatré og ýmsan varning sem á uppruna
sinn í skógum Heiðmerkur. Yfir sjötíu
handverksmenn og hönnuðir bjóða vörur
sínar í gamla salnum og jólahúsum sem
komið hefur verið fyrir á hlaðinu við
bæinn á Elliðavatni. Menningardagskrá
er í gangi þar sem rithöfundar lesa upp
úr nýjum bókum sínum fyrir börn og full-
orðna. Í gamla salnum má síðan orna sér
á kakói og vöfflum. -jh
Hagstætt verð eykur
sölu sjónvarpstækja
Verð á sjónvarpstækjum er almennt
lægra nú en fyrir þremur árum, að sögn
Gísla Þorsteinssonar, upplýsingafulltrúa
Nýherja. Ástæður eru einkum hagstæðari
innkaup og mikil samkeppni sem skilar
sér í lægra verði. Þá hafa tækniframfarir
skilað sér í auknum áhuga neytenda, að
sögn Kristins Theodórssonar hjá Sony
Center og Sense Center í Kringlunni. Krist-
inn segir að verðlækkun hafi skilað sér í
talsverðri söluaukningu síðustu misseri.
Meðal nýjunga sem boðist hafa að undan-
förnu eru þrívíddar-sjónvarp. - jh
V ið höldum öllum kostnaði í lág-marki. Það er ástæðan fyrir því að við erum að opna þessa verk-
smiðju,“ segir Kristján Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Gosdrykkjaverk-
smiðjunnar Kletts, í samtali við Frétta-
tímann.
„Við enduðum með allt aðrar kostnað-
artölur heldur en þegar við byrjuðum.
Við keyptum verksmiðjuna í bútum frá
Bandaríkjunum og púsluðum henni
saman á staðnum. Það hefði aldrei verið
hægt að kaupa verksmiðju í Evrópu –
hún hefði orðið alltof dýr,“ segir Krist-
ján og bætir við að reynt verði að halda
rekstrarkostnaði í lágmarki. „Við mun-
um ekki auglýsa mikið heldur frekar
reyna að vekja á okkur athygli á annan
hátt. Það eru engin ofurlaun í boði hér.
Við munum ekki þurfa neina risamark-
aðshlutdeild til að lifa af,“ segir Krist-
ján en alls munu á bilinu 25 til 30 manns
vinna hjá fyrirtækinu. Kristján er einn
25 hluthafa í fyrirtækinu. Aðspurður
segir hann að enginn eigi yfir 20% hlut.
Hann telur að vörur fyrirtækisins eigi
fullt erindi á innlendan markað. „Það
er gerð ríkari krafa um hollari drykki
hér á landi. Við værum auðvitað ekki að
þessu nema af því að við teljum okkur
hafa eitthvað fram að færa,“ segir Krist-
ján. Og viðtökurnar hafa verið frábærar
að sögn Kristjáns. „Þetta gengur betur
en við þorðum að vona.“
Aðspurður hvort það sé ekki óðs
manns æði að ætla í samkeppni við aðra
og stærri framleiðendur kóladrykkja
segir Kristján þá ekki vera samkeppnis-
aðila. „Við ætlum ekki í samkeppni við
kók eða pepsí en vonandi getum við búið
til vöru sem er valkostur við hina drykk-
ina. Okkar kóladrykkur er sykurminni
en kók og pepsí en þó ekki sykurlaus.
Samt helst bragðið að sögn þeirra sem
hafa smakkað og líkja því við hið gamla
góða Spur. Það var flottur drykkur í flott-
um flöskum,“ segir Kristján.
Til að byrja með býður Klettur upp á
þrjár tegundir vatns og einn kóladrykk.
„Við erum með fullt af drykkjum á teikni-
borðinu. Það eru þrír gosdrykkir og
tveir vatnsdrykkir klárir til framleiðslu.
Við erum komnir til að vera,“ segir Krist-
ján kotroskinn.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Iðnaður ný gosVerksmIðja rís í reykjaVík
Bjuggu til verksmiðju
úr bandarískum bútum
Gosdrykkjaverksmiðjan Klettur var opnuð formlega á þriðjudaginn þegar Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra vígði verksmiðjuna. Framkvæmdastjórinn segir að öllum kostnaði hafi verið haldið
í lágmarki.
Við ætlum
ekki í sam-
keppni við
kók eða
pepsí en
vonandi
getum við
búið til vöru
sem er val-
kostur við
hina drykk-
ina.
„Sit hér og sýp á glænýjum
íslenskum cola drykk.
Kletta Gos Cola heitir hann
og er framleiddur af Gos-
verksmiðjunni Kletti. Þar er
mikill metnaður á ferð og
allskonar framtíðarplön um
gos í gangi sem er auðvitað
frábært. Ég býð spenntur
eftir fleiri tegundum. Ég
er nú enginn kólaisti, en
Kletta cola er ok, dáldið
eins og Spur held ég bara.“
Dr. Gunni, neytendafröm-
uður Fréttatímans, á blogg-
síðu sinni this.is/drgunni
Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gosdrykkjaverksmiðjunnar Kletts, hefur fulla trú á
því að vörur fyrirtækisins eigi erindi inn á íslenskan markað. Ljósmynd/Hari
10 fréttir Helgin 10.-12. desember 2010