Læknablaðið - 15.08.1985, Síða 18
200
LÆKNABLAÐIÐ
skráa á skömmum tíma og lesa þær inn á
vélrænan hátt.
Þegar útfyllt skrá berst er hún lögð á
punktagreini (digitizer) af gerðinni HI-PAD
sem tengdur er Apple Ile tölvu. Punktaþétt-
leiki tækisins er 0.1 mm sem er mikið meira en
nægileg upplausn fyrir þetta verkefni. Síðan
er sérstakur bendill stilltifr á upphaf og endi
hverrar línu og merkt við. Segulskynjari í
tækinu skynjar staðsetningu bendilsins,
teiknar mynd á tölvuskjáinn og skráir upp-
lýsingar í skrá á disklingi. Úr skránni er
síðan unnið á tölfræðilegan hátt með sér-
stöku úrvinnsluforriti. Vanur starfsmaður er
minna en eina mínútu að lesa inn hverja skrá
með þessum hætti.
Þegar 10 skrár voru tvílesnar reyndist
munur á úrlestri, þ.e. mælingarskekkja, vera
að jafnaði minna en 10 mínútur á nóttu. Þótt
erfitt sé að áætla hversu vel fólk gerir sér grein
fyrir svefntíma sínum, er áberandi að mikill
meirihluti telur sig vera næstum alveg vissan í
sinni sök, og við áætlum að færsluskekkja sé
að jafnaði innan við 20 mínútur, en sé svefn
óvær er líklegt að ónákvæmni aukist.
Þótt þessi skrá hafi verið hönnuð til
notkunar við faraldsfræðilegar rannsóknir og
til tölvuúrvinnslu, er ekkert sem hindrar að
læknar á heilsugæslustöðvum og aðrir geti
haft full not af, að láta einstaka sjúklinga fylla
út slíkar skrár. Sá áhugi sem svefnvandamáli
sjúklings er þannig sýndur verkar vel á flesta,
auk þess sem þetta hjálpar lækni að greina
hvort um síðvöku, árvöku, óværð eða til
dæmis svefntímasjúkdóm er að ræða, og
getur hann þá hagað meðferð eftir því.
Svefnskrár má líka nota á sjúkradeildum.
Slík skrá hefur verið notuð á Áfengisdeild
Geðdeildar Landspítalans, 33-A um hálfs árs
skeið og gefist mjög vel (mynd 2). Þá færir
næturhjúkrunarfræðingur skrá um alla
sjúklinga deildarinnar. Þessi skrá er lítið eitt
flóknari en sú sem áður var getið. Hér eru
færðar inn upplýsingar um það hvenær lyf eru
gefin og hversu lengi sjúklingur er í rúminu án
þess að sofna. Að sögn hjúkrunarfræðinga er
sáralítið aukaálag að færa slíka skrá, en
skráin hefur reynst mjög gagnleg fyrir lækna
við mat á svefnlyfjaþörf.
fyrir deild a&faranótt 5 | ;
NAFN 2 2 2* 1 2 3 4 5 6 7 8 JS | ii ] I, i AL Z u.
Alli' AfAiA* S □ □
Bjar*; gjorrutt* i □ 0 □ ra n n
Cectli» CUn'tlt****** 0 E □ C □ [
Elii* Ei*e,ndóHir l □ 0 □
F'rihjá* Fimtan 0 □ □
rruát'Oy* ÚcUk>n AtlUn + 0 □ □
□ □ E
□ 0 □
JoU Sohtian 0 □ □
K+rlirlillit V- 0 □ □
□ □ □
□ □ □
□ □ □
□ □ □
□ □ □
□ □ □
SVEFNLYF GEFIN _______________: SJÚKLINGUR 1 RÖMINU - : SJÚKLINGUR S0FANDI