Fréttatíminn - 10.12.2010, Side 18
A ðeins níu voru í fyrra skráðir í minnsta trúfélag landsins sem kallast Heimakirkja.
Engin heimasíða eða símanúmer
eru gefin upp á trúfélagið sem fékk
tæpar 90 þúsund krónur frá ríkinu
í sóknargjöld á síðasta ári. Eiríkur
Sigurbjörnsson er forstöðumaður
félagsins, en hann rekur sjónvarps-
stöðina Omega. Ekki náðist í hann
en samkvæmt heimildum Frétta-
tímans eru óskyldir einstaklingar
skráðir í félagið, sem tengjast trúar-
legu sjónvarpsstöðinni.
Fimmtán trúfélög á
Íslandi eru með færri
en hundrað safnaðar-
meðlimi. Þar af eru
þrjú með tuttugu eða
færri á skrá.
Hjalti Zóphónías-
son, skrifstofustjóri
borgara- og neyt-
endaskrifstofu dóms-
mála- og mannrétt-
indaráðuneytisins,
segir að með nýjum
lögum um skráð trú-
félög frá árinu 1999 hafi þriggja
manna matsnefnd sem fari yfir
umsóknir nýrra trúfélaga tekið til
starfa. Þrjár til fjórar umsóknir ber-
ist árlega og eitt til tvö fáist skráð.
Ekki séu tiltekin viðmið um fjölda
safnaðarmeðlima en dæmi séu þó
um að umsóknum sé hafnað þar
sem félagar séu of fáir. Hann segir
að trúfélögin skili árlega skýrslu til
ráðuneytisins sem farið sé yfir.
„Það er virkt eftirlit með trúfélög-
um og sem betur fer þurfum við
sjaldan að grípa inn í,“ segir hann.
Ekkert trúfélag hefur, að hans sögn,
misst vottun sína, en eitt félag hefur
verið lagt niður.
Krossinn er tólfta stærsta trú-
félag á Íslandi samkvæmt töflu Fjár-
sýslu ríkisins sem greiðir skráðum
trúfélögum safnaðargjöld mánaðar-
lega, 834 krónur á hvern í fyrra en
lækkaði í 767 krónur í ár og fer niður
í 698 á því næsta, samþykki Alþingi
það. Meðlimir trúfélaga utan þjóð-
kirkjusafnaða voru 53.207 í fyrra og
fjölgaði um 4.970 milli ára. Sóknar-
gjöld til þeirra námu rétt rúmum
400 milljónum.
Meðlimir þjóðkirkjunnar voru
hins vegar tæplega 196 þúsund í
fyrra og sóknargjöldin námu 1.955
milljörðum króna. - gag
S igurbjörg Gunnarsdótt ir, dóttir Gunnars Þorsteins-sonar í Krossinum og fram-
kvæmdastjóri trúfélagsins, er tek-
in við keflinu sem forstöðumaður.
Hún var kosin til þess á fundi með
söfnuðinum á miðvikudagskvöld.
Nýir stjórnarmenn koma einnig inn
í stjórnina, þeir Magnús Sigurjón
Guðmundsson, Einar Ólafsson og
Eiríkur Þór Gardner. Yfirdjákninn
Nils Guðjón Guðjónsson var endur-
kjörinn og Sigurbjörg situr áfram í
stjórninni. Eiginmaður Sigurbjargar,
Aðalsteinn Scheving, óskaði eftir því
að segja skilið við stjórnina vegna
vensla og Björn Ingi Stefánsson,
sem nefndur hefur verið sem einn
stjórnarmanna í fjölmiðlum, segir
að þar hafi hann aldrei setið, enda
ekki í Krossinum heldur Veginum,
þótt hann hafi kennt í Krossinum og
tekið að sér verkefni framkvæmda-
stjóra fyrr á árinu.
Forsvarsmenn trúarhreyfingar-
innar Krossins standa nú á krossgöt-
um. Ásakanir sjö kvenna – allra utan
einnar undir nafni – um allt að ald-
arfjórðungs gamla kynferðisáreitni
Gunnars Þorsteinssonar á hendur
þeim, skekur söfnuðinn. Gunnar til-
kynnti dóms- og mannréttindaráðu-
neytinu að hann stigi til hliðar, sem
og tengdasonur hans, Aðalsteinn
Scheving. Í bréfi sem ráðuneytinu
barst frá forsvarsmönnum Krossins
kom fram að velja ætti nýja menn í
stjórn og forstöðumann á fundinum
með söfnuðinum.
