Læknablaðið - 15.08.1985, Side 11
LÆKNABLAÐIÐ
195
Kvöld Svefnmál
Rismál Morgunn
Mán
Þri
Mið
Fim
Fös
Lau
Sun
Mynd 2. Svefnmál og rismál eftir
vikudögum, reiknuð sem meðaltal
hópsins, sýnt með hvítum hring á
súluritinu. Súlurnar
tákna eitt staðalfrávik.
að sofna á kvöldin, töldu 10% sig eiga fremur
erfitt með það og 1,4% mjög erfitt. Þannig
virðist 11.4% fólks eiga í teljandi erfiðleikum
með að sofna á kvöldin. í símakönnun
Hagvangs kom fram að 10% þeirra sem
svöruðu eiga í erfiðleikum með svefn og
hlutfallslega helmingi fleiri konur en karlar.
Tíðni svefnerfiðleika var þar minnst á aldrin-
um 25 til 39 ára, en mest meðal þeirra sem voru
60 ára og eldri, en 20% þeirra sögðust eiga í
erfiðleikum með svefn.
Ekki er síður mikilvægur sá hópur sem telur
sig sofa of mikið, en í þessum hópi er að
líkindum fólk með ýmsar tegundir ofsyfju-
sjúkdóma. Óværð var breytileg eftir aldri og
reyndist meðalóværð haustið 1982 vera 21,7
mínútur. Mynd 5 sýnir óværð miðað við aldur
og fór hún vaxandi með aldri eins og við var að
búast.
Spurningunni »Hversu vel hvíldur ertu
þegar þú vaknar á morgnana?« svöruðu 38%
Prósent Svefntími
Mynd 3. Meðalsvefntími haustið 1982 ogsumarið 1983,
reiknaður sem tíðnihlutfall í 15 mínútna þrepum.
vel, 53% sæmilega, 6% ekki hvíldur og 3%
ekki vel hvíldur. Líklegt er, að í síðustu
tveimur hópunum sé að finna þá sem þjást af
ofsyfjusjúkdómum, svo sem kæfisvefni, auk
þeirra sem svefnleysi hrjáir.
Svefnlæti. Aðeins einn í hópnum eða 0,2%
taldi sig ganga oft í svefni en tveir til viðbótar
sögðu það stundum koma fyrir. Athyglisvert
er þó að 10% töldu það hafa komið fyrir sig
áður en ekki lengur. Ekki er þó víst að hér sé
alls staðar átt við raunverulega svefngöngu en
börn eigra oft, sem kunnugt er, milli her-
bergja hálfsofandi, og eru þá stundum sögð
ganga í svefni. Að tala í svefni töldu 6,5% oft
koma fyrir sig en 13% stundum.
Draumar: Um 6,5% töldu sig oft dreyma illa,
23% mundu oft drauma sína þegar þeir
vöknuðu að morgni og 46% til viðbótar
mundu drauma öðru hvoru.
Svefnlyf: Af þeim sem svöruðu bréflegu
könnuninni töldu 2% sig nota svefnlyf reglu-
Klst. Meðalsvefntími
Aldursflokkar
Mynd 4. Meðalsvefntími í sjö aldurshópum. Svörtu
strikin í enda súlnanna tákna eitt staðalfrávik. Athugið
að elsti hópurinn er iítill og því vart marktœkur.