Læknablaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 11
Enn einn íslenskur kostur:
BET4SEL
(metoprólól)
Sérhæíur beta-blokkari
við háþrystingi og hjartaöng.
Eiginlcikar: Beta-blokkari með áhrifum aðallega á beta-1 viðtæki, en án eigin sympatómime-
tískra áhrifa (ISA). Abcndingar: 1. Háþrýstingur. 2. Hjartaöng (angina pectoris). Frábend-
ingar: Algerar: Ómeðhöndluð hjartabilun. 2. II. — III. gráðu leiðslurof (dis-
sociatio atrioventricularis). Afstæðar: 1. Lungnasjúkdómar með berkjusamdrætti. 2. Hjarta-
bilun. 3. Hægur hjartsláttur. 4. Æðaþrengsli í útlimum (arteriosclerosis obliterans, Raynauds
phenomen). 5. Sykursýki án meðferðar. 6. Sýring í líkamanum (acidosis metabolica). 7. Há-
þrýstingur í lungnablóðrás (cor pulmonale). 8. Þungun. Varúð: 1. Varast ber að hætta gjöflyfs-
ins skyndilega hjá kransæðasjúklingum. 2. Lyfið dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjarta-
bilun, sem áður olli ekki einkennum, getur þá komið fram. 3. Einkenni berkjusamdráttar (mb.
respiratoricus obstructivus) geta komið í ljós af lyfinu. 4. Lyfið getur leynt einkennum of lágs
blóðsykurs og ofstarfsemi skjaldkirtils. 5. Lyfið umbrýst í lifur. Þarf því að gæta varúðar við
niikla lifrarbilun. Við mikla nýrnabilun getur þurft að minnka skammta lyfsins. Aukaverkan-
ir: Geðrænar: Þreyta, þunglyndi, svefnleysi, martröð, ofskynjanir. Meltingarfæri: Verkir,
ógleði, uppköst, niðurgangur. Blóðrás: Svimi, hand- og fótkuldi. — Vöðvaþreyta. Útþot og
þurrkur í augum, þá ber að hætta notkun lyfsins, þó ekki skyndilega. Milliverkanir: 1. Beta-
blokkara og verapamfl (Isoptin) á helst ekki að gefa samtímis vegna hættu á AV-blokki og hjarta-
bilun. Nífedipín (Adalat) getur einnig valdið AV-blokki og hjartabilun, ef það er gefið samtímis
beta-blokkara, en sjaldnar en verapamíl. Hvorki skal gefa beta-blokkara né kalsíumantagónista
(nífedipín, verapamfl) í æð fyrr en a.m.k. 48 klst. liðnum frá því gjöflyfs úr hinum lyfjaflokknum
var hætt. 2. Digitalis og beta-blokkarar geta dregið of mikið úr rafleiðni og valdið hægum hjart-
slætti eða leiðslurofi. 3. Sýrubindandi lyf með álsöltum draga úr virkni lyfsins. 4. Címetidtn
eykur áhrif lyfsins. 5. Svæfingalyf geta ásamt beta-blokkurum dregið verulega úr samdráttar-
krafti hjartans. 6. Gæta skal sérstakrar varúðar, ef betá-blokkarar og dísópýramíð eða skyld lyf
eru gefin samtímis vegna hættu á hjartabilun eða alvarlegum leiðslutruflunum.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Háþrýstingur: 50 mg tvisvz
sinnum á dag í upphafi; má auka í 200 mg tvisvar sinnum á dag.
Hjartaöng: 50 mg þrisvar sinnum á dag í upphafi; má auka í 100
mg þrisvar sinnum á dag.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkningar: Töflur 50 mg: 100 stk
Töflur 100 mg: 100 stk.