Læknablaðið - 15.08.1985, Qupperneq 15
LÆKNABLAÐIÐ
197
Mínútur Meðalóværð eftir aldri
Aldur
Mynd 5. Meðalóvœrð fólks í sjö aldurshópum, reiknað
í mínútum á hverri nóttu.
efnissöfnun, þar sem óeðlilega margir telja sig
sofna og vakna á heilu tímunum. Símakönn-
uninni sem Hagvangur framkvæmdi svipar
meira til þess sem fram kemur í svefnskrám,
en stórt hlutfall fólks nefnir þar miðnætti sem
svefnmál og rís því kúrfan nokkuð hátt þar.
Ljóst er, að i aðalatriðum ber þessum könnun-
um þó saman, og bendir það til að spurninga-
listar og símaviðtöl séu nothæfar aðferðir við
mat á svefntíma fólks þótt svefnskrár virðist
gefa nákvæmari upplýsingar.
Þegar spurt var um svefnlyfjanotkun
sögðust 0,6% nota svefnlyf nær daglega, 2°Io
regulega og 4,9%-6,5% stundum. Þetta kann
að vera lægra hlutfall en margir læknar telja
sig þekkja úr almennu læknisstarfi. Rétt er
það, að þetta er engan veginn nægilega
nákvæm rannsókn til að hægt sé að segja með
vissu til um svefnlyfjanotkun landsmanna.
Kemur þar margt til. Eins og getið var í
umræðu um úrtak, kann að vera, að það fólk
sem lifir óreglusömu lífi og notar þar af
leiðandi svefnlyf, vanti í þennan hóp. Eins var
ekki talin ástæða til að spyrja mjög náið um
svefnlyfjanotkun í þessari könnun, svo að
hún yrði ekki of viðamikil. Þessi svör ber að
túlka sem grófa vísbendingu. Á hinn bóginn
má sjá, við samanburð á tölum frá hinum
Norðurlöndunum, að þessar tölur eru ekki
ósennilegar. Þannig má sjá af söluskýrslum
(15), að árið 1980 notuðu íslendingar 30.15
staðaldagskammta af svefnlyfjum á hverja
1.000 íbúa á degi hverjum og 24.23 staðaldag-
skammta af róandi lyfjum. Þetta er svipuð
neysla og á hinum Norðurlöndunum, nema í
Danmörku, þar sem þessi lyfjaneysla er nærri
helmingi meiri. í Glostrup í Danmörku hefur
Prósent
Mynd 6. a) Meðalsvefnmál og b) meðalrismál karla og
kvenna í úrtakinu veturinn 1982, reiknað sem tíðnihlut-
fall í 15 mínútna þrepum. Rismál kvenna virðast dreifast
kringum tvo toppa.
Prósent Svefnmál
Tími sólarhrings
Mynd 7. Samanburður á niðurstöðum um svefnmál úr
könnun Ríkisútvarpsins, símakönnun Hagvangs og
niðurstöðum úr svefnskrám íþessari könnun. Tíðnihlut-
fall er reiknað í 30 mínútna þrepum í öllum könnun-
unum. Tölur úr könnunum útvarpsins og Hagvangs eru
umreiknaðar eftir aldri og vikudögum svo að þœr verði
sambærilegar við könnun Geðdeildar. Ef reiknað vœri í
60 mínútna þrepum, vœru línuritin mjög svipuð.