Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 64
64 jólabaksturinn Helgin 10.-12. desember 2010
Kaka, eftirréttur og jólaskraut
– allt í senn
A
lgengasti jólaeftir-
rétturinn í Frakk-
landi er kakan buche
de Noël (jóladrumb-
ur). Þessi skemmti-
lega kaka hefur breiðst út víða á
seinni árum, enda er hún sérlega
jólaleg og hægt að skreyta hana
eins og hugurinn girnist. Hún er
þó alltaf gerð þannig að hún minnir
á bút af trjábol. Uppruna kökunnar
er líka að leita í þeirri fornu hefð
að brenna stóra trjádrumba í eld-
stæði heimilisins yfir jólin og
hefur sá siður verið rakinn aftur í
heiðni. Oft leitaði fjölskyldan uppi
stærsta trjádrumbinn sem unnt var
að finna og kom honum fyrir í eld-
stæðinu um vetrarsólstöður, það
er að segja rétt fyrir jól, og brenndi
hann svo um jólin til að fagna
endurfæðingu sólarinnar og eldaði
jólamatinn við hitann frá honum.
Þetta var talið færa heimilinu
gæfu.
Þegar opin eldstæði viku fyrir
brenniofnum og eldavélum var
ekki lengur hægt að viðhalda þess-
um gamla sið en Frakkar gripu
þá til þess ráðs að baka til jólanna
köku sem minnti á trjábol. Þessi
siður varð til í París upp úr 1870 og
varð þegar mjög vinsæll.
Buche de Noël er fremur nafn
á kökutegund en einni ákveðinni
köku því til eru margar og býsna
ólíkar uppskriftir. Upphaflega var
reyndar um að ræða lagköku úr
mörgum þunnum botnum sem
lagðir voru saman með kremi;
kakan var svo skorin til þannig að
hún minnti á trjádrumb og kremi
smurt á hana. Nú er alltaf notuð
rúlluterta og annar endinn, eða
báðir, skorinn af og festur utan á
tertuna til að líkjast kvistum eins
og á alvörutrjábol.
Tertan getur verið ljós eða dökk
og fyllingin einnig; kremið utan
á er yfirleitt súkkulaðikrem þótt
hvítir jóladrumbar sjáist einnig.
Allt þetta má bragðbæta á ýmsan
hátt. Algengast er að tertan sjálf
sé hveitilaus svampterta en það
er þó alls ekki algilt og botninn
í uppskriftinni sem hér fylgir er
það ekki. Í Frakklandi er oft notað
kastaníukrem í fyllinguna en hér-
lendis er erfitt að fá hráefni í það
og því þarf að grípa til annarra
ráða. Auðvitað er vel hægt að nota
smjörkrem, bæði utan á kökuna og
í fyllinguna, en það gæti þó verið
fullsætt og því er ágætt að nota
eitthvert annað krem í fyllingu,
til dæmis rjómakrem eins og gert
er í uppskriftinni sem hér fylgir.
Ef það er gert er ágætt að blanda
dálitlu búðingsdufti saman við
rjómann svo að hann verði stífari
og auðveldara sé að rúlla tertunni
upp með fyllingunni án þess að
hún þrýstist út úr henni.
Jóladrumb má skreyta á ótal
vegu, með ætu skrauti og óætu,
til dæmis berjum, súkkulaði-lauf-
blöðum eða skrautsykri. Víða er al-
gengt að búa til litla marenssveppi
og setja þá á kökuna til skreyting-
ar. Það má gera með því að þeyta
marens á hefðbundinn hátt, setja
hann í sprautupoka með sléttum
stút og sprauta litlar marenskúlur
(sveppahatta) og stutta leggi á bök-
unarpappír. Þetta er svo bakað og
látið kólna og síðan eru hattarnir
límdir á stönglana, til dæmis með
ögn af bráðnu súkkulaði, svepp-
irnir festir á trjábolinn og svolítið
kakóduft e.t.v. sigtað yfir.
Rúllu tertu-
botn:
3 egg og 3 rauður að
auki (við stofuhita)
175 g sykur
1 tsk. vanillusykur
¼ tsk. salt
75 g hveiti
4 msk. maísennamjöl
4 msk. kakóduft
Hitaðu ofninn í 200°C
og fóðraðu rúllutertu-
form eða annað form,
helst um 25x35 cm,
með bökunarpappír.
Þeyttu egg, eggjarauð-
ur, sykur, vanillusykur
og salt mjög vel saman.
Blandaðu hveiti, maís-
ennamjöli og kakódufti
saman í annarri skál.
Sigtaðu það svo yfir
eggjablönduna og
blandaðu gætilega
saman með sleikju.
Helltu deiginu í papp-
írsklædda formið og
smurðu því jafnt yfir.
Settu rúllutertubotninn
strax ofarlega í ofninn
og bakaðu hann í um
10 mínútur, eða þar til
hann hefur lyft sér vel
og er svampkenndur.
Breiddu hreint
viskastykki eða nýja
bökunarpappírsörk á
vinnuborð og hvolfdu
rúllutertubotninum
á hann um leið og þú
tekur hann úr ofninum.
Losaðu bökunarpapp-
írinn frá tertubotninum
og rúllaðu honum svo
upp með viskastykkinu
eða nýja bökunarpapp-
írnum. Láttu kökuna
kólna alveg.
Fylling:
250 ml rjómi
75 g flórsykur
4 msk. Royal-búðings-
duft (súkkulaði eða
vanilla)
1 msk. kakóduft og 1
tsk. vanillusykur eða 2
msk. Grand Marnier
Þeyttu allt vel saman
og kældu kremið svo.
Smurðu því á tertuna
og rúllaðu henni
gætilega upp. Láttu
samskeytin snúa niður.
Krem:
125 g suðusúkkulaði
125 g smjör, lint
200 g flórsykur
3 eggjarauður
2 tsk. skyndikaffiduft, 2
tsk. vanillusykur eða 1
msk. líkjör
Bræddu súkkulaðið í
vatnsbaði og láttu það
kólna svolítið. Hrærðu
smjör, flórsykur, eggja-
rauður og bragðefni
vel saman og blandaðu
svo súkkulaðinu saman
við. Skerðu endana
af rúllutertunni á ská
og notaðu svolítið af
kreminu til að festa þá
á hana svo þeir verði
eins og kvistir á trjábol.
Smurðu svo kreminu
jafnt á alla tertuna og
dragðu gaffal nokkrum
sinnum eftir endilangri
tertunni og kvistunum
til að búa til mynstur.
Skreyttu hana eftir
smekk og sigtaðu e.t.v.
flórsykur yfir eins og
snjókorn.
Jóladrumbur (Buche de Noël)
Bæjarlind 16 - Kópavogur - S: 553 7100 - linan.is
Opið mán til fös 12 - 18 laug 11 - 16 sunn 13 - 16
Blanch púðar með fiðurfyllingu
50x50 kr. 6.750
Noble púðar með fiðurfyllingu
50x50 kr. 6.980
Manchebo - sófi 224x100
kr. 226.800
Verdi leðurstóll
75x80 kr. 136.900
Varmland
kúruteppi
170x130
kr. 8.750
INNBYGGÐ
KVÖRN!
KRYDDAÐU
UPP Á NÝJUNGUM
KRYDDKVARNIR – ÞVÍ AÐ NÝMALAÐ ER BEST
Getur þú
verið
heimilisvinur
Dieter?
www.soleyogfelagar.is