Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 63
Skógræktarfélag Reykjavíkur
www.heidmork.is
www.facebook.com/heidmork
P &
Ó
Velkomin í Jólaskóginn
í Heiðmörk
og Jólatrjáasöluna Kauptúni
í Garðabæ
Jólaskógurinn í Hjalladal Heiðmörk
opnar laugardaginn 11. desember
opið tvær helgar fram að jólum kl. 11-16
Komið og höggvið eigið tré! Í boði eru úrvals íslensk jólatré.
Einnig nýhöggvin tré á staðnum, tröpputré og eldiviður.
Jólasveinar, kakó og piparkökur handa öllum!
Borgarstjóri kemur ásamt fjölskyldu og velur sér tré kl. 11.
Jólatrjáasalan í Kauptúni Garðabæ
opnar föstudaginn 10. desember
opið virka daga kl. 15-21 og um helgar kl. 10-21 fram að jólum
Jólatrjáasalan í Kauptúni er við hliðina á Bónus í Kauptúni 3.
Þar gefst kostur á að versla úrvals, nýhöggvin
íslensk tré á góðu verði.
Jólamarkaðurinn á Elliðavatni Heiðmörk
opið allar helgar fram að jólum kl. 11-17
Íslensk jólatré, handverk og hönnun.
Fallegar jólaskreytingar úr skógarefni. Jólasveinar heilsa upp
á gesti. Rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum.
Barnastund í Rjóðrinu, harmonikkuleikur og kórsöngur.
í ll l i
l i
i l f j l l.
i i i i ! i l í l j l .
i i i , l i i .
l i , i ll !
j i fj l l l l. .
í i
f i
i i l. l l. f j l
l j l í i i li i í i .
f l l , i
í l i.
lli i i
i ll l f j l l.
l j l , .
ll j l i f i. l i il
i. i f l .
í j i , i l i .
Veisluþjónusta
Erfidrykkjur - Jólahlaðborð - Þorraveislur - Árshátíðir
Heimaveislur - Skírnarveislur - Fermingar
Afmæli - Brúðkaup - Partý
Er útskriftarveisla eða partý á næsta leiti?
Kynntu þér spennandi og girnilega tapas rétti á
www.soho.is
Örn Garðarsson, matreiðslumeistari
Soho catering veisluþjónusta • 692 0200 • orn@soho.is • www.soho.is
Hvaða ilm tengjum við jólunum? Fyrir
sumum er það hangikjöt eða rjúpur.
Öðrum finnst epla- og mandarínulykt
minna á jólin og svo er margháttaður
kryddilmur og kryddbragð sem við
tengjum við jólin og þó einkum og sér í
lagi við jólabaksturinn.
Jólalegustu kryddtegundirnar eru
kannski kanill og negull en svo mætti
líka nefna engifer, allrahanda og
kardimommur. Allar þessar kryddteg-
undir voru mikið notaðar fyrr á öldum
til að krydda alls konar rétti, bæði kjöt,
fisk og grænmeti, en í lok miðalda hurfu
þær mikið til úr evrópskri matargerð,
að minnsta kosti norður-evrópskri –
nema í kökubakstrinum. Þar hélt þetta
ilmríka, austurlenska krydd vinsældum
sínum og til urðu alls konar kryddaðar
smákökur, brauð og tertur.
Bragð og ilmur af flestu kryddi kemur
best fram þegar það hitnar. Það er þess
vegna sem heilt krydd er oft ristað á
pönnu áður en það er malað og það
er þess vegna sem kitlandi ilminn
leggur um allt hús þegar bakaðar eru
piparkökur.
Bragðmesta og ferskasta kryddið fær
maður með því að kaupa heilt krydd
og mala það en sumt af jólakryddinu
er mjög erfitt að mala í heimahúsum.
Það gildir til dæmis um negulnagla og
kanilstengur og þá er um að gera að
láta kryddið ekki verða mjög gamalt því
bragðið dofnar með aldrinum. Ef krydd-
ið er sjaldan notað getur borgað sig að
kaupa litla kryddbauka fremur en stóra
þótt þeir stóru séu hlutfallslega ódýrari
því að ef notaðar eru tvær teskeiðar
af negul á ári endist stóri baukurinn til
2025 eða svo og þá er hætt við að lítið
bragð sé eftir í kryddinu.
Krydd, hvort sem það er heilt eða
malað, á alltaf að geyma í loftþéttu
íláti á dimmum stað (nema ílátið sé
ógegnsætt), þurrum og svölum. Oft er
kryddhilla fyrir ofan eldavélina en það
er satt að segja einn versti staðurinn til
að geyma kryddið, einkum og sér í lagi
það sem sjaldan er notað.
En ef maður ætlar að baka smákökur
og í uppskriftinni er hálf teskeið af
einhverju kryddi sem maður á ekki og
hefur aldrei notað, þarf þá að kaupa
það og nota svo kannski aldrei aftur?
Nei, ekkert endilega. Ef þetta eru
kökur með fleiri kryddtegundum má
kannski sleppa þessu kryddi alveg eða
nota aðeins meira af hinum. En svo er
líka gott að eiga til brúnkökukrydd
eða einhverja ámóta kryddblöndu
og nota í staðinn. Og um að gera að
prófa sig áfram með kryddtegundir og
hlutföll í bakstrinum – kryddi í flestum
krydduðum smákökum og kryddkökum
er allt í lagi að breyta eftir smekk hvers
og eins.