Læknablaðið - 15.11.1996, Side 29
(flúoxetín)
-árangursríkt íslenskt geðlyf
Seról (flúoxitín)
Framleiðandi: Omega Farma ehf. Hylki; N 06 A B 03 R B Hvert hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð,
samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Töflur; N 06 A B 03 Hver tafla inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð,
samsvarandi Fluoxetinum INN10 mg. Eiginleikar: Flúoxetín er geðdeyfðarlyf, sem er talið verka þannig, að það
blokkar upptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda í heila. Lyfið hefur lítil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur
boðefni í heila. Flúoxetín minnkar matarlyst. Blóðþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingun-
artimi flúoxetíns í blóði er 2-3 dagar. Aðalumbrotsefni flúoxetíns er norflúoxetin, sem er álika virkt og flúoxetín og
helmingunartímí þess er 7-9 dagar. Próteinbinding í plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út í
þvagi, að mestu sem umbrotsefni. Vegna langs helmingunartíma lyfsins koma breytingar á skammtastærðum ekki
fram fyrr en eftir nokkrar vikur. Ábendingar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandi
þunglyndi, sem á sér ytri orsakir. Frábendingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við
flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúð: Við þunglyndi getur
sjálfsmorðshætta aukist í byrjun meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftirliti vegna
aukinnar hættu á flogum. Aukaverkanir: Ógleði, óróleiki, slappleiki, niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti, kvíði,
sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki
nota með MAO-hemjandi lyfjum og þar sem lyfið og umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum
vikum eftir að töku þess er hætt, er ekki óhætt að nota MAO-hemjandi lyf fyrr en liðið hafa a.m.k. 5 vikur frá því að
töku flúoxetíns er hætt. Ekki ætti að nota tryptófan með þessu lyfi. Hækkun á litíumþéttni hefur sést eftir samtímis
gjöf af flúoxetíni og þarf þvi að fylgjast vel með litíummagni í blóði. Skammtastærðir handa fullorðnum:
Venjulegur upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir
2-3 vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki í meira en 80 mg á dag. Við
mikið skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi og hjá öldruðum getur þurft að gefa lægri skammta en 20 mg á dag.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkningar og verð 1. sept. 1995:
Hylki 20 mg: 30 stk. - 4686 kr.; 100 stk. - 14374 kr.
Töflur 10 mg: 30 stk. - 2443 kr.; 100 stk. - 7887 kr.
Hámarksmagn sem ávísa má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframlelðslu, stofnað 1990