Fréttatíminn - 30.12.2010, Side 30
Nýstirni og
fastastjörnur
Páll Óskar
Palli er óumdeilt skærasta stjarna Ís-
lands. Allt sem hann snertir virðist
verða að gulli og hann þarf ekki annað
en að syngja eitt lag, ekki einu sinni á
eigin plötu, og það er orðið vinsælasta
lag ársins eins og dæmið með Það geta
ekki allir verið gordjöss sannaði á þessu
ári.
Egill Gilzenegger
Undanfarin ár hafa verið þeim Þykka
góð en árið 2010 hlýtur að teljast með
þeim betri. Gillz hefur meira en nóg
að gera sem einkaþjálfari, hann varð
fullgildur meðlimur í Rithöfunda-
sambandi Íslands og var fenginn til
að hanna Símaskrána 2011. Umsókn
Gillzeneggers um inngöngu í Rit-
höfundasambandið og ummæli sem
hann lét falla um renglulega rithöf-
unda stuðuðu einhverja félagsmenn
og listaspírur og femínistar og fleiri
gengu af göflunum þegar Egill var
fenginn til þess að vera með puttana í
Símaskránni. Fólk hótaði að láta taka
nöfn sín úr skránni og undirskriftum
gegn Gillzenegger var safnað á netinu.
Hann stóð þetta þó allt af sér og kom,
sá og sigraði með sinni þriðju bók,
Mannasiðum, sem seldist eins og
vindurinn í lok ársins.
Tobba Marinós
Tobba var blaðakona á Séð og heyrt
þegar hún byrjaði að busla í Djúpu
lauginni á Skjá einum í ársbyrjun. Hún
stökk upp úr lauginni sem fullskap-
aður rithöfundur í sumar þegar hún
gaf út bókina Makalaus sem er ein
mest selda bók þessa árs. Hún lét þó
ekki staðar numið og hristi aðra bók,
Dömusiði, fram úr erminni fyrir jól og
sú bók mokaðist einnig út.
Ólöf Arnalds
Tónlistarkonan sem slegið hefur í
gegn með einlægum flutningi. Nýja
platan hennar þykir vera meistaraverk.
Vala Grand
Vala hefur verið milli tannanna á fólki
í dágóðan tíma, ekki síst þar sem hún
var enn karlmaður þegar hún byrjaði
að tjá sig mjög opinskátt um kyn-
leiðréttingaraðgerðina sem hún lauk
endanlega við á þessu ári. Eftir að
Vala varð kona lét hún kærastann sigla
sinn sjó og hefur verið áberandi í sam-
kvæmislífinu, verið eftirlæti fjölmiðla
og er komin með sinn eigin þátt á sjón-
varpi mbl.is.
Friðrika Hjördís Geirsdóttir
Lét erfiðleika ekki hafa áhrif á sinn
eigin framgang. Stýrði vinsælum mat-
reiðsluþætti, smekkfyllti kökunám-
skeið og mokaði út matreiðslubók fyrir
jólin. Allt sem hún kom nálægt varð
að gulli.
Gísli Örn Garðarsson
Sigurganga leikhópsins sem kennir
sig við Vesturport hefur verið óslitin
um árabil og hélt áfram í ár. Meðal
afreka þessa árs eru hin vel heppnaða
kvikmynd Brim og uppsetning á Ham-
skiptunum sem hópurinn flutti til New
York á seinni hluta ársins. Gísli Örn er
ein aðalsprautan í Vesturporti og náði
þeim stóráfanga að leika í The Prince
of Persia, stórmynd framleiddri af sjálf-
um Jerry Bruckheimer sem stillti
Gísla Erni upp á móti ekki ómerkari
mönnum en Jake Gyllenhaal og Ben
Kingsley.
Sverrir Þór Sverrisson
Sveppi hefur sannað sig sem nátt-
úrutalent þegar kemur að gríni og
vegur hans fer enn vaxandi. Hann
heillaði börn í leikritinu Algjör sveppur
í Íslensku óperunni á árinu og fylgdi
eftir velgengni bíómyndarinnar Algjör
Sveppi – Leitin að Villa með þrívíddar-
myndinni Algjör Sveppi og dularfulla
hótelherbergið. DVD-diskar með þess-
um bíómyndum seldust eins og heitar
lummur og ekkert bendir til annars en
að Sveppi eigi helling inni ennþá.
