Fréttatíminn - 30.12.2010, Side 20
Orgelkvartettinn Apparat Pólýfónía (98 stig)
Önnur plata
Orgelkvartettsins
Apparats,
Pólýfónía, er
önnur besta plata
ársins og fylgir
fast á hæla Jónsa.
Platan er sjálf-
stætt framhald
fyrstu plötunnar
sem kom út árið
2002 og sýnir kvartettinn í fantaformi. Bandið er í hressu
skapi, melódískt og poppað, og nýtir sér alls konar svöl
evrópsk poppmynstur eins og krautrokk, kraftwerkað
töluvpopp og ítölsk hryllingsmyndahljóðskor til persónu-
legrar poppgerðar. Þá þykir umslagið Sigga Eggerts
algjört augnakonfekt.
Jónas Sigurðsson Allt er ekkert (76 stig)
Jónas var í Sólstrandargæjunum í gamla daga en sneri
aftur 2007 með
plötuna Þar sem
malbikið svífur
mun ég dansa.
Platan fékk góða
dóma og var eins
konar forsmekkur
að þessari sem
fékk vægast sagt
frábæra dóma.
Ákveðnir tramp-
taktar, kraftmikill blástur og safarík smáatriði mynda
mjög sterka heild sem liggur einhvers staðar á milli líf-
rænnar soul-tónlistar og blúsrokks Mugisons. Jónas flytur
nútímafirringartexta af sömu ákefð og suðurríkjapredikari,
en er líka lífsglaðari inni á milli.
Retro Stefson Kimbabwe (71 stig)
Önnur plata Retro
Stefson er lífsglöð
og spennandi, full
af skemmtilegum
popplögum þar
sem nostrað er við
smáatriðin. Platan
er heilsteypt þótt
áhrifin komi alls
staðar að; diskó,
afróbít, indiepopp
og þungarokk
standa hlið við hlið eins og ekkert sé sjálfsagðara. Þéttleiki
og fantagóð tök bandsins á músíkinni eru ekki síst merki-
leg í ljósi þess að meðlimirnir eru varla orðnir tvítugir.
Agent Fresco A long time listening (68 stig)
Sigurband Músik-
tilrauna 2008
stígur fram með
fyrstu stóru plöt-
una sína, rúmlega
klukkutíma langa
og mjög metn-
aðarfulla. Bandið
skipa framúrskar-
andi klárir rokk-
strákar sem spila
háloftarokk með flóknu og djúphugsuðu spilverki.
Moses Hightower Búum til börn (53 stig)
Þessi sveit sló
óvænt í gegn
á árinu með
fyrstu plötunni
sinni. Sótt er í
ofursvalan brunn
sálartónlistar sjö-
unda og áttunda
áratugarins og
búið til afslappað
popp með góðum
íslenskum textum sem minna ofurlítið á Spilverkið.
Ólöf Arnalds Innundir skinni (48 stig)
Ólöf fylgir hér
eftir fyrstu
plötunni sinni,
Við og við, sem
kom út 2007. Ólöf
er í þróun sem
listamaður en
sami einlægi og
íslenski tónninn
er sleginn og á
nýju plötunni.
Ólöf fór víða með plötuna og spilaði úti um allan heim til að
kynna hana.
Prófessorinn & Memfismafían Diskóeyjan (39 stig)
Það geta ekki allir
verið gordjöss
söng Páll Óskar
eins og „síld með
mikilmennsku-
brjálæði“. Þetta
var aðalsmellur
þessarar stór-
skemmtilegu
(barna)fönkóperu
eftir Braga
Baggalút og Óttarr Proppé. Óperan stefnir á leiksvið 2012
– það er alltaf eitthvað að hlakka til!
- BlazRoca Kópacobana (33 stig)
Aðal Rottwei-
lerinn gerði það
gott með fyrstu
sólóplötunni
sinni. Þetta er
mikil hlussa,
rúmlega sjötíu
mínútna stórvirki
í glæsilegu
umslagi. Lögin
koma víða við –
bæði í djammstuði og í dýpri pælingum – og yfir öllu hvílir
skemmtileg Kópavogsstemning.
