Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 12
25% afsláttur af
öllum jólavörum
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Sængur
fatnaðu
r
Jólasvei
nadúka
r
Jólasvun
tur & p
úðar
Nýtt ko
rtatíma
bil
föstudag & laugardag
UMSÓKNARFRESTUR
UM NÁM
Á VORÖNN ER TIL
11. DESEMBER
www.hr.is
F élög í Pepsi-deild karla í fótbolta vinna nú að stofnun samtaka sem eiga að leysa Félag efstudeildarliða
af hólmi. Eftir því sem Fréttatíminn kemst
næst telja menn að ný samtök, sem sækja
fyrirmynd til annarra Norðurlanda, geti
orðið sterkari – ekki síst í baráttunni við
KSÍ um meira fjármagn.
Baldur Stefánsson, varaformaður knatt-
spyrnudeildar KR, segir að félögin séu
að skoða þessi mál enda séu menn innan
þeirra sammála um að tekjuskiptingin á
milli félaganna og KSÍ undanfarin tíu ár
hafi ekki verið rétt. „Við sjáum þetta ein-
faldlega á því að KSÍ hefur vaxið gríðar-
lega á þessum tíu árum en félögin berjast
enn í bökkum. Er það eðlilegt?“ spyr
Baldur.
Hann segir að horft sé til landanna í
kringum Ísland. Þar hafi verið stofnuð
fyrirtæki í kringum efstu deildirnar sem
gefi félögunum meiri tekjur. „Við fengum
til okkar á fund framkvæmdastjóra þessa
félags í Noregi og hann lýsti því hvernig
þetta var unnið hjá þeim. Að hans mati
hefur þetta komið bæði sambandinu þar
og félögunum til góða,“ segir Baldur.
Og það er ljóst á máli Baldurs að félögin
vilja stærri sneið af köku KSÍ en nú er
uppi á borðinu. „Það vita allir hversu erfitt
það er að reka íþróttafélag. Opinberir
styrkir til afreksíþrótta eru engir og þetta
gagnast öllum. Það er okkar mat að KSÍ
hagnist á því ef félögin styrkjast. Það
getur varla verið stefna sambandsins að
blása batteríið út á kostnað félaganna,“
segir Baldur og bætir við að ekki hafi
borið á neinni mótstöðu frá KSÍ. „Við
förum yfir þetta í sameiningu. Það sem
Það er okkar mat
að KSÍ hagnist
á því ef félögin
styrkjast.
knattspyrna ný Félagasamtök í bígerð
Vilja stærri sneið
af köku KSÍ
Félög í efstu deild karla í fótbolta telja að KSÍ hafi blásið út undanfarin ár á kostnað félaganna.
liggur fyrir er að finna leið
sem kemur báðum vel,“
segir Baldur. Aðspurður
um tímasetningu segir
Baldur ómögulegt að segja
til um það. „Menn eru ekki
með neinn lokafrest. Þetta
vinnst í rólegheitum,“ segir
Baldur.
Geir Þorsteinsson, for-
maður KSÍ, segir í samtali
við Fréttatímann að það sé
vilji félaganna á ársþingi
sem ráði því hvernig sam-
tökin séu uppbyggð. „Það
sem skiptir máli er að við
spilum sem best úr þeim
tekjum sem hreyfingin fær
og að mínu mati hefur það
tekist vel í núverandi skipu-
lagi,“ segir Geir.
oskar@frettatiminn.is
Breiðablik varð Íslandmeistari á nýafstöðnu tímabili í Pepsi-deildinni. Ljósmynd/Teitur.
Ísland mun greiða Hollendingum 3%
fasta vexti vegna Icesave-reikninga
Landsbankans og Bretum 3.3%. Hol-
lendingar fá vexti greidda afturvirkt
frá 1. október 2009 til 30. júní 2016
en afborgarnir vegna Icesave hefjast
í júlí 2016. Vextir af afborgunum eft-
ir það munu ráðast af CIRR-vöxtum
evru og punds á þeim tíma. Endur-
greiðslutími ræðst af stöðu mála í júlí
2016 en greiðslufrestur verður aldrei
lengri en til 1. janúar 2046.
Stjórnvöld kynntu samkomulag
vegna Icesave-greiðslunnar kl. 18
í gær en áður hafði efnahags- og
skattanefnd, utanríkismálanefnd,
fjárlaganefnd og formönnum allra
stjórnmálaflokkanna verið gerð grein
fyrir niðurstöðum Icesave-samning-
annefndarinnar.
Fram kom hjá Jan Kees de Jager,
fjármálaráðherra Hollands, í gær
að Íslendingar hefðu samþykkt að
bæta Hollendingum og Bretum að
fullu Icesave-reikningana. Upphæð-
in nemur tæplega 200 milljörðum á
núgildandi gengi.
Alþingi á eftir að samþykkja samn-
inginn. Í Icesave-samningnum sem
samþykktur var á Alþingi í lok síðasta
árs, en felldur var í þjóðaratkvæða-
geiðslu, var ákvæði um 5,55% vexti.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Íslendingar hafa samþykkt að bæta
Hollendingum og Bretum að fullu
Icesave-reikningana.
Icesave aFborganIr heFjast árIð 2016
Vaxtagreiðslur til Breta og
Hollendinga 3,0 og 3,3 prósent
12 fréttir Helgin 10.-12. desember 2010