Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 64

Læknablaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 64
806 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Enn um ómskoðanir á íslandi Mörgum heilbrigðisstarfs- mönnum sem eru að reyna að gæta aðhalds í fjármálum á sín- um vinnustað brá nokkuð í brún þegar lesa mátti í Morgunblað- inu þann 27. september síðast- liðinn að „mini“-heilsugæslu- stöðin í Hrísey hefði fengið heila 1.000.000 króna til tölvu- kaupa. Fáeinum dögum síðar, eða 1. október, mátti lesa í sama blaði frétt um nýtt ómtæki á Seyðisfirði. Tækið kostaði 3.500.000 króna og var gjöf góð- gerðarsamtaka á staðnum. Lýst var hvernig skoða mætti hin ýmsu líffæri með tækinu og að sjálfsögðu móður og fóstur. Við svona fregnir vakna augljósar spurningar um notagildi og rétt- mæti tækjavæðinga sem þess- ara, hvort heldur þær eru kost- aðar af ríkinu eða öðrum. Þetta á einkum við um ómskoðanirn- ar. Fyrir 10 árum skrifuðu undir- ritaður og Sigurður V. Sigur- jónsson röntgenlæknir forystu- grein í Læknablaðið um óm- skoðanir á íslandi (1). Þar veltum við fyrir okkur hvernig vinna ætti að ómskoðunum á Is- landi, hvar og hvernig ætti að skoða, hverja og hve oft og hvað ætti að skoða á hverjum stað. Bent var á að skipulag væri nauðsynlegt bæði hvað varðar staðsetningu og val tækja og kunnáttu og starfsþjálfun þeirra sem við ómskoðanir vinna. Hver sem er getur stungið tæk- inu í samband, kveikt á því og fengið fram mynd en túlkunin á myndefninu og framkvæmd skoðunarinnar sjálfrar eru ekki einfalt mál. Þvert á móti. Ár- angur byggist alfarið á hæfni og kunnáttu þess sem skoðar, þar með talið getu hans til að fá fram og meta myndefnið, breyta skoðunartækni, hljóð- styrkleika og brennidepli óm- geislans þegar við á og góð kunnátta í fósturfræði, líffæra- fræði og klínískri myndgrein- ingu er frumskilyrði. Við bent- um þá á það að margir sem skoðuðu hér á landi hefðu til- tölulega litla reynslu af ómskoð- unum og lítið sem ekkert fræði- legt nám að baki. Síðan hafa verið haldin þrjú námskeið um ómskoðanir, sem einkum hafa beinst að því að kenna læknum og ljósmæðrum ómskoðun í þungun. Þessi námskeið hafa verið allvel sótt, en þó ekki af öllum þeim sem hafa treyst sér til að kveikja á tækinu og fram- kvæma skoðanir á þunguðum konum. Þá hafa verið samdar íslenskar leiðbeiningar um hvað þeir ættu að kunna sem við óm- skoðanir á þunguðum konum fást og hver starfsþjálfun þeirra ætti að vera. Þær kröfur eru ívið vægari en gerist í nágrannalönd- unum, en samt má næstum telja á fingrum annarrar handar þá aðila sem hafa sótt um viður- kenningu á því að hafa náð til- greindum staðli, sem bæði Fé- lag íslenskra fæðinga- og kven- sjúkdómalækna og stjórnir Ljósmæðrafélags íslands og Fé- lags íslenskra heimilislækna hafa fjallað um og samþykkt. Því er ekki að undra að ýmis mistök hafa verið gerð, þar sem meðal annars hefur verið greind þungun og hjartsláttur í fóstri þar sem ekkert fóstur var að finna eða alvarlegur vanskapn- aður ekki greinst. Hliðstæð at- vik hafa orðið þegar önnur líf- færi hafa verið skoðuð af þeim sem lítið kunnu til verka. Tilvist tækisins á staðnum virðist talið eitthvert öryggis- atriði. Tækið er fengið, byrjað er að skoða, en minna máli virð- ist skipta þó þjálfun skorti í notkun tækisins hjá heilbrigðis- starfsmönnum. Stundum er byrjað á þjálfun, en síðan litlu bætt við. Ekki er síður slæmt ef aðal grunn starfsþjálfunar og viðhalds á færni vantar, það er nægilegan fjölda skoðana sem unnt er að gera á staðnum. Sem betur fer eru til allmargar und- antekningar frá þessu þar sem heilbrigðisstarfsmenn hafa kappkostað að afla sér þjálfunar og viðhalda þekkingunni, en dæmin um hið gagnstæða eru því miður of mörg. Það er sama hvað píanóið er flott, sá sem á það ætlar að spila verður að vera músikalskur, hafa lært spilamennskuna á haldgóðan hátt og hann verður að æfa sig. Fregn af því tagi sem birtist í Morgunblaðinu 1. október um þær skoðanir sem áformað er að gera á litlum stað eins og Seyðis- firði, þar sem þungaðar konur eru aðeins 20-30 á ári og tilefni til skoðana á öðrum líffærum verða sárafá, er aðeins fallin til þess að slá ryki í augu staðarbúa og skapa þeim væntingar sem ekki er hægt að standa við. Það sem þarna er unnt að skoða nægir engan veginn til lág- marksviðhalds þekkingar og færni. Sumt sem nefnt var í Morgunblaðsfregninni er svo sérhæfð vinna að hún er einung- is á færi fárra sérfræðinga hér- lendis. Fjárfestingu sem þessa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.