Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 15.05.1985, Blaðsíða 28
132 LÆKNABLAÐIÐ eflaust vegna aukins hreinlætis (tilvitnanir í Andreas og Clarke eru úr C 11, 489-90). Það er athyglisvert, að það eru ekki læknar, heldur prestar og ljósmæður, sem standa að þessum fyrstu nafngiftum á stífkrampa í ungbörnum, ginklofa, barretta og nine-day fits. En hvaða þekkingu á stífkrampa er líklegt að læknar á íslandi hafi sótt í kennslubækur í læknisfræði fyrir 1810? Meðal þeirra bóka, sem Sveinn læknir Pálsson kvittar fyrir á vegum embættis síns 15. júli 1801 (A 1), var Henrici Callisen Systemachirurgiaehodiernae. . .Parsletll, Hafniae 1798-1800. í henni er góð lýsing á tetanus og segir hann tíðastan þar sem loftslag sé heitt og rakt. Ennfremur að sjúkdómurinn sé almennari í körlum en konum, og að ungbörn fái hann einnig, einkum um það leyti, sem læksstúfurinn sé að detta af. Og um horfur segir, að ungbörn, er taki sjúkdóminn fyrir 9. dag, lifi hann sjaldnast af (Pars I, pp. 165-170). Kunnasta bókin um barnasjúkdóma á síðari helmingi 18. aldar var eftir sænska lækninn Nils Rosén von Rosenstein. Hún var þýdd m.a. áþýsku, frönsku, ensku ogdönsku. Þá þýðingu gerði Peter Christian Abildgaard, læknir, 1769, og er titill þýðingarinnar »Un- derretning om Börne-Sygdomme«. Sveinn Pálsson átti eintak af þessari bók og í Nessafni er eintak, sem 1820 var í eigu Ólafs læknis Thorarensen. Tíundi kafli bókarinnar heitir: »Om Trækninger og Slag«, og í honum segir um börnin: »Men have de Trækninger (con- vulisoner) og ere tillige blaa i Ansigtet, saa sige vi, at de have Slag. Denne Sygdom er fölgelig nær af Art med den faldene Syge, og kaldes derfore af Læger Epilepsia infantilis, men af Hypocrates Eclampsia« (bls. 41). Orsakir kvillans eru taldar margar, barnabik (mekoni- um), kveisa, tanntaka o.fl., en engin þessleg, að um stífkrampa gæti verið að ræða. Aftur er líklegt, að heitið slag, sem er talin svo tíð dánarorsök barna í kirkjubókum fyrr á tímum, megi rekja til þessarar heimildar. Og í dánarmeinaskránni 1911 er barnakrampi Eclampsia infantitis. En hversu kunnáttusamlega greina prestar, ljósmæður og leikmenn í Eyjum ginklofa (stífkrampa) frá öðrum krömpum? í báðum skýrslunum kemur fram, að nokkur barn- anna lifa af ginklofa. Enfremur segir í skýrslu Sveins, að börn Dana búsettra í Eyjum fái ekki ginklofa, en Klog telur þau taka veikina eins og íslenzku börnin, en komist til heilsu aftur vegna betri aðbúnaðar þeirra dönsku, sérstaklega hvað lyf snertir. Og Klog getur ekki um neitt danskt barn, er hafi látist úr ginklofa. í töflunni í skýrslu Klogs land- læknis, sem greinir frá aldri látinna barna úr ginklofa, kemur fram, að 18 þeirra hafa látist 2 til 4 daga gömul og ennfremur festir maður sig við toppana við 7 og 14 daga dánaraldur. Af þessu tilefni með fleiru þótti mér ástæða til að athuga nánar, hvernig prestsþjónustubók Vestmannaeyja 1785-1816 (Þjóðskjalasafn íslands) væri færð. Þá kemur fram í skránni yfir dána, að dánaraldur ungbarna er til- greindur í dögum og vikum, en athugi maður jafnframt í skránni fyrir fædda fæðingardag sama barns, þá kemur þannig fenginn aldur stundum ekki heim við tilgreindan dánarald- ur. Þetta á sérstaklega við, þegar dánaraldur er sagður vika eða tvær vikur. Klog, land- læknir, hefur sýnilega aðeins farið eftir aldr- inum eins og hann er tilgreindur i skránni yfir látna, en þær tölur þarf að samræma fæð- ingarskránni og hætt við að hinir umræddu toppar myndu þá hverfa. En fjöldi látinna barna úr ginklofa er að mestu réttur, aðeins 1792 á talan að vera 10 í stað 11. Og ekkert danskt barn deyr úr ginklofa 1785-1810. Miðað við það, sem kunnugt er um með- göngutíma stífkrampa, er ólíklegt að barn innan 5 dagalátist úr þeimsjúkdómi. Þáerlík- legri dánarorsök krampar af völdum fæðing- armeiðsla á höfði. Það mun t.d. eiga við um Jón Bergsteinsson, sem deyr 20. febr. 1793, 3 daga úr ginklofa, en móðir hans, Rakel Guðmundsdóttir, deyr sama dag af barns- sæng. Nokkur ungbarnanna látast úr öðrum kvillum en ginklofa, svo sem brjóstveiki, sóttveiki, kvefköldu, landfarsóttar. Viðvíkjandi hinum 3 fullorðnu í skýrslu Klogs, sem taldir eru dánir úr ginklofa, þá mun hin 37 ára gamla kona, sem dó 1789, vera Ragnheiður Magnúsdóttir, sem dó 5. nóv. 1789 af sinakreppu. Hinir 2 deyja úr ginklofa (1801 og 1802), og í því sambandi eftirtektar- vert að 1801 er Bjarni Björnsson frá Kornhól sagður látinn úr flogaveiki, sem sýnir að prestarnir hafa gert greinarmun á ginklofa og flogaveiki. Að öllu athuguðu, má þó telja greiningu Eyjapresta á ginklofa góða. En manni finnst, að Klog landlæknir hefði getað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.