Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 92

Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 92
92 dægurmál Helgin 10.-12. desember 2010  Plötuhorn Dr. Gunna a long time listening  Agent Fresco Færni og rokkuðu innsæi Agent Fresco hefur fleygt fram síðan bandið sigraði í Músíktilraunum 2008. Þetta heyrist á lögunum fimm sem voru á fyrstu plötu bandsins en eru hér í nýjum galvaniser- uðum súperútgáfum. Þessir framúrskarandi kláru rokkstrákar spila háloftarokk með flóknu og djúphugsuðu spilverki, en lögin mættu vera melódískari svo að þau skildu meira eftir sig en andköf yfir leikninni. Þetta er þó alveg frábært stöff þegar það er best, en bandið ætlar sér aðeins um of á rúmlega klukku- tíma langri plötu og hefði mátt skera aðeins niður. Jukk  Prinspóló Svavar Pétur Eysteins- son er líka í hljómsveit- inni Skakkamanage og þarf að hlusta á aðra þar. Hann er einráður sem Prinspóló og tímir ekki að sigta út undir- málslög. Það er dáldið af þeim á þessari plötu, innhverfu gítardútli sem bliknar við hliðina á góðu beinskeyttu lögunum. Þau er allnokkur og þá er fjör. Sjoppulíf og mis- heppnuð stefnumót eru í forgrunni í spriklandi skemmtilegum textum. Þegar allt gengur upp, eins og t.d. í lögunum „Mjaðmir“ og „Niðrá strönd“, er Prinsinn konungur. Konungur sjoppupoppsins! thoughts, Words & actions  Authentic The Exception Magnús Þór Gylfason, sem kallar sig Authentic The Exception, rappar á ensku. Hann hefur verið mörg ár að vinna að þessari fyrstu plötu sinni með aðkeyptu vinnuafli tónlistarmanna og rappara, aðallega erlendu. Platan er þó æði tíðindalítil. Sándið oft gamaldags og þunnt eins og hálfgert demó og rappflæði Magnúsar mætti vera slungnara. Textarnar stundum klisja eins og þetta eilífa röfl um að „rap’s not dead“. Víða glittir þó í ferskari lendur eins og í hinu kraftmikla „Ceremonial Master“ og hinu loð- mjúka „Not Dead“. „… merkileg bók … falleg og óvenjuleg.“ KB / Kiljan „... falleg saga, innihaldsrík ... á erindi til allra.“ IG / Morgunblaðið Heillandi verðlaunabók PBB / Fréttatíminn BarnaBækur, 28. nóvemBer Félag íslenskra bókaútgeFenda 3. sæti prentu n komin2. S næfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir hönnuðu jólaköttinn og Þórarinn Eldjárn samdi ljóð sem fylgir honum en í ljóðinu býður Þórarinn upp á nýja sýn á jólaköttinn sem hefur ef til vill verið misskilinn eftir allt saman. „Eftir að styrktarfélagið bað okkur Hildigunni að leggja verkefninu lið þetta árið kom það í okkar hlut að velja aðila úr fjölskyldu jólasveinanna til að kljást við,“ segir Snæfríð. „Mannétandi óarga- dýrið varð fyrir valinu hjá okkur vegna skemmtilega undarlegrar tilvistar þess og þeirra umdeilanlegu skilaboða sem jólakettinum hefur verið ætlað að koma á framfæri í gegnum tíðina. Það er merki- legur boðskapur að hóta fátæklingum þjóðfélagsins því að fái þeir ekki nýja flík séu þeir ekki aðeins hornreka heldur eigi þeir einnig á hættu að vera étnir af hús- dýri Grýlu og Leppalúða.“ Snæfríð segir að sú myndræna fram- setning sem jólakötturinn býður upp á hafi einnig haft áhrif á val þeirra. „Við vildum halda í eitthvað íslenskt og kunn- uglegt en ljá honum samt einhvern nýjan svip og okkur fannst áhugavert að hafa jólaköttinn passlega úrillan og illilegan á svip. Þórarinn gengur reyndar út frá því að kisi hafi kannski verið misskilinn alla tíð og innræti hans sé ekki jafn illt og af er látið.