Fréttatíminn - 10.12.2010, Qupperneq 47
V ið finnum fyrir miklum áhuga frá markaðnum, sér-staklega frá fyrirtækjum. Það er því eftirspurn eftir
bílnum,“ segir Rúnar Bridde, sölustjóri
hjá Ingvari Helgasyni, umboðsaðila
Nissan, en rafbíllinn Nissan Leaf var
á dögunum valinn bíll ársins 2011 í
Evrópu. Rúnar segir að stefnt sé að því
að flytja bílinn hingað til lands en það
verður ekki fyrr en í árslok 2011 eða
ársbyrjun 2012.
Aldrei í rúmlega aldar langri sögu
bílsins hefur rafbíll náð jafn langt og
aldrei áður hefur rafbíllinn verið nær
því að verða raunverulegur valkostur
almennra bifreiðaeigenda, segir á síðu
Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Þar
kemur fram að það voru 57 bílablaða-
menn frá 23 Evrópulöndum sem kusu
Nissan Leaf bíl ársins 2011. Talsmaður
valnefndarinnar, Svíinn Håkan Matson,
blaðamaður við Dagens Industri, segir
að Nissan Leaf sé sá bíll sem hafi brotið
ísinn fyrir rafbílana enda standi hann
á margan hátt jafnfætis hefðbundnum
fólksbílum hvað varði notagildi og akst-
urseiginleika.
Rúnar Bridde segir ótímabært að
segja til um verð bílsins hér á landi.
Hann verði eitthvað dýrari en sam-
bærilegur bensín- eða dísilbíll vegna
þess hve rafhlaðan sé dýr. Það vegi
hins vegar á móti að rafbílar beri ekki
vörugjöld. Þá verði rekstrarkostnaður
bílsins hverfandi.
Valið á bíl ársins í Evrópu að þessu
sinni kom á óvart. Bílaáhugamenn sem
fylgjast vel með bílaheiminum bjuggust
yfirleitt ekki við þessu enda er Nissan
Leaf ekki einu sinni fáanlegur ennþá,
sem jafnan hefur verið eitt af skilyrð-
unum fyrir því að bílar kæmu til greina.
Tímaritið Auto Motor & Sport í Svíþjóð
spurði lesendur sína hvaða bíll þeir
teldu að ynni titilinn að þessu sinni.
Einungis 6,3 prósent svarenda veðjuðu
á rafbílinn. Flestir, eða tæp 40 prósent,
veðjuðu hins vegar á hinn nýja Alfa
Romeo Giulietta. Sá bíll varð í öðru sæti
í valinu.
Nissan Leaf verður til afgreiðslu í
Danmörku í sumarlok 2011, að því er
þarlendir fjölmiðlar greina frá. Verðið
verður um 325 þúsund krónur danskar,
eða sem svarar um 6,6 milljónum ís-
lenskra króna. Athuga ber að bílar eru
yfirleitt talsvert dýrari í Danmörku en
hérlendis. Søren W. Rasmussen, sér-
fræðingur danska bílablaðsins Motor,
segir óvenjuskemmtilegt að aka Nissan
Leaf. Bíllinn sé í senn aflmikill en nán-
ast hljóðlaus.
Rúnar Bridde segir íslensk heimili
vel undir það búin að taka við rafbíl-
um en enn liggi ekki fyrir áætlun um
hleðslupósta víða um land. Það vanti
því tengingar ef menn ætli sér í lang-
ferðir á rafbílum, t.d. til Akureyrar.
Hann segir Nissan Leaf-rafbílinn fyrst
verða kynntan í löndum og borgum sem
rutt hafi brautina hvað þetta varðar. Í
London verða t.d. um 1.200 rafhleðslu-
póstar víðs vegar, um helmingi fleiri en
bensínstöðvar í borginni.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Sjö bílar í úrslit
Sjö bílar af 40 sem upphaf-
lega komu til greina sem
bíll ársins í Evrópu 2011
náðu í úrslit. Niðurstaða
kosningar valnefndarinnar
um hver yrði bíll ársins
af þeim sjö sem í úrslit
komust, var eftirfarandi:
1. Bíll ársins 2011: Nissan Leaf, 257 stig
2. Alfa Romeo Giulietta, 248 stig
3. Opel/Vauxhall Meriva, 244 stig
4. Ford C-Max/C-Max Grand, 224 stig
5. Citroën C3/DS3, 175 stig
6. Volvo S60/V60, 145 stig
7. Dacia Duster, 132 stig
Flestir reiknuðu með því að
Alfa Romeo Giulietta yrði
fyrir valinu en rafbíllinn frá
Nissan skaut öllum hefð-
bundnu bílunum ref fyrir
rass. -jh
Aldrei í rúmlega aldar langri sögu
bílsins hefur rafbíll náð jafn langt.
Val á bíl ársins í Evrópu 2011 kom á
óvart. Nissan Leaf er fyrsti rafbíllinn
sem nær þeirri eftirsóknarverðu
stöðu. Bíllinn kemur á markað í
Evrópu þegar líða tekur á næsta
ár en hérlendis verður hann í boði
undir árslok eða í upphafi ársins
2012. Þegar er eftirspurn eftir bíln-
um hérlendis.
Alfa Romeo Giulietta hafnaði
í öðru sæti í valinu um bíl
ársins 2011.
bílar 47 Helgin 10.-12. desember 2010