Fréttatíminn - 10.12.2010, Qupperneq 37
ur fjöldi blaðamanna, menningar-
tengd ferðaþjónusta getur haft gagn
af þessu og þar fram eftir götunum.
En það skiptir líka máli að við séum
ekki að fara fram með einhverja
glansmynd í anda þessarar lúðalegu
útrásar, þegar við héldum að við
kynnum öðrum þjóðum betur með
fé að fara. Við eigum að sýna breidd
íslenskra bókmennta, halda til haga
hinum krítíska þætti hennar. Þegar
Kínverjar voru heiðursgestir sættu
þeir harðri gagnrýni einfaldlega af
því að þeir eru einræðisríki, vildu
miðstýra hverjir fengju að taka til
máls, eins og við erum minnt á aftur
í sambandi við friðarverðlaunahafa
Nóbels. Við eigum að draga fram
þætti eins og þingsályktunartillög-
una um að Ísland skapi sér afger-
andi lagalega sérstöðu á sviði tján-
ingar- og upplýsingafrelsis (kennd
við IMMI), sem Alþingi samþykkti
í vor og vakið hefur mikla athygli
erlendis. Það sætir tíðindum ef við
viljum vera athvarf málfrelsis og
ekki veitir af, eins og heimurinn er
að þróast.“
Enginn mælikvarði gildur
nema heimsmælikvarðinn
Geta bókmenntirnar hjálpað okkar
ráðvilltu þjóð?
„Sá sem ekki lifir í skáldskap lifir
ekki af hér á jörðinni, segir held ég
Jón Prímus í Kristnihaldi Laxness.
Stundum finnst mér að við séum
eins og maður sem er að ranka við
sér í stofunni eftir hrikalegt fyllirí,
lítur í kringum sig og sér að hann
hefur brotið postulínið og týnt borð-
silfrinu, en bækurnar eru þó heilar
í skápnum. Og í því er fólgið gildi
bókmenntanna; við verðum að forð-
ast að leggja bara á þær mælikvarða
hins hagnýta. Það er nú einu sinni
svo að bókmenntir og listir geyma
drauma hvers samfélags, og sá sem
ekki á sér drauma fær martröð í
vöku.“
Og hvað gerist svo eftir haustið
2011? Er þá allt búið eða er móment-
ið í Frankfurt upphafið að einhverju
miklu meira?
„Það skiptir öllu að fylgja þessu
fast eftir, tryggja að myndarlega
verði stutt við útflutning íslenskra
bókmennta til langframa svo að
þessi vinna sé ekki unnin fyrir gýg.
En við eigum líka að efla þýðingar á
íslensku, taka þátt í þeirri samræðu
sem Goethe skilgreindi forðum sem
heimsbókmenntir. Það er nú svo að í
bókmenntum er enginn mælikvarði
gildur þegar upp er staðið nema
heimsmælikvarðinn.“
Jón Kaldal
kaldal@frettatiminn.is
„Í Þýskalandi einu má gera ráð fyrir þúsundum blaðagreina, útvarps- og sjónvarpsþátta.“
Helgin 10.-12. desember 2010
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Heimilistæki, ljós
og símar í miklu
úrvali.
Fleiri girnileg
jólatilboð.
Líttu inn og
gerðu góð kaup.
Kaffivél TC 60201
Fyrir 10 stóra og 15 litla bolla.
1100 W.
Jólaverð: 7.900 kr. stgr.
Gigaset AS180
Langur taltími, mikil hljómgæði.
Jólaverð: 5.900 kr. stgr.
Samlokugrill ST710
Fyrir tvær samlokur. 700 W.
Jólaverð: 6.700 kr. stgr.
Beja borðlampar
Þrír litir fáanlegir.
Jólaverð: 3.900 kr. stgr.
Ryksuga VSZ 3XTRM
Mjög kraftmikil ryksuga með
„compressor“ tækni.
Jólaverð: 29.900 kr. stgr.
1
2
3
4
5
6
7
Uppþvottavél SN45M203SK
Með fimm kerfum. Mjög hljóðlát og
vinnusöm.
Jólaverð: 139.900 kr. stgr.
Þvottavél WM 12Q460DN
Tekur mest 7 kg, 1200 sn./mín.
Jólaverð: 129.900 kr. stgr.
1
2
3
6
7
5
4
fyrir
Finnur þú ekki réttu jóla- eða afmælisgjöfina?
Gjafakort Arion banka hentar við öll tækifæri.
Hægt er að nota gjafakortið við kaup á vöru
og þjónustu hvar sem er. Þú velur fjárhæðina,
þiggjandinn velur gjöfina. Einfaldara getur það
ekki verið.
Gjafakort
Arion banka
er hægt að nota
hvar sem er
Gjafakortið fæst í öllum
útibúum Arion banka.