Fréttatíminn - 10.12.2010, Side 42
42 fréttir Helgin 10.-12. desember 2010
Nú er það eina í stöðunni að setja
í fimmta gír og klára jólagjafa-
kaupin. Flestar verslanir eru
opnar langt fram
eftir kvöldi og
það verður engin
afsökun þegar jóla-
pakkana vantar
undir tréð.
Gjafakort – þá fá allir eitthvað fallegt!
Blue Lagoon gjafakort eru fáanleg í verslunum Bláa Lónsins
á baðstað, að Laugavegi 15, Blue Lagoon spa og Hreyfingu í Glæsibæ.
Gisting í Bláa Ló
ninu – Lækningalind Blue Lagoon húðvörur Líkamsrækt Einkaþjálfun
Aðgangur í Bláa Lónið Spa meðferðir Snyrtimeðferðir Nudd Veitingar á LAVA
Gjafakort
Vellíðunardagatal
Við eigum það til að finna samviskuna naga okkur þegar líður á janúar. Allar þessar kræsingar
sem freistuðu svo á hátíðardögunum. Leyfðu þér að smakka á bakstrinum jafnt sem að fara í það
hóflega og mundu að hreyfing er holl, heilbrigð og hægt að gera hana skemmtilega. Njóttu í faðmi
fjölskyldunnar og hugsaðu ekki of mikið.
Nú er kominn tími fyrir hina
árlegu jólatiltekt. Komdu
þér í gírinn, settu jólatón-
listina í botn og dansaðu við
ryksuguna. Þér er óhætt
að sleppa líkamsræktinni
í dag.
11
16
21
26
31
15
20
25
3029
13
23
28
12
17
22
19
,,Mikilvægt er að skipta um snyrti-
vörur þegar kuldinn fer að gera
vart við sig. Snyrtivörur með raka
henta mun betur fyrir húð okkar
í kuldanum en þau sem innihalda
fitu. Mögulegt er að þær vörur sem
feitari eru frjósi frekar við húðina,”
segja förðunarfræðingar M.A.C.
14
Jólaundirbúningurinn tekur
ákveðna orku frá okkur og
af og til er mikilvægt að
við leyfum hlutunum að
snúast í kringum okkur
sjálf. Gefum okkur tíma til
að kíkja í spa eða nudd.
Nauðsynlegt að hreinsa
sálina og endurheimta týnda orku.
18
Þriðji sunnudagur í aðventu,
jólaskapið að detta inn og tími
til að njóta sín til hins ýtrasta.
Kertaljós, smákökur og jólatón-
list. Hlustaðu þó á líkama þinn og
farðu hóflega í smákökuátið.
Hressum upp á
útlitið fyrir hátíðarnar
og breytum jafnvel til.
Nýja klippingu eða annan
háralit. Splæsum í flottar
neglur eða gerum okkur
ferð í plokkun. Svona
einu sinni á ári.
24
Höldum hefðir okkar Íslendinga í
heiðri og skellum í skötuveislu á
Þorláksmessu. Þessi bragðmikli og
salti matur kallar á mikinn þorsta og
hefðin hjá mörgum er að deyfa
bragðið með íslensku brennivíni.
Förum þó hægt í sakirnar. Að-
fangadagur er á næsta leiti og það
er ósk okkar flestra að vera við
góða heilsu á þeim degi.
Hátíðisdagurinn runninn
upp. Allt tilbúið og tími til
slökunar fram að kvöldi.
Farðu í langt bað og dekr-
aðu við þig og þína. Njóttu
dagsins í faðmi þeirra sem
þér þykir vænt um.
Þrátt fyrir sólarleysið í
desember er mikilvægt að við
höldum okkur við snyrtivörur
með sólarvörn. Hún ver
okkur fyrir menguninni í
loftinu og öðrum óhrein-
indum.
Áramótin eru sá tími þegar við leyfum
áhyggjunum að fjúka. Klæðum okkur í
annan karakter, hendum okkur í glimm-
erkjólinn og háu hælana. Síðasti dagur-
inn til að viðra alla okkar ljótu ávana því
á morgun verða ný áramótaheit strengd.
Jóladagarnir líða hjá og við
höfum belgt okkur út af góðgæti.
Jólaboð á hverjum degi, jafnvel
tvisvar á dag, en reynum að
passa okkur á því sem við setjum
ofan í okkur. Gleymum svo ekki
að flestar líkamsræktarstöðv-
ar eru opnar í dag og höldum
líkamlegu formi okkar í standi.
27