- Seabear We built a fire (33 stig)
Önnur plata
Sindra Más
Sigfússonar og
félaga hans í
Seabear kom út
í mars og fékk
góða dóma, m.a.
fjórar stjörnur
hjá hinu víðlesna
enska tímariti
Q. Bandið hefur
spilað linnulítið í Evrópu og Bandaríkjunum á árinu og er
þegar farið að spá í næstu plötu sem á að koma út 2012.
Poppaður Jónsi þykir bestur
Í vali um bestu íslensku plötu ársins leitaði Dr. Gunni til yfir sjötíu tónlistarfræðinga og bað þá að tilnefna þær fimm bestu. Tvær þóttu afgerandi bestar.
U
m kosn-
inguna:
Sjötíu og
þrír ein-
staklingar
sendu inn topp 5-lista.
Efsta sæti gaf fimm stig
og svo koll af kolli. Þeir
sem greiddu atkvæði
koma úr ýmsum áttum
en eiga það sameigin-
legt að hafa fylgst vel
með íslenskri tónlist á
árinu. Þarna á meðal
voru blaðamenn eins og
Birta Björnsdóttir hjá
Mogganum og Trausti
Júlíusson hjá Frétta-
blaðinu, útvarpsfólk
eins og Einar Bárðar-
son hjá Kananum og Ás-
geir Eyjólfsson hjá Rás
2, og fólk frá netmiðlum
eins og Egill Harðar-
son hjá Rjómanum og
Engilbert Hafsteins-
son hjá Tónlist.is. Auk
fjölmiðlafólksins tóku
fjölmargir popparar,
rótarar, umboðsmenn,
útgefendur, tónlistar-
nördar og músíkáhuga-
menn þátt í valinu. Í allt
voru 69 plötur nefndar,
svo það er ljóst að út-
gáfuárið var fjölbreytt
og víðfeðmt.
Dr. Gunni
11. Prinspóló – Jukk (31 stig)
12. Bjartmar & Bergrisarnir – Skrýtin veröld
(28 stig)
13. Valdimar – Undraland (26 stig)
14. Ég – Lúxus upplifun (23 stig)
15.-16. Orri Harðar – Albúm (22 stig)
15.-16. Ensími – Gæludýr (22 stig)
17. Momentum – Fixation, at rest (20 stig)
18. Sóley – Theater Island (18 stig)
19. Amiina – Puzzle (16 stig)
20. Miri – Okkar (15 stig)
Jónsi – Go (106 stig)
Fyrsta sólóplata Jónsa í Sigur Rós er besta
íslenska plata ársins samkvæmt viðamikilli
könnun Fréttatímans. Jónsi setti í glaðlegan
gír með hreint borð, feginn frelsinu frá
Sigur Rós. Hann klæddi sig í litrík föt og
gerði hoppandi stuðmikið popp, melódískt
og líflegt, en þó með sterkum höfundar-
einkennum.
„Þetta eru frábær tíðindi, alveg æðisleg!“
segir Jónsi þegar honum eru færðar
fréttirnar. „Þetta er samt frábær plata
hjá Apparati. Ég tók kast þegar ég kom
heim eftir að hafa verið svona lengi úti og
hef verið að hlusta á mikið af íslenskum
plötum. Mér finnst gaman hvað Apparat
er óhrætt við að vera melódískt og
skemmtilegt. Það er ekki spurning að
þeirra plata er næstbesta platan á eftir minni!“
Jónsi hefur fylgt plötunni eftir um allan heim þetta árið og sló botn í það ævintýri í Laugardalshöll í
gærkvöld. Platan hans hefur selst í um 300.000 eintökum og Jónsi og hljómsveit hafa spilað á 100
tónleikum á ferðalaginu sem hefur borið þau til flestra heimsálfa.
Jónsi hefur líkt hliðarspori sínu við það þegar Phil Collins yfirgaf Genesis fyrir sólóferil. „Nú verður
Phil Collins settur ofan í geymslu í einhvern tíma og maður snýr sér að gömlu gæjunum í Sigur Rós,“
segir hann og hlær. Jónsi og Sigur Rós ætla að fara á fullt að spá í nýja plötu strax eftir jólafrí. „Þetta
nýja efni sem við höfum verið að skoða er hálfgert þunglyndi, en samt hressandi!“ segir Jónsi. „Það
er mjög góður tími til að pæla í svoleiðis efni í janúar og febrúar.“
næstu 10
20 plötur ársins Helgin 30. desember 2010-2. janúar 2011