Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1986, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 15.01.1986, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ 19 LÆKNABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL jOURNAL Læknafélag íslands og Læknafélag Reykjavíkur 72. ÁRG. - JANÚAR 1986 SORTUÆXLI Nýgengi illkynja æxla hjá íslendingum jókst um 1.0-1.2% árlega tímabilið 1980-1984 (1). Fjölgun nýgreindra lungnakrabbameina er án efa sú orsök þess arna sem mestan ugg vekur, en batahorfur sjúklinga með lungnaæxli hafa naumast skánað síðastliðin þrjátíu ár. Sem betur fer er ekki svo um ýmis önnur algeng æxli, svo sem krabbamein í brjóstum og meltingarvegum. Þótt sortuæxli í húð teljist ekki í flokki algengustu krabbameina, hefur þessi meinsemd um margt sérstöðu, bæði frá sjónarhóli faraldsfræðinga og þeirra sem ætlað er að greina og annast meðferð þeirra sem sjúkdómurinn hrjáir. Grein Jóns Gunnlaugs Jónassonar og fé- laga hans í Læknablaðinu (2) miðlar mikil- vægum upplýsingum um faraldsfræði og smá- sæja flokkun sortuæxla. Mun reyndar sá fyrst og fremst hafa verið tilgangur höfunda, síður að lýsanáið afdrifum sjúklinganna, enda nán- ast ógjörningur í afturvirkri rannsókn sem þessari. Afstaða skurð- og lyflækna til sortuæxla þefur breyst verulega á þrjátíu ár- um, og án nákvæmra upplýsinga um umfang lækninga á hverjum tima er takmarkað gagn að tölfræðilegu mati á horfum. Skilningur okkar og skoðanir á sortu- æxlum hafa tekið breytingum síðastliðin þrjá- tíu ár. Kemur einkum þrennt til: í fyrsta lagi hefur alls staðar þar sem þelljóst fólk býr, átt sér stað raunveruleg og marktæk árleg fjölg- un nýgreindra sjúklinga með sortuæxli í húð (3). Sú almenna umræða (4) sem hlaut að leiða af því á þátt í þeirri sýndarbreytingu sem virðist á gangi og hegðun sjúkdómsins. Þannig, og í öðru lagi, greinast nú tiltölulega Qeiri sjúklingar en áður með flæðimein. Þessi fjölgun flæðimeina samfara fækkun hnúð- laga sortuæxla er marktæk og almenn meðal áhættuhópa hvar sem er í heiminum (5). Með því að horfur sjúklinga með flæðimein eru skárri en þeirra sem hnúðæxli hafa er þessi tilflutningur gleðiefni. Hugsanlega, og í þriðja lagi, verður víxlun þessi rakin til nýrra viðhorfa þeirra sem vefjagreiningu stunda, fremur en til raunverulegrar breytingar í eðli sjúkdómsins. Eftir því sem tiltölulegur fjöldi lítilla (þunnra) æxla hefur aukist, hefur athygli og aðgát meinafræðinga skerpst. Nýlegar og nákvæmar undirflokkanir sortu- meina og forstigsbreytinga þeirra endurspegla breytta afstöðu meinafræðinga fremur en breytta hegðun sjúkdómsins. Afbrigði í yfirhúð aðlægri meginæxli skipta nú einatt sköpum í undirflokkun. Áður óþekkt hugtök á borð við hyperplasia melanocytica prema- lignans (5), nevus dysplasticus (6), hyperpla- sia melanocytica atypica intraepidermalis (7) öðlast nú mikilvægi, án efa oftlega umfram óljósa lífræna þýðingu sína. Allir ofangreindir þættir, hver fyrir sig og með öðrum, hafa tvímælalaust leitt til endur- skilgreiningar sjúkdómsins. Samtímis, eins og einatt þegar innsæi okkar í sjúkdómsferli eykst, skjóta upp kollinum til mótvægis spurningar og efasemdir þar sem þeirra var síst von. Meðan þekking okkar á áreitis- viðbrögðum melanocýta, móðurfruma sortu- æxla, er jafn gloppótt og nú, hefur sú flokkun ein hagnýtt gildi sem byggir á klínískri athugun og reynslu. Jóhannes Björnsson HEIMILDIR 1) Ragnarsson J, Ingimarsson GS. Tíðni krabbameina er vaxandi: Sjö hundruð ný krabbamein á ári. Heilbrigðismál 1985; 33 (2): 14-5. 2) Jónasson JG, Magnússon B, Tulinius H, Björnsson A. Sortuæxli íslandi 1955-1984. Læknablaðið 1985; 71: 274-81. 3) Kopf AW, Rigel DS, Friedman RJ. Editorial. The Rising Incidence and Mortality Rate of Malignant Melanoma. J Dermatol Surg Oncol 1982; 8: 760-1. 4) Morgunblaðið 1984; 08.11., bls. 64; 11.11., bls. 64. 5) McGovern VJ, Shaw HM, Milton GW. Histogenesis of malignant melanoma with an adjacent component of the superficial spreading type. Pathology 1985; 17: 251-4. 6) Elder DE, Ainsworth AM, Clark WH. The surgical pathology of cutaneous malignant melanoma. In: Goldman LI, Mastrangelo MJ (ritstj.). Human malignant melanoma. Clinical oncology mono- graphs. New York: GruneandStratton 1979; 55-108. 7) Sagebiel RW. Histopathology of borderline and early malignant melanomas. Am J Pathol 1979; 3: 543-52.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.