“ Allir sem koma að þessu árvissa verk- efni Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, jafnt listafólk sem söluaðilar, þiggja enga þóknun fyrir framlag sitt. „Þetta var mjög skemmtileg vinna í alla staði og málefnið er gott og brýnt þannig að það var alveg sjálfsagt mál að leggja þessu lið,“ segir Snæfríð. Klaufabárðarnir komnir í þriðja og síðasta sinn Hinir tékknesku Klaufabárðar hafa notið fádæma vinsælda allt frá því að fyrstu sjónvarpsþættirnir um þá bræður komu út á áttunda áratug síðustu aldar. Undanfarin tvö ár hafa diskar með þáttunum komið út á Íslandi og selst vel og í ár er þriðji og síðasti diskurinn gefinn út. Sá diskur lokar hringnum því þar með eru allir 35 þættirnir, sem gerðir voru um þessa geðþekku, uppfinningasömu og einföldu bræður, útgefnir. Það sem þykir best við þessa þætti er að þeir eru lausir við allt ofbeldi og hraða. Ekkert tal og hið þekkta stef malar undir uppátækjum bræðranna. Mannétandi óargadýrið varð fyrir valinu hjá okkur vegna skemmtilega undarlegrar tilvistar þess.  Jólakötturinn Styrkir fötluð unGmenni Kærleiksríkur jólaköttur Ár hvert leitar Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra til hönnuða og rithöfundar og fær þá til að hanna Kær- leikskúluna og viðbót við óróa Styrktarfélagsins. Munirnir eru seldir í hálfan mánuð á aðventunni og allur ágóðinn rennur til fatlaðra barna og ungmenna. Þegar óróinn er annars vegar er einhver einn úr fjöl- skyldu Grýlu tekinn fyrir og að þessu sinni varð sjálfur jólakötturinn fyrir valinu. Jólakötturinn er fimmta fyrirbærið í jólasveinaseríu Styrktarfélagsins og bætist við óróann þar sem fyrir eru á fleti Grýla, Kertasníkir, Hurðaskellir og Ket- krókur. Kærleikskúlan er aftur á móti sú átt- unda í röðinni. Katrín Sigurðardóttir hannar kúluna að þessu sinni en hún hefur átt mikilli velgengni að fagna upp á síðkastið og opnaði á dög- unum einkasýningu í Metropolitan-safninu í New York. Kærleikskúlan er framleidd í takmörk- uðu upplagi auk þess sem kúlan og jóla- kötturinn eru seld í takmarkaðan tíma og sölunni lýkur 18. desember. Jólakötturinn ásamt Snæfríð og Hildigunni, sem gáfu honum útlit, og Þórarni Eldjárn sem býður upp á leiðréttingu á eðli kattarins í nýju ljóði. Heimshornaflakk í borðspili Fjör til enda er nýtt íslenskt borðspil sem, eins og nafnið bendir til, er hugsað til þess að halda spilurum spenntum frá upphafi til leiksloka. Arnaldur Gauti Johnson er höfundur spilsins en hann segir hugmynd- ina að því vera viðbragð sitt við skorti á spili þar sem leikmenn þurfi ekki að svara sérhæfðum spurningum, ráða í orð eða leika hlutverk. „Ég held að það hafi ekkert fjörugt íslenskt spil sem er ekki spurninga- eða orðaspil komið út síðan Hættuspilið kom út fyrir meira en tíu árum,“ segir Arnaldur. Í spilinu flakka leikmenn um heiminn og lenda í ýmsum hremmingum og ævintýrum. Þeir geta til dæmis unnið ferð með einkaþotu til Suður- Amer- íku, komist áfram á reiðhjóli, með lest, í leigubíl eða setið fastir í heimsókn á Norðurpólnum. Fólk þarf ekki að liggja lengi yfir spilaleiðbeiningum og hægt er að læra á spilið á nokkrum mínútum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.