Bréf Krossins er þó ekki það eina
sem dómsmálaráðuneytinu hefur
borist því Ásta Knútsdóttir, annar
tveggja talsmanna kvennanna, fer
þess á leit við ráðuneytið að það
„hlutist til um það í fyrsta lagi að
Gunnar Þorsteinsson, forstöðumað-
ur Krossins, verði sviptur réttindum
sínum sem forstöðumaður trúfélags
og í öðru lagi að fram fari rannsókn á
starfsemi Krossins og samneyti for-
stöðumannsins við safnaðarbörnin í
ljósi þeirra frásagna sem fram hafa
komið á undanförnum vikum um
kynferðislega áreitni og líkamlegt og
andlegt ofbeldi.“ Með bréfinu, sem
stílað er á dómsmálaráðherra, fylgja
frásagnir nafngreindu kvennanna
sex og þeirrar sem enn hefur ekki
stigið fram undir nafni. „Um for-
dæmi vísast til dæmis til rannsóknar
sem félags- og tryggingamálaráðu-
neyti lét fara fram á fjárreiðum Byrg-
isins annars vegar og hins vegar til
starfrækslu vistheimilanefndar,“
segir í rökum hennar fyrir því að
málið sé rannsakað.
Stefna á að minnka tengslin
Fjölskyldutengsl Gunnars og ann-
arra stjórnarmanna Krossins hafa
vakið athygli og segja viðmælendur
Fréttatímans slíkt fátítt meðal trú-
félaga. Einnig að framkvæmda-
stjóri trúfélagsins sitji í stjórninni,
því stjórnir hafi oftast eftirlitshlut-
verk gagnvart forstöðumanni og
framkvæmdastjóra. Þá hefur einnig
vakið athygli að eiginkona Gunnars,
Jónína Benediktsdóttir, er nú meðal
ráðgjafa trúfélagsins. Á safnaðar-
fundinum á miðvikudagskvöld var
einnig ákveðið að stofna fagráð sem
í sitji fagmenn s.s. læknir, geðlæknir
og sálfræðingur, sem taki á umdeild-
um málum sem kunna að koma upp
innan safnaðarins. Þjóðkirkjan er til
að mynda með sitt fagráð um með-
ferð kynferðisbrotamála, sem starf-
ar sjálfstætt án afskipta yfirstjórnar
kirkjunnar eða starfsmanna safnaða,
og var það stofnað í kjölfar biskups-
málsins svokallaða sem fyrst kom
upp árið 1996.
Nils Guðjón Guðjónsson, yfir-
djákni og stjórnarmaður í Krossin-
um, segir hugmyndirnar um fagráð-
ið nýkomnar fram og í vinnslu, enda
stutt síðan ásakanirnar á hendur
Gunnari komu fram. „Það tók þetta
mál 26 ár að komast upp á yfirborð-
ið. Við ljúkum því ekki á einni viku.“
Hann vísar því á Sigurbjörgu sem
fari með málið. Hún hefur ekki viljað
gefa neinar upplýsingar vegna við-
tals Fréttatímans um síðustu helgi
við þær Ólöfu Dóru Bartels Jónsdótt-
ur, sem lýsti reynslu sinni af Gunn-
ari og sakaði hann um kynferðislega
valdníðslu þegar hún var rétt undir
tvítugu, árið 1986, og
Framhald á næstu opnu
Trúfélag fjöldi fé
Þjóðkirkjan 195.576 1.954.977.696
Kaþólska kirkjan 6.650 66.473.400
Fríkirkjan í Reykjavík 6.008 60.055.968
Fríkirkjan í Hafnarfirði 3.735 37.335.060
Óháði söfnuðurinn í Reykjavík 2.196 21.951.216
Ásatrúafélagið 1.168 11.675.328
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía 1.043. 0.425.828
Búddistafélag Íslands 646 6.457.416
Aðventistar 619 6.187.524
Vottar Jehóva 545 5.447.820
Fríkirkjan Vegurinn 537 5.367.852
Heimild: Fjársýsla ríksins
Við erum sérfræðingar
í matvælaflutningum
Upplýsingar um afgreiðslustaði og opnunartíma
er að finna á landflutningar.is
Sendu jólapakkana með Landflutningum
og allt andvirði flutningsgjaldsins rennur
óskipt til jólaaðstoðar Mæðrastyrksnefndar.
Hámarksþyngd 30 kg eða 0,1 m3
890 kr.
GLEÐI
GJAFIR
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
44
0
55
Níu manna trúfélag um sjónvarpsstjóra Omega
Alls 35 trúfélög utan þjóðkirkjusafnaða fá um 400 milljónir króna í safnaðargjöld úr ríkissjóði en safnaðarmeðlimir eru ríflega 53 þúsund.
SAgA KROSSINS
Á krossgötum vegna ásakana
um kynferðislega áreitni
Sigurbjörg dóttir Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum hefur tekið við sem forstöðumaður trúfélagsins
af föður sínum. Hann hefur tilkynnt að hann stígi til hliðar „a.m.k. tímabundið meðan þetta gjörninga-
veður gengur yfir“ eins og hann lýsir á heimasíðu Krossins. Þar vísar hann til ásakana sjö kvenna sem
telja hann hafa beitt sig órétti og kynferðislegri valdníðslu fyrir allt að aldarfjórðungi.
Gunnar Þorsteinsson hefur tilkynnt dómsmálaráðuneytinu að hann stígi til hliðar
sem forstöðumaður Krossins. Gunnar er giftur Jónínu Benediktsdóttur sem er nú
meðal ráðgjafa Krossins.
18 fréttaskýring Helgin 10.-12. desember 2010