Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 6

Læknablaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 6
758 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Ritstjórnargrein Er nokkuð yndislegra en hlæjandi, frískur krakki? Á undanförnum árum hafa orðið stórstígar framfarir í meðferð á meðfæddum hjartagöll- um hjá börnum. Horfur barna með algenga hjartagalla eru nú góðar og viðunandi hvað varðar sjaldgæfari og alvarlegri galla. Þetta má þakka vaxandi þekkingu, nákvæmari grein- ingu, betri svæfingar- og gjörgæslumeðferð og ekki síst nýrri þróun í hjartaskurðtækni. Nú hafa verið gerðar vel á þriðja tug hjarta- skurðaðgerða á börnum hérlendis með góðum árangri og til stendur að auka þá starfsemi verulega. Landssamtök hjartasjúklinga og Foreldra- samtök hjartveikra barna svo og Rauði kross Islands og heilbrigðisráðherra í samvinnu við Tryggingastofnun ríkisins og Ríkisspítala hafa gert slík áform möguleg fjárhagslega, en lækn- isfræðilegur jarðvegur hefur orðið til sem eðli- legt framhald af 10 ára farsælli þjónustu hjarta- og lungnaskurðdeildar Landspítalans, en á síð- ustu 10 árum hafa verið framkvæmdar hátt í 2000 aðgerðir á fullorðnum hjartasjúklingum hérlendis, með góðum árangri. Frumkvöðlar barnahjartaskurðlækninga, sem flestir eru enn á lífi, og ég dái mjög, eru gæddir þeim eiginleikum sem prýða skyldu alla lækna, það er virðingu fyrir lífinu og vefjum líkamans, heiðarleika, hugrekki og dóm- greind, háleitum markmiðum og ástríðu til að láta gott af sér leiða. Þcir sem lengst hafa náð og lagt mest af mörkum til okkar hinna sem á eftir komum hafa skapað sér virðingu með gáf- um, fórnfýsi á eiginn tíma og einlægri ósk um að lina þjáningar annarra. Til að ná slíkum frama þurftu þeir auk þess að hafa skapandi hugarfar, innsæi og sköpunargleði, að hafa til að bera góða skipulagsgáfu og vera allt í senn skurðlæknar með fallegan stíl, kennarar og vís- indamenn. Ef líkja á eftir slíkum mönnum í dag virðist það óhugsandi en vert er þó að reyna það og taka þá sér að minnsta kosti til fyrirmyndar, en forðast til dæmis að sækjast eftir ráðningu á sjúkrahúsi og hlaupa síðan óðara út af sjúkra- húsinu aftur í launaleit, þegar staðan á sjúkra- húsinu er fengin. Vinnuveitandinn ber hér vissulega sinn hluta af ábyrgðinni, því með láglaunapólitík á sjúkrahúsum á Islandi hefur vinnuveitandinn unnið gegn eðlilegri framþróun læknisfræðinn- ar. Með lágum föstum launum á sjúkrahúsum er hætt við því að við, breiskir sjúkrahúslækn- ar, freistumst til að fórna faglegum metnaði í skiptum fyrir peninga, seilast í auðfengnara fé utan sjúkrahúsanna eða við ferilverk, í stað þess að helga okkur leiðtogastarfinu á sjúkra- húsinu. Á sjúkrahúsunum eiga erfiðustu við- fangsefnin að fá úrlausn og vinna við þau á að sitja í fyrirrúmi og vera best launuð, slíkt kem- ur í veg fyrir fyrrnefndar freistingar sem eru af hinu illa. Það hefur því faglega og læknisfræði- lega þýðingu að standa rétt að komandi kjara- samningum. Skurðlæknirinn þarf að vera góður leiðtogi og bera virðingu fyrir samstarfsfólkinu, sjúk- lingum og aðstandendum þeirra. Hann þarf að gera sér skýra grein fyrir því að skurðaðgerð er framkvæmd á samningi sem hann hefur gert við sjúklinginn eða við foreldri sjúklings ef um barn er að ræða. Það eru réttindi og ljúf skylda skurðlæknisins að standa einn og óskiptur með sjúklingi sínum að slíkum samningi, sem oftar en ekki ræður lífi og heilsu þess veika. Veggir sjúkrahúsanna eða stofnun sem slík fram- kvæma ekki aðgerðirnar heldur fólkið sem þar vinnur. Styrkur skurðlæknis felst í því að vita hvað þurfi að gera og geta framkvæmt það; hafa vísindalega þekkingu og tæknilega getu. Læknisfræði eru óviss vísindi og því er nauð- synlegt að mannlegur þáttur í samningi milli sjúklings og skurðlæknis vegi mjög þungt. Ekki má lofa meiru en staðið verður við og menn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.