Læknablaðið - 15.11.1996, Page 69
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
811
Um gæludýrahald í orlofshúsum
læknafélaganna
Nokkurt misræmi er á reglum
um gæludýr í orlofshúsum
læknafélaganna. Á þetta sér-
staklega við um hundahald.
Byggist þetta á því að reglur eru
mismunandi og að hluta til utan
lögsögu Orlofsnefndar læknafé-
laganna.
1. Gæludýr eru bönnuð í or-
lofsíbúðunum og byggist það
á reglum um fjölbýlishús.
2. Á svæði BHMR í Brekku-
skógi eru gæludýr bönnuð og
ekki á færi orlofsnefndar að
breyta því.
3. Húsafell og Lindarbakki
falla undir Ferðaþjónustu
bænda og þar eru gæludýr
einnig almennt bönnuð. Það
hefur hins vegar orðið að
samkomulagi að leyfa vel
vanda hunda, en þá í sam-
ráði við umsjónarmenn. Vill
orlofsnefnd leggja á það
áherslu að samráð sé haft og
er það forsenda samkomu-
lagsins.
4. Að Hreðavatni og Brekku
við Miðhús (við Egilsstaði)
og einnig í tjaldvögnunum
eru gæludýr leyfð. Orlofs-
nefnd sjálf hefur ekkert gegn
gæludýrum, en ætlast er til
að þau séu vel tamin og hlýð-
in. Einnig er ætlast til að
hundaskítur sé hreinsaður af
orlofshúsalóðum og utan
þeirra, þar sem það á við. Að
lokum er ætlast til að hundar
og önnur gæludýr haldi sig á
gólfi orlofshúsa og tjald-
vagna og fari ekki á efri hæð-
ir húsa. Notendur bera auð-
vitað ábyrgð á skemmdum af
völdum dýra sinna bæði inn-
an húss sem utan.
F.h. Orlofsnefndar læknafélag-
anna
Arni B. Stefánsson
Sjúkdómar sem ekki eru á
valdi lækna að bæta verða
skyndilega læknanlegir. Nægir
að nefna MS-sjúkdóm og HIV-
sýkingu. Ennfremur má benda
á að bylting í tækni hefur auð-
veldað mjög aðgerðir á elsta
fólkinu, til dæmis kviðsjárað-
gerð. Allt bendir til þess að inn-
an fárra ára verði gerðar æxlis-
aðgerðir án skurðaðgerða.
Ef þessi setning stæði óbreytt
er hugsanlegt að fólki, jafnvel á
besta aldri yrði meinuð hjálp.
Landlæknisembættið fær í
hendur kærur og kvartanir
sjúklinga vegna mistaka og
óhappatilvika, en einnig vegna
vanrækslu. Ef meðferð telst
ekki tilhlýðileg vegna van-
rækslu fellur ábyrgðin á lækna
og stjórnendur. Háar bóta-
greiðslur hafa komið til vegna
þessa. Ætla mætti að þetta
ákvæði sem hér er deilt á hafi
verið sett í framvarpið af fólki
sem ekki þarf að horfa í augu
sjúklings innan fjárhagsramm-
ans. Allar götur er rétt að gefa
fólki og þar á meðal þingmönn-
um tækifæri að segja sitt álit á
slíkum tillögum.
Það er tvímælalaust kostur að
ýmsum lagafyrirmælum sé safn-
að á einn stað og því auðveldara
fyrir almenning að fylgjast með
rétti sínum. Nýmæli er að hvergi
er þess getið í greinargerðinni
að allflestar tillögur í frumvarp-
inu eru þegar til og hafa verið í
mörg ár.
Ljóst er þó að frumvarpið
þarf gagngerðar endurskoðunar
við.
Landlækniscmbættið