María Sigrún Hilmarsdóttir
Fréttakonan sem birtist sem fullskap-
aður fréttalesari á sjónvarpsskjám
allra landsmanna. Las fréttir eins og
hún hefði ekki gert annað undanfarin
ár og varð landsþekkt.
Gunnar Nelson
Væri mjög líklegur til að hampa titl-
inum íþróttamaður ársins ef blandaða
bardagalistin sem hann stundar væri
viðurkennt sport á Íslandi. Gunnar er
23 ára og þykir sýna fádæma einbeit-
ingu í bardagabúrinu enda er hann
ósigraður enn. Hann er nú þegar
talinn í hópi þeirra bestu í heimi í
blönduðum bardagalistum.
Steindi júnior
Skaust upp á stjörnuhimininn með
grínþættinum Steindinn okkar á Stöð
2. Leikur nú í annarri hverri auglýs-
ingu. Beðið er með eftirvæntingu eft-
ir annarri seríu af Steindanum
sem verður sýnd á nýju ári.
Ari Eldjárn
Þessi frábæri uppistands-
grínari og eftirherma er á
örskömmum tíma orðinn
einn vinsælasti skemmti-
kraftur landsins og
er uppbókaður langt
fram í tímann. Hann
er í höfundateyminu
sem skrifaði áramóta-
skaupið í ár og í fyrra
og tókst meira að segja
að vera fyndinn í hinum
undarlega skemmtiþætti
Hringekjunni – sem er
afrek út af fyrir sig.
Hlín Einarsdóttir
Sló í gegn með pistlum sínum um
samskipti kynjanna á Pressan.
is og varð strax umdeild enda
einkar lagið ýmist að heilla
fólk eða fara í taugarnar á því.
Vinsældir hennar á Pressunni voru
slíkar að hún fékk sinn eigin vef,
bleikt.is, til umráða. Hlín kom, sá
og sigraði. Hún er sæt og sexí, veit
af því og skammast sín ekki fyrir
það þannig að aðdráttarafl hennar er
umtalsvert.
Kristinn Hrafnsson
Kristinn er sjóaður fjölmiðlamaður
sem hefur marga fjöruna sopið í þeim
bransa í gegnum árin. Hann var á
fljúgandi siglingu á Stöð 2 ásamt
félögum sínum í fréttaskýringaþættin-
um Kompási þegar þátturinn var sleg-
inn af. Þá datt hann inn í afleysingar
á fréttastofu RÚV og gerði góða
hluti þar til hann fór svo heiftar-
lega í taugarnar á Ingólfi Bjarna
Sigfússyni vaktstjóra að hann rak
hann. Þá var Kristinn hins vegar kom-
inn í samkrull með öðrum gráhærðum
gæja, Julian Assange Wikileaks-hetju,
þannig að Ingólfur Bjarni bókstaflega
rak Kristin út í heimsfrægð. Þegar
Assange fór huldu höfði og endaði
síðar í varðhaldi tók Kristinn við mál-
frelsiskyndlinum og hefur látið ljós sitt
skína í heimspressunni.
Erpur Eyvindarson
Erpur er búinn að vera lengi í sviðs-
ljósinu í ýmissa kvikinda líki, meðal
annars sem hann sjálfur, Johnny Na-
tional og BlazRoca. Hann hefur þó oft
látið meira fyrir sér fara en á síðustu
árum en 2010 gerði hann hressilegt
„comeback“ eins og það er kallað úti í
hinum stóra heimi. Hann fékk Ragga
Bjarna og fleiri kempur til liðs við
sig og sendi frá sér KópaCabana,
fyrstu sólóplötu BlazRoca, og
sýndi og sannaði að hann hefur
engu gleymt þegar hann tryllti
lýðinn, allt frá leikskólabörnum
upp í heldri borgara með laginu
Allir eru að fá sér.
