Læknablaðið - 15.03.1992, Síða 9
LÆKNABLAÐIÐ
83
Nýgengi salmonellasýkinga á íslandi
er nokkuð svipuð nýgengi þeirra í
nágrannalöndunum. Ef miðað er við 130
nýgreind tilfelli 1988, þá er nýgengi á íslandi
um 52 fyrir hverja 100.000 íbúa á ári, sem er
aðeins hærra en í Englandi, 38/100.000 (12),
en aðeins lægra en í Danmörku, 67/100.000
(13). Rétt er að ítreka að greind tilfelli eru
aðeins »toppur ísjakans«, þar sem talið er
að einungis 1-10% einstaklinga sem sýkjast
af salmonellabakteríum leiti læknis og fái
sýkinguna staðfesta með saurræktun (14,15).
Raunverulegt nýgengi gæti því verið á bilinu
520-5.200/100.000, þ.e. 1.300-13.000 tilfelli á
Islandi á ári.
Aðeins í einu tilfelli var með vissu vitað um
uppruna sýkingarinnar (fimm einstaklingar).
I nokkrum tilvikum hafði markvisst verið
unnið að því að finna þau matvæli sem
ollu sýkingunni, en án árangurs. í þessari
rannsókn virðist þrisvar hafa verið um
hópsýkingu að ræða; í veislu á Spáni þar
sem níu manns veiktust af völdum kaldrar
majónessósu og í Englandi þar sem þrír
sýktust af völdum eggjaköku á veitingahúsi
auk sýkingarinnar í súrmetinu hér á landi. A
Spáni eru hópsýkingar af völdum eggja og
eggjaafurða, t.d. majóness mjög algengar og
eru yfir 90% orsakaðar af salmonellasýkingum
(16). Hér á landi virðast sýkt egg enn ekki
vera vandamál.
Salmonella er útbreidd hér á landi í skólpi og
hefur fundist í 5-10% máva og hrafna (17).
Salmonella hefur einnig fundist í ýmsum
innfluttum matvælum og fóðri. í tengslum
við rannsóknina í Búðardal 1987 fannst
salmonella á nokkrum kjúklingabúum (4).
Flestar salmonellasýkingar verða á sumrin
(16,18,19). Gífurlegur fjöldi ferðamanna
flykkist til sólarlanda á þessum árstíma oft
á staði þar sem litlar kröfur eru gerðar til
hreinlætis. Salmonellasmit á Islandi virðist
dreifast nokkuð jafnt yfir árið. Hærri tíðni
salmonellasýkinga í sólarlöndum á sumrin er
lfklega vegna lélegs hreinlætis og hagstæðari
lífskilyrða sýkilsins. Slíkt á áreiðanlega
ekki eins vel við hér á landi. Æskilegt
væri að gefa þeim er hyggja á ferðalög til
sólarlanda einfaldar leiðbeiningar um helstu
sýkingarhættur og hvemig beri að forðast þær.
Vinnutap er talsvert af völdum
salmonellasýkinga, sem er mjög dýrt
fyrir þjóðfélagið. Sýkingamar geta valdið
lífshættulegum veikindum og er því mikilvægt
að reyna að fyrirbyggja þær með fræðslu um
meðhöndlun matvæla og smitleiðir.
Læknar verða að vera vakandi fyrir þessum
sýkingum og senda saurræktanir frá
sjúklingum með niðurgang sem hugsanlegt
er að gæti verið bakteríusýking. Það er
nauðsynlegt að leita að uppruna sýkingarinnar
ef grunur leikur á að smit hafi orðið hér á
landi, til að hefta frekari útbreiðslu. Mjög
óæskilegt er að einstaklingar, sem vinna í
matvælaiðnaði eða annast sjúklinga með
skertar vamir, séu salmonellaberar. Til að
fylgjast með þeint þarf að taka ræktanir á
réttan hátt, og er mælt með að 48 klst. að
minnsta kosti líði á milli sýna og að ekki
skuli hætta fyrr en náðst hafa þrjár neikvæðar
ræktanir í röð. Ef sjúklingurinn hefur fengið
sýklalyf ætti að bíða í að minnsta kosti 72
klst., áður en sýni er sent í ræktun. Þessi
rannsókn bendir ekki til þess að stytta megi
tímann á milli töku einstakra sýna. Með því
að útskýra tilganginn vel fyrir sjúklingnum
fæst betra samstarf.
Ungböm, gamalmenni og fólk með
skertar vamir er æskilegt að meðhöndla.
Hjá nýburum og eldra fólki er hætta
á lífshættulegri blóðsýkingu (20-22).
Kínólónafbrigðin hafa reynst áhrifarík í
meðferð á ferðamannaniðurgangi (23),
kjörlyf við S. typhi sýkingum (24), en frekari
rannsókna er þörf til að meta gagnsemi
þeirra í meðferð á salmonellaniðurgangi og
við að útrýma salmonellu úr berum. Sumar
rannsóknir hafa sýnt mjög góðan árangur
(25,26), á meðan aðrar hafa ekki sýnt fram
á marktækt betri árangur með þeim en
lyfleysum (27). Lfklegt er að sannleikurinn sé
þar á milli, en rétt er að hafa í huga að ekki
er alltaf hægt að útrýma salmonellabakteríum
með kínólónafbrigðum. Ekki var lagt mat á
árangur lyfjameðferðar í þessari rannsókn.
Það kom á óvart hversu margir lögðust inn
á sjúkrahús með salmonellasýkingu en þeir
reyndust mun fleiri en í öðrum rannsóknum
(2). Ef til vill leggja íslenskir læknar minna
veikt fólk inn en erlendir kollegar þeirra eða
mótstaða íslendinga gegn salmonellasýklinum
er minni en annarra, sem er ólíklegt.