Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1996, Page 8

Læknablaðið - 15.11.1996, Page 8
Fyrstur í nýjum flokki 10. ÁRATUGURINN COZ4NI Angíótensín II Hemill o s a r t a n p o t a s s i um Cozaar (MSD, 930306) R,B TÖFLUR; C 02 E X 01 Hver tafla inniheldur: Losartanum INN, kalíumsalt, 50 mg. Eiginleikar: Lósartan blokkar ATI viðtæki í vefjum, meðal annars í sléttum veg- gjum æða. Lyfið keppir við angíótensín II hormón og kemur í veg fyrir samdrátt grannra slagæða og lækkar blóðþrýsting. Plasma renín virkni og angíótensín II þéttni í sermi eykst þegar lyfið ergefið. Lósartan frásogast að fullu. 2/3 hlutar lyf- sins umbrotna fljótt og aðgengi er 33 %. Lyfið umbrotnar í lifur og eitt umbrotsefni er virkt. Hámarksþéttni lyfsins í sermi næst eftir I klst., en virks umbrotsefnis eftir 4 klst. Sjálft lyfið hefur stuttan helmingunartíma, u.þ.b. 2 klst., en umbrot- sefnið hefur miklu lengri helmingunartíma, eða um 9 klst. Eftir 24 klst er enn verulegur hluti virks umbrotsefnis í sermi. Helmingur (58%) umbrotsefna útskil- jast í hægðum og 35 % í þvagi. Nýrnabilun hefur ekki áhrif á útskilnað lyfsins,.en hjá lifrarbiluðum einstaklingum eraðgengi verulega aukið. Ábendingar: Háþrýstingur. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum. Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið á ekki að nota þar sem skyld lyf, ACE hamlar, geta valdið fósturskemmdum. Ekki á heldur að nota lyfið hjá konum með börn á brjósti, þar sem ekki er kunnugt hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk. Varúð: Lyfið á ekki að nota hjá sjúklingum með þrengsli í nýmaslagæðum. Lágur blóðþrýstingur getur komið fram hjá sjúklingum sem hafa fengið mikið af þva- græsilyfjum og hafa misst salt og vökva úr líkamanum. Skert lifrarstarfsemi. Aukaverkanir: AIgengar (> 1 %): Svimi. Sjaldgcefar (0,1-1%): Stöðubundinn lágþrýstingur. Mjög sjaldgcefar (<0,1%): Útbrot. Breytingar á blóðgildum: Hækkað kalíum í blóði (>5,5 mmól/l (ca 1,5%)); væg hækkun á lifrarensímum. Milliverkanir: Ekki þekktar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Upphafsskammtur er 50 mg einu sinni á dag, en helmingi lægri hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Áhrif lyfsins eru að eflast í 4-6 vikur. Ef þörf krefur má auka skammtinn í 100 mg að þeim tíma liðnum. Sama skammt má gefa öldruðum. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningarog verð: 28 stk (þynnupakkað) kr. 4.007,-; 98 stk (þynnupakkað) kr. 12.966,-. Október 1995 O FARMAS/A h.f. M MERCK SHARP& DOHME

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.