Fréttatíminn - 10.12.2010, Side 86
86 dægurmál Helgin 10.-12. desember 2010
Desembertilboð
Digranesvegur 10 // 200 Kópavogur // sími 527 2777 // info@mysecret.is // www.mysecret.is
tilboð á aada í 5 lítra umbúðum í desember
eftir áramót koma nýjar 4 lítra umbúðir fyrir aada drykkinn. Þess vegna
bjóðum við nú 5 lítra umbúðirnar á sérstöku tilboðsverði. tilboðið getur
þú nálgast hjá okkur að Digranesvegi 10 í Kópavogi eða hjá sölufulltrúum
okkar sem eru að finna á heimasíðu okkar www.mysecret.is
Frí heimsending fyrir eldri borgara á
höfuðborgarsvæðinu á þriðjudögum og fimmtudögum.NÝTT
tilboðið gildir á meðan birgðir endast.
Tilboð4.900
Þ að var mjög gaman að klæða hann upp enda var hann ljúfur, góður og til í allt,“ segir Guðmundur Jörundsson fatahönnuður hjá
Kormáki og Skildi. „Hann er ljós yfirlitum og
huggulegur þannig að við ákváðum að fara svolítið
með hann í skútukallinn og sumarfíling,“ segir
Guðmundur og bætir við að hann telji Gilz vel geta
komist upp með þennan stíl dagsdaglega. „Ég held
að það væri bara gott tvist hjá honum að halda sig
við þetta þar sem hann er nú kominn í Rithöfunda-
sambandið og svona.“
Sjálfsagt má með sanni segja að stílbreytingin sé
tímabær þar sem Egill er nýorðinn fullgildur með-
limur í Rithöfundasambandi Íslands með þrjár bæk-
ur undir beltinu sem allar miða að því að siðbæta ís-
lenska karlmenn en nýjasta bókin hans, Lífsleikni,
er byrjuð að klifra upp metsölulistana.
„Mér leið bara furðuvel í þessu,“ segir Egill,
spurður hvernig honum lítist á breytinguna. „Það
kom mér reyndar á óvart og ég hélt að mér myndi
líða hræðilega. Ætli það spili ekki eitthvað inn í að
ég er nýkominn í Rithöfundasambandið og þurfti
að breyta um stíl. Maður verður auðvitað að fitta
inn þarna og nú er ég kominn í rithöfundalúkkið.
Ég ætla að taka alla þröngu bolina, níðþröngu
gallabuxurnar og allt þetta hnakkadót sem ég á og
brenna það. Fólk má í framtíðinni eiga von á því að
ég verði klæddur svona eins og alvöru rithöfundur.“
Gilzenegger hefur í hyggju að gefa út endur-
skoðaða útgáfu af sinni fyrstu bók, Biblíu fallega
fólksins, á næsta ári enda sé margt þar sem þurfi
að skoða í nýju ljósi. „Hárgreiðslan sem ég var með
þarna og orðaforðinn ... ég var bara með allt lóðrétt
niður um mig. Ég var bölvaður dóni þarna á árunum
2005 og 2006. Það er ótrúlegt hvernig drengur eins
og ég get farið úr dóna yfir í mesta herramann sem
við Íslendingar eigum. Nú er ég metsöluhöfundur í
mannasiðakennslu, með sjónvarpsþætti um manna-
siði og allt að gerast. Boðskapurinn í þessu er að
allir þessir dónar og rasshausar sem eru þarna úti
og halda að þeir eigi ekki séns, þeir eiga séns. “
toti@frettatiminn.is
Breyttist úr dóna
í herramann
Egill Einarsson, sem er langbest þekktur sem Gilzenegger,
segist á örfáum árum hafa breyst úr dóna í sannan herramann.
Gilz veit auðvitað að fötin skapa manninn og herramenn þurfa
að gæta þess vel í hverju þeir ganga. Fréttatíminn fékk fagur-
kerana í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar til að finna Agli
nýjan stíl sem fellur að breyttum manni.
Egill mætti til Kormáks og Skjaldar
í æfingagallanum sem þykir ekki
boðlegt þegar virðulegur rithöf-
undur er annars vegar.
Nýr og betri maður. Sannkallaður
herramaður sem getur borið höfuðið
hátt innan um nýju félagana sína í Rit-
höfundasambandi Íslands.
gilzenegger: Breytir um stíl
Maður
verður
auðvitað
að fitta inn
þarna ...
fyrir
eftir