Stjörnukort fræga fólksins
Tíminn getur reynst þeim sem lifa og hrærast í sviðsljósinu skeinuhættur vegna þess að rétt eins og góð matvara á
sinn síðasta söludag geta vinsældir runnið út, almenningsálitið snúist eða áhuginn á viðkomandi einfaldlega gufað upp.
Nokkrar nýjar stjörnur skutust upp á viðsjárverðan stjörnuhimininn yfir Íslandi árið 2010. Örlögin og geðþótti þjóðarsálar-
innar verða svo að ráða því hvort þær brenna hratt upp eða ná að líma sig á himnafestinguna. Þeir sem þar ná góðu taki
skína eins og sólir innan um smástirnin en frægðin er fallvölt og í hvert sinn sem ný stjarna birtist er hætt við að önnur
hrapi. Fréttatíminn rýndi í stjörnukort ársins 2010 þar sem sumir fara með himinskautum en aðrir hrapa.
Gunnar Þorsteinsson
í Krossinum
Gunnar í Krossinum hefur
staðið sem klettur heittrúaðra
upp úr þeim syndumspillta
drullupolli með-
almennskunnar
sem margur
dauðlegur
Íslendingurinn
svamlar í.
Gunnar hefur
af eldmóði messað fordæm-
ingar yfir samkynhneigðum,
mammonsdýrkendum og
nautnaseggjum. Þegar Gunnar
gekk í gegnum hjónaskilnað
þurfti hann aðeins að slaka
á eigin kröfum og Drottins
og kyngdi því opinberlega að
stundum er óhjákvæmilegt að
slíta sundur það sem Guð hefur
bundið saman. Þegar hann
gekk síðan að eiga Jónínu
Benediktsdóttur á þessu
ári endurskoðaði hann ein-
hverjar eldræður sínar og varð
umtalsvert umburðarlyndari í
garð homma enda Jónína góð
vinkona þekkts samkynhneigðs
söngvara. Fjandinn varð svo
laus í Krossinum þegar konur,
sem saka Gunnar um að hafa
áreitt sig, streymdu fram á
síðari hluta ársins. Þá þurfti
trúarleiðtoginn að stíga af stalli
og skríða í skjól og horfist nú
í augu við óráðna framtíð á
nýju ári.
Bubbi Morthens
Bubbi er einhver dáðasti og
vinsælasti íslenski tónlistar-
maðurinn á seinni hluta síðustu
aldar en er vart
svipur hjá sjón í
dag. Þegar hann
var sem flott-
astur og grimm-
astur fór honum
ágætlega að
syngja og rífa kjaft inn á milli. Í
seinni tíð hefur hann tekið upp
á því að tjá sig æ meira í mæltu
og rituðu máli en söngvum og
það verður að segjast eins og
er að það virkar illa. Lýðhyllin
hefur smám saman verið að
kvarnast af söngvaranum og
segja má að nánast hafi brostið
á flótti þegar Bubbi tók að sér,
upp á sitt eindæmi, að gerast
sérstakur málsvari Baugsfeðga
á Pressan.is.
Eiður Smári
Guðjohnsen
Eiður Smári var fyrir nokkrum
árum óskabarn þjóðarinnar
og Eimskipafélagsins og var í
hugum margra
sigursælasti og
besti knatt-
spyrnumaður
Íslands fyrr og
síðar. Síðan fór
Eimskip á haus-
inn og Eiður varð þungur á sér
og mátti sín ekki mikils innan
um stjörnurnar hjá Barcelona.
Hann var seldur til Mónakó þar
sem varamannabekkurinn varð
hans helsta athvarf. Nú er hann
í láni hjá Stoke City og þykir
of þungur til þess að komast
í liðið.
Stjörnuhrap
Lj
ós
m
yn
di
r:
A
ri
M
ag
g,
A
rn
ol
d
Bj
ör
ns
so
n,
O
dd
va
r
og
H
ar
i.
30 annáll Helgin 30. desember 2010-2. janúar 2011