Læknablaðið - 15.11.1996, Page 30
(cisapríð)
-eykur iðrahreyfingar
Prestal (cisapríð)
Framleiðandi: Omoga Farma ehl. Töllur; A 03 F A 02 R E Hver talla inniheldur: Cisapridum INN, mónóhýdrat, samsvarandi Cisapridum
INN 5 mg, 10 mg eða 20 mg. Ábendingar: Starlrænar truflanir i meltingarvegi, t.d. bakflæði i vólinda og sein magatæming. Langtímameðferð
við bakflæði i vélinda. Frábendingar: Pekkt otnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Sjá einnig kafla um milliverkanir. Meðganga og
brjóstagjöf: Reynsla af notkun lyfsins hjá konum á meðgöngutima er takmörkuð. Rannsóknir á dýrum benda ekki til fósturskemmandi áhrifa
lyfsins. Lyfið ætti þó ekki að nota á meðgöngutima nema væntanlegt gagn fyrir móður sé talíð meira en hugsanleg hætta fyrir fóstrið. Lyfið skilst í
litlu magni út í brjóstamjólk. Þó er ekki mælt með notkun lyfsins hjá konum með barn á brjósti. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru
niðurgangur (9%) og kviðverkir (3%), en þessi óþægindi eru yfirleitt timabundin. Algengar (>1%): Niðurgangur, kviðverkir, vindgangur og
uppþemba. Sjaldgæfar (0,1-1%): Höfuðverkur, svimi, ógleði. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Ofnæmi, krampaflog, einkenni frá extrapýramídalkerfi.
Truflanir á lifrarstarfsemi, með eða án gallstíflu. Aukin tíðni þvagláta, háð skammtastærð. Gynaecomastia, galactorrhoea, en bein tengsl við
notkun lyfsins hafa ekki að fullu verið sðnnuð. Ef miklir kviðverkir verða eftir töku 20 mg taflna er mælt með, að skammtur sé helmingaður við
hverja inntöku. Ef niðurgangs verður vart hjá smábðrnum, skal minnka skammta. Millivekanlr: Vegna áhrifa lyfsins á magatæmingu getur það
haft áhrif á frásog annarra lyfja, m.a. segavarnalyfja. Andkólinvirk lyf upphefja að verulegu leyti örvandi áhrif cisapríðs á hreyfingar í
meltingarfærum. Rétt er að gera storkupróf hjá sjúklingum, sem eru á segavarnameðferð á fyrstu dögum eftir að notkun lyfsins er hafin og henni
hætt og ef nauðsyn krefur leiðrótta skammta af segavarnarlyfinu. Cisaprið getur flýtt áhrifum benzódíazepína og alkóhóls. Cisaprið er umbrotið
að mestu fyrir tilstuðlan cýtókróm P450 3A4 enzým.Rannsóknir hafa sýnt, að ketókónazól til inntöku kemur í veg fyrir umbrot cisapríðs og leiðir
þannig til hárrar blóðþóttni cisapriðs. Samtímis gjðf cisapríðs og ketókónazóls til inntöku getur leitt til lengingar QT-bils á hjartarafriti. In vitro
rannsóknir benda til að ítrakónazól geti einnig komið I veg fyrir umbrot cisapriðs. Vegna þessa skal hætta meðferð með cisapríði hjá sjúklingum,
sem þurfa á meðferð með ketókónazóli eða ítrakónazóli að halda. Varúð: Lyfið skal nota með varúð hjá fyrirburum, sem fæðast eftir skemmri
en 34 vikna meðgöngu. Varúðar skal gæta við gjöf lyfsins hjá þeim sjúklingum, þar sem auknar maga- og þarmahreyfingar gætu haft hættu i för
með sér. Við lifrar- eða nýrnabilun er mælt með að skammtar séu í upphafi minnkaðir um helming. Skammtin má siðan auka m.t.t. áhrifa og
aukaverkana. Hjá ðldruðum er stöðug blóðþóttni venjulega hærri vegna lengri helmingunartima. Meðferðarskammtar eru þó svipaðir og
notaðir eru hjá yngri sjúklingum. örfá tilvik um lengingu QT-bils og/eða .torsade de pointes" hjartsláttartruflanir hafa komið fram hjá
hjarlasjúklingum. Ekki hefur verið sýnt fram á bein tengsl cisapriðs við þessi tilvik. Þrátt fyrir það skal gætavarúðar áður en lyfið er gefið
sjúklingum með auknar líkur á lengingu QT-bils (s.s. óleiðrétta elektrólýtatruflanir (kalíum/magnesíum), meðfædd QT-bil lenging) eða
sjúklingum, sem taka önnur lyf sem geta valdið lengingu QT-bils. Eiturverkanir: Við ofskömmtun eru einkenni kviðverkir og niðurgangur og hjá
bðrnum (yngri en 1 árs) sljóleiki og atonia. Meðferð: Lyfjakol og nákvæmt eftirlit. Mælt er með að athugað só, hvort sjúklingar hafi lengingu á
QT-bili. Einnig skal athuga þætti sem auka likur á „torsades de pointes" eins og elektrólýtatruflanir (einkum kaliumskortur) og hægur
hjartsláttur. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegir skammtar eru 15-40 mg, gefið sem 5-10 mg þrisvar til fjórum sinnum á dag. Við
bakflæði í vélinda eru gefin 20 mg tvisvar sinnum á dag. Meðferðarlengd er venjulega 4-6 vikur. Við langtímameðferð á bakflæði i vólinda eru
gefin 10 mg tvisvar sinnum á dag, fyrir morgunverð og að kvöldi fyrir svefn, eða 20 mg einu sinni á dag að kvóldi fyrir svefn. I alvarlegum tilvikum
má auka skammtinn 120 mg tvisvar sinnum á dag. Skammtastærðir handa börnum: Venjulegir skammtar eru 0,2 mg/kg líkamsþunga þrisvar
til fjórum sinnum á dag. Lyfið skal tekið 15 mínútum fyrir mat.
Pakkningar og verð 1. sept. 1995:
Töflur 5 mg: 50 stk. - 1486 kr.; 100 stk. - 2820 kr.
Töflur 10 mg: 50 stk. - 2531 kr.; 100 stk. - 4903 kr.
Töflur 20 mg: 100 stk. - 9399 kr.
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990