Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 80
80 bíó Helgin 10.-12. desember 2010
BT SKEIFAN - BT GLERÁRTORG S: 550-4444 - www.bt.is
9.520 Full búð
af spilum og
leikföngum
4.999
Jólamyndirnar 2010
Á rið sem nú er heldur farið að styttast í annan endann hefur verið óvenjulíflegt hvað íslenskar bíómyndir varðar og því lýkur með frumsýn-
ingu á Gauragangi sem óhætt er að segja að beðið sé
með nokkurri eftirvæntingu.
Gunnar B. Guðmundsson leikstýrir myndinni
sem er byggð á bókinni Gauragangi eftir Ólaf Hauk
Símonarson frá 1988. Bókin naut strax mikilla
vinsælda og árið 1991 kom út sjálfstætt framhald
hennar, Meiri gauragangur. Efni bókarinnar hefur
margsannað sig en leikverk sem byggt er á henni
hefur gert það gott á fjölunum, nú síðast í Borgarleik
húsinu.
Árið er 1979 og hin sextán ára andhetja, töffari
og snillingur Ormur Óðinsson er á lokaári sínu í
gagnfræðaskóla. Hann hefur takmarkaðan áhuga á
náminu enda er margt sem glepur hugann eins og til
dæmis djamm, vinirnir, gullgerð og auðvitað ástin.
Gauragangi hefur verið lýst sem drepfyndinni en
um leið alvarlegri þroskasögu skemmtilegrar and-
hetju og vinsældir Orms hingað til benda eindregið
til þess að það sé löngu tímabært að hann láti sjá sig
í bíó.
Leikstjórinn Gunnar á að baki stuttmyndina Kara
mellumyndina, Astrópíu og hann leikstýrði áramóta
skaupi Sjónvarpsins í fyrra og endurtekur leikinn í
ár. Hann skrifar handritið að Gauragangi ásamt Ottó
Geir Borg sem var annar handritshöfunda Astrópíu
og í höfundateymi Gunnars í Skaupinu.
Alexander Briem fer með aðalhlutverkið í mynd-
inni en í öðrum hlutverkum eru Hildur Berglind
Arndal, Eygló Hilmarsdóttir, Atli Óskar Fjalars-
son, Sigurbjartur Atlason, Steinn Ármann Magn-
ússon, Edda Arnljótsdóttir, Guðrún Bjarnadótt-
ir, Snorri Engilbertsson, Þorsteinn Bachmann
og Stefán Jónsson.
Gauragangur verður frumsýndur á öðrum degi
jóla.
gauragangur
Gauragangur á jólum
Ormur hefur um margt að hugsa og því er eðlilega endalaus gauragangur í kringum hann.
Bíóhúsin halda
þeirri hefð að bjóða
upp á bitastæðar
bíómyndir yfir
hátíðarnar og venju
samkvæmt er þess
gætt að sem flestir
geti fundið eitt
hvað við sitt hæfi.
Bíójólin þetta árið
eru fjölskylduvæn og
boðið er upp á eina
íslenska gaman
mynd, Gauragang,
en sú saga hefur
margsannað sig
sem góð skemmtun.
Gauragangur, TRON:
Legacy og fjöl
skyldugrínið Little
Fockers verða allar
frumsýndar á annan
í jólum en blái geim
ofvitinn Megamind
tekur forskot á
sæluna og mætir í
bíó 